Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.01.2014, Síða 47
ýmsar listgreinar. „Það er frábært fyrir
sjálfstæðu leikfélögin að hafa aðgang að
húsi eins og Tjarnarbíói.“
Edda Björg segir hlutverk sjálfstæðu
leikhópanna að ögra og gera tilraunir, það
er að segja hluti sem stóru leikhúsin eiga
ekki eins auðvelt með að gera. „Þannig
auðgum við flóruna. Það þýðir samt ekki
að hægt sé að gera hvað sem er. Til þess
að eiga möguleika á styrkjum til starfsem-
innar þarf leikfélag að eiga erindi. Ég lít
svo á að það eigi við um okkur.“
Allt leystist frábærlega
Ekki er heldur loku fyrir það skotið að
Lúkas snúi aftur í Þjóðleikhúsið. „Það er
mikill áhugi fyrir því. Samstarfið við Þjóð-
leikhúsið hefur gengið eins og í sögu, við
höfum notið ómetanlegs stuðnings allra
deilda,“ segir Edda Björg.
Ekki spillti fyrir að Kristbjörg Kjeld,
ekkja Guðmundar, lagði inn gott orð fyrir
Aldrei óstelandi. „Verk Guðmundar eiga
heima í Þjóðleikhúsinu og það var dásam-
legt að þetta skyldi ganga upp núna. Ég er
sannfærð um að Guðmundur var með okk-
ur á æfingaferlinu. Allt leystist frábærlega
en uppfærslan er frekar flókin og í raun
mun stærri en við sem leikfélag höfum bol-
magn til að gera. Lúkas er eins og fínasti
útsaumur, hvert smáatriði skiptir máli.“
Leikmynd í Lúkasi er eftir Stíg Stein-
þórsson, Helga Stefánsdóttir gerir búninga
og Stefán Már Magnússon, eiginmaður
Eddu Bjargar, sér um tónlistina. Marta
leikstýrir og leikendur, auk Eddu Bjargar,
eru Stefán Hallur Stefánsson og Friðrik
Friðriksson. „Það er frábært að vinna með
þeim, báðum tveim. Við Friðrik höfum
gengið langan veg saman, vorum saman í
bekk í Leiklistarskólanum á sínum tíma og
byrjuðum okkar feril saman í atvinnuleik-
húsi sem Pétur og Vanda í Pétri Pan í
Borgarleikhúsinu. Það er alltaf jafngaman
að vinna með Friðriki. Við erum eins og
ein manneskja á sviðinu.“
Edda Björg segir afskaplega gaman að
fást við íslenska klassík, eins og Fjalla-
Eyvind og Lúkas. „Það er eins og bæði
þessi verk hafi beðið eftir því að verða sett
upp og að komið yrði að þeim úr nýrri
átt.“
Geðrof og ofsi
Edda Björg segir engan skugga hafa borið
á samstarfið við Mörtu. Sjaldan rísi ágrein-
ingur og sýningarnar hafi orðið til
áreynslulaust. Þær eigi líka auðvelt með að
skipta með sér verkum. „Mig langaði að
leika og Mörtu að leikstýra. Hún er frábær
leikstjóri. Það er ekki þar með sagt að við
komum aldrei til með að skipta um hlut-
verk. Ég hef mikinn áhuga á leikstjórn og
hver veit nema maður mennti sig á því
sviði í framtíðinni.“
Næstu verkefni Aldrei óstelandi eru Ofsi
eftir Einar Kárason en leikfélagið hefur
fengið styrk til að setja þá sýningu á svið.
Þá hafa þær keypt réttinn á einleiknum
Geðrof 4:48 eftir breska leikskáldið Söruh
Kane í þýðingu Diddu skáldkonu. „Geðrof
4:48 hefur farið sigurför um heiminn en
aldrei ratað á svið hér á landi. Því þarf að
breyta. Mig hefur langað að setja þennan
einleik upp í bráðum áratug í þeim tilgangi
að opna fyrir þessa umræðu. Það er ákveð-
in heilun í þessu verki. Núna veit ég loks-
ins hvernig ég vil gera þetta, augnablikið
er komið. Þetta er svolítið eins og að missa
af strætó, svo kemur hann bara aftur.“
Spurð um tímarammann segir Edda
Björg Geðrof 4:48 örugglega fara á svið á
þessu ári og Ofsa mögulega líka.
Aðdáandi Frú Emilíu
Þá eru ótalin verkefni á öðrum vettvangi
en Edda Björg kemur til með að fara með
hlutverk Sonju í Vanja frænda eftir Tsjek-
hov í uppfærslu frú Emilíu í Tjarnarbíói í
vor.
„Það er mikill heiður, ég er bæði aðdá-
andi verksins og leikfélagsins. Ég fór ein-
mitt með Sonju í inntökuprófið í Leiklist-
arskólann á sínum tíma og sá allar
sýningar Frú Emilíu meðan afköst þess
frábæra leikfélags voru sem mest. Ég
hlakka rosalega til.“
Edda Björg verður ekki í amalegum fé-
lagsskap í Vanja frænda en meðal leikenda
verða Kristbjörg Kjeld, Hilmir Snær
Guðnason, Hjalti Rögnvaldsson og Þrúður
Vilhjálmsdóttir.
Hún er þakklát fyrir öll þessi verkefni
enda sé alls ekki sjálfgefið að vera með
vinnu í leiklist á Íslandi. „Maður verður að
njóta þess meðan það er.“
Hlýtur að vera draumurinn
Edda Björg segir undanfarin fjögur ár í
senn hafa verið lærdómsrík og skemmtileg.
„Það hlýtur að vera draumur sérhvers
listamanns að vera sjálfs sín herra. Það er
mjög mikil vinna að reka eigið leikhús en
algjörlega þess virði þegar maður sér af-
rakstur erfiðisins eins og við höfum verið
að gera.“
Eftir á að hyggja segir hún þetta hafa
verið góðan tímapunkt til að stofna eigið
leikfélag. „Það er ekki eins og við séum
nýútskrifaðar. Við búum að talsverðri
reynslu og það hefur tvímælalaust hjálpað
okkur í þessu starfi. Annars skiptir það
ekki höfuðmáli á hvaða aldri maður er, fólk
á alltaf að fara á eftir draumum sínum!“
Morgunblaðið/RAX
Morgunblaðið/Rósa Braga
Ljósmynd/Eddi
Eltum
draumana!
EDDU BJÖRGU EYJÓLFSDÓTTUR ÞARF EKKI AÐ
KYNNA FYRIR LEIKHÚSÁHUGAFÓLKI HÉR Á LANDI.
EFTIR MÖRG ÁR Í STÓRU LEIKHÚSUNUM SÖÐLAÐI
HÚN UM FYRIR FJÓRUM ÁRUM OG STOFNAÐI EIG-
IÐ LEIKFÉLAG ÁSAMT MÖRTU NORDAL, ALDREI
ÓSTELANDI. OG EKKI VANTAR VERKEFNIN. „ÞAÐ
ER HELLINGUR Í GANGI HJÁ KJELLINGUNUM,“ EINS
OG EDDA BJÖRG ORÐAR ÞAÐ SVO SKEMMTILEGA.
NÝJASTA SÝNINGIN, LÚKAS, ER NÚ FLUTT ÚR
ÞJÓÐLEIKHÚSINU YFIR Í TJARNARBÍÓ.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Friðrik Friðriksson, Edda
Björg og Stefán Hallur
Stefánsson í Lúkasi.
Aldrei óstelandi: Marta
Nordal og Edda Björg
Eyjólfsdóttir.
* Það er mjögmikil vinnaað reka eigið leik-
hús en algjörlega
þess virði þegar
maður sér afrakst-
ur erfiðisins eins
og við höfum ver-
ið að gera.
19.1. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 47