Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.02.2014, Qupperneq 40

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.02.2014, Qupperneq 40
S igrún Úlfarsdóttir er þekkt hérlendis fyrir skartgripa- hönnun sína en armbönd, hálsfestar og fleiri gersemar hafa notið mikilla vinsælda und- anfarin ár. Það sem færri gera sér kannski grein fyrir er hve merki- legum verkefnum Sigrún hefur komið að og er það á færi fárra Ís- lendinga að herma eftir. Sigrún seg- ist hvergi nærri hætt, spennandi hlutir séu framundan með tilkomu nýs fyrirtækis en það er ekki síður spennandi að fara aðeins yfir farinn veg Sigrúnar en nútímann. Sigrún útskrifaðist úr tískuhönn- un úr Esmod-skólanum í París árið 1988 og síðan þá hefur hún meira og minna búið og starfað í París. Áður en hún flutti til Frakklands var hún við nám í leikhúshönnun í Rússlandi en hún hefur einnig sinnt búningahönnun fyrir nokkur þekkt- ustu leikhús Moskvuborgar. Fjöl- breytt umhverfi og nám kann að út- skýra að hluta hve fjölbreyttum verkefnum Sigrún hefur komið að, allt frá því að kynna íslenskt fiskroð í töskum og skartgripum fyrir um- heiminum upp í að hanna ilmvatns- glas og snyrtivörur fyrir stór nöfn svo sem Jean Paul Gaultier. Ekki má þá gleyma brúðarkjól sem hún hannaði fyrir sómalísku fyrirsætuna Iman þegar hún starfaði hjá Hergé Léver. Iman gekk upp að altarinu í kjólnum til að setja upp hringa með David Bowie. Sigrún er um þessar mundir að færa aukinn kraft í skartgripafram- leiðslu sína og nýtt fyrirtæki, Divine Love, er í bígerð. Skartgripir henn- ar fást víða en frekar hefur verið miðað við smærri markað og fást þeir meðal annars í nokkrum lúx- usverslunum í París. Það verður ný reynsla sem Sigrún segist þó hlakka til, að fara út á stærri markað. „Í gegnum þau fyrirtæki og hönnuði sem ég hef unnið hjá í gegnum tíðina hef ég öðlast góð sambönd sem ég hef hugsað að nýta mér betur en ég hef gert áður í því sem framundan er. Maður sem ég vann með árið 2006 þegar ég hannaði kokteilkjóla fyrir Hervé Léger starfar hjá Max Azria í dag sem á hina risavöxnu búðakeðju BCBG í Bandaríkjunum og hann hefur boðið mér að sjá um dreifingu á skartgripalínum mínum. Max Azria er líka með verslanir í Evr- ópu og Asíu svo þetta skref væri mjög stórt.“ Það var stórt framaspor fyrir Sigrúnu á sínum tíma að vinna fyrir Hervé Léger og hjá honum hannaði hún kjóla sem hafa gengið í end- urnýjun lífdaga síðustu árin þegar Max Azria endurgerði kjóla Hergé Léver. Þannig eru ekki ýkja mörg ár síðan Sigrún sá Lindsay Lohan og eina af Kardashian-systrum í kjól sem hún hannaði hjá Léver. Það er þó ekki nýtt að Sigrún sjái hönnun sína í tímaritum frá því að hún byrjaði að hanna þótt hún segi það vissulega hafa verið sérstaka upplifun í fyrstu, að sjá töskur og skartgripi eftir sig í Vogue og stærstu tískublöðunum. Ferilinn í París byrjaði í ýmsum smáverk- efnum sem undu svo upp á sig. „Hervé Léger var til dæmis list- rænn stjórnandi fyrir Swarovsky og ég fór að hanna kvöldtöskur og skartgripi úr kristöllum fyrir fyr- Chakra-skartgripir Sigrúnar hafa notið mikilla vinsælda hérlendis. SIGRÚN ÚLFARSDÓTTIR SKARTGRIPAHÖNNUÐUR ÞAÐ HLJÓMAR ÓTRÚLEGA EN ER ÞÓ SATT AÐ EIN OG SAMA MANNESKJAN HEFUR HANNAÐ KOKTEILKJÓLA Á STÓRSTJÖRNUR, ILMVATNSGLÖS FYRIR JEAN PAUL GAULTIER, LEIKHÚSBÚNINGA Í RÚSSLANDI, BÚNINGA FYRIR ÍSLENSKA DANSFLOKKINN, TÖSKUR OG SKARTGRIPI SEM ÞYKJA EINSTAKIR. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is * Mér finnst allir áÍslandi vera ofboðs-lega skapandi sem er örugglega að hluta til vegna þess að fólk fær meira að vera í ein- hverri víðáttu.“ Hálsfesti og háls- men úr Black Swan-skart- gripalínunni. „Hér á Íslandi þekkjum við ekki, og trúum því kannski ekki að tíska geti reynst arðvæn. Í Frakklandi er efnafólkið hins vegar vel meðvitað um þetta enda hefur það oftar en ekki orðið ríkt í gegnum viðskipti með fatn- að, skartgripi og aðrar tískuvörur,“ segir Sigrún Úlfarsdóttir skartgripahönnuður. Sterk hugmynda- fræði mikilvæg 40 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.2. 2014 Föt og fylgihlutir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.