Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.01.2014, Page 59
19.1. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 59
LÁRÉTT
1. Hjá athafnasvæði kaðall var stoppaður. (9)
5. Jói frá Stóru-Giljá finnur litaða. (7)
9. Tek sonu úr skólastofnun út af því að erfiðasta. (8)
10. Hás dáleiða einhvern veginn í bókmenntaverki. (10)
11. Lirfa hjá Svía. (3)
12. Heilagir selir lenda í hreinlætistækjum. (7)
13. Bítur á hjónagarðinum. (5)
14. Aftaka KR við Rúmfatalagerinn á jötni. (10)
16. Fyrsta flokks hola felur skrautstein. (4)
17. Hefur yfirmaður tukthúslima stöðuna í framhaldsskóla? (14)
19. Tekst prufu að birta frávik í skynjun. (7)
22. Kýs sjó með íslenskar takmarkanir og skil á milli þess æski-
lega og óæskilega. (12)
24. Stolið harpix er stafrænt. (7)
26. Tvírugga einhvern veginn helvískri. (8)
27. Komast í hús til að hitta nákominn. (5)
28. Dyflinn tapar óþekktu fyrir gull og rolu. (8)
29. Salernin með í verðmætin. (8)
30. Kyrrð er ofin í öfuga átt óslitin. (6)
31. Hluti af fætinum er með svörð og skít frá andstæðingnum.
(10)
32. Saumamót labba til að forðast. (9)
33. Keyrði sá sem hefur verið vel rannsakaður sem óvið-
urkenndur. (8)
LÓÐRÉTT
1. Finn ós aftur úr sætinu. (6)
2. Píla vafði vætusull fyrir fornan. (11)
3. Sigraði brjálæði næringarskort. (9)
4. Duttu í sultu. (4)
5. Smá arf fær enn Ari R. fyrir sneypuferðir. (11)
6. Í ár áttu að vera drukkinn og sýna tilhneigingu til endurtekn-
ingar. (13)
7. Án fimmtíu Baltverja og í engum sokkum. (10)
8. Vepja sér Ísak auk randa. (8)
11. Smjörlíkið okkar gefur birtuna. (10)
15. Bolli verndar afkvæmi eins og sést í listaverkinu. (9)
18. Sá sem verður varla farinn á bíl er dulur. (10)
20. Kyrrð svíður berlega og greinilega hjá trénu. (11)
21. Það sem er lært af kærunni er að það er hægt að finna heil-
brigðisstarfsmann á nóttunni. (11)
23. Skotar lumi á einhvers konar rafbúnaði. (10)
25. Hugum að stærðfræðiaðgerð. (6)
26. Verkur hjá fugli í stutta stund. (8)
Tata Steel-mótið í Wijk aanZee hófst um síðustu helgi.Litli strandbærinn í grennd
við Amsterdam hefur haldið þessu
móti úti í næstum 80 ár og hol-
lenskir skákáhugamenn flykkjast
þangað bæði til að tefla og fylgjast
með. Á mótinu í ár sakna menn
hins nýbakaða heimsmeistara,
Magnúsar Carlsen, sem sigraði
með glæsibrag í fyrra og jafnaði í
vinningum talið gamalt staðarmet
Kasparovs frá 1999. Í efsta flokkn-
um sem í eru 12 keppendur fór
fram fjórða umferðin á Rikjsmu-
seum í Amsterdam. Fyrir umferð-
ina stilltu keppendur sér upp til
myndatöku við frægasta málverk
safnsins, Næturvörðinn eftir Rem-
brandt. Undirrituðum fannst nú
aðeins halla á skáklistina í sam-
anburði við snilldarverk gömlu
meistaranna, a.m.k. ef tekin er til
meðferðar sigurskák Aronjans yfir
Nakamura. Byrjunin tók þekkta
stefnu og Aronjan hafði svo sem
aldrei neitt nema örlítið betri stöðu
þar sem riddarinn átti alls kostar
við biskupinn. Samt gat Nakamura
haldið jafntefli en hann kiknaði
undan pressunni:
Levon Aronjan _ Hikaru Na-
kamura
Kóngsindversk vörn
1. d4 Rf6 2. Rf3 g6 3. c4 Bg7 4.
Rc3 d6 5. e4 O-O 6. Be2 e5 7. Be3
Rg4 8. Bg5 f6 9. Bh4 g5 10. Bg3
Rh6 11. c5 g4 12. Rh4 Rc6 13.
cxd6 cxd6 14. dxe5 dxe5 15. Bc4
Kh8 16. Dxd8+ Hxd8 17. O-O Rd4
18. Had1
Allt hefur þetta sést áður, 11.
leikur hvíts er dálítið erfiður við-
fangs og svartur situr uppi með
lakara endatafl þar sem hann hef-
ur enga vinningsmöguleika en jafn-
teflisfæri. Þannig gerast kaupin á
eyrinni í dag; með góðri byrjunar-
þekkingu geta menn oft tryggt sér
örlítið betri stöðu og teflt til sigurs
án þess að taka áhættu.
18. … Bxe6 Rxe6 20. f3 gxf3 21.
gxf3 Hxd1 22. Hxd1 Hd8
Nakamura bauð jafntefli eftir
þennan leik sem Aronjan hafnaði
og taldi boðið klárt dæmi um van-
mat á hættum stöðunnar. Það ligg-
ur í augum uppi að vinningsmögu-
leikar ef einhverjir eru liggja hjá
Aronjan.
23. Hxd8 Rxd8 24. Bf2 a6 25.
Kf1 Kg8 26. Ke2 Kf7 27. Be3 Ke6
28. Ra4 Bf8 29. Bxh6 Bxh6 30.
Rc5+ Kf7 31. Kd3 Bf4 32. h3 Bg5
33. Rf5 Re6 34. Rxe6?
Enginn heimsmeistaraklassi yfir
þessum leik, eftir 44. Rxb7! Rf4+
45. Kc4 Rxh3 36. b4 Rf4 37. a4 h5
38. b5 axb5 39. axb5 á hvítur að
vinna.
34. … Kxe6 35. Kc4 b6 36. a4
Bd2 37. b3 h5 38. b4 a5 39. bxa5
bxa5 40. Kb5
Riddarinn stendur vel þar sem
ekki verður sótt að honum. Na-
kamura var að ná tímamörkunum
við 40. leik og stígur feilspor.
40. … Kd7??
Eftir 40. … Kf7 er erfitt að sýna
fram á vinning, t.d. 41. Rd6+ Kg6
42. Rc4 Be1 43. Rxa5? Kg5! og
hvítur getur hæglega tapað þessari
stöðu!
41. Rg7! h4 42. Rf5 Be1 43. Re3
Ke6 44. Rc4
- og svartur gafst upp.
1. Aronjan 3 v. 2.-5. Hari-
krishna, Giri, Karjakin og So 2 ½
v. 6.-8. Dominguez, Caruana og
Nakamura 2 v.
Þrír efstir á Skákþingi
Reykjavíkur
Þrír skákmenn eru efstir að lokn-
um fjórum umferðum á Skákþingi
Reykjavíkur sem nú stendur yfir.
Sá sigurstranglegasti meðal þeirra
er tvímælalaust Jón Viktor Gunn-
arsson. Hann er með fullt hús
ásamt Þorvarði Ólafssyni og Einari
Hjalta Jenssyni. Davíð Kjart-
ansson er enn í fjóra sæti eð 3 ½
vinning. Í fimmtu umferð sem
fram fer í dag, 19. janúar, tefla
saman Einar Hjalti og Jón Viktor,
Davíð og Þorvarður. Tefldar verða
níu umferðir og er teflt tvisvar í
viku á sunnudögum og mið-
vikudögum.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
SKÁK
Teflt í námunda við Næturvörðinn
Verðlaun eru veitt fyrir
rétta lausn krossgátunnar.
Senda skal þátttökuseðilinn
með nafni og heimilisfangi
ásamt úrlausnum í umslagi
merktu: Krossgáta Morg-
unblaðsins, Hádegismóum
2, 110 Reykjavík. Frestur
til að skila úrlausn kross-
gátu 18. janúar rennur út á
hádegi 24. janúar. Vinnings-
hafi krossgátunnar 12. jan-
úar er Sigríður Friðþjófs-
dóttir, Sóleyjarima 5, 112 Reykjavík. Hlýtur hún
bókina Ólæsinginn í verðlaun. JPV gefur út.
KROSSGÁTUVERÐLAUN
Nafn
Heimilisfang
Póstfang