Stígandi - 01.01.1944, Page 5

Stígandi - 01.01.1944, Page 5
STIGANDI Janúar—marz 1944-II. ár, 1. hefti BRAGI SIGURJÓNSSON: LEITAÐ AÐ LEIÐUM Nú, þegar fullvíst má telja, að landsmenn taki innan skamms í orði og á borði öll sín mál í eigin hendur, er eðlilegt, að þeir stjaldri við og íhugi, livernig bezt og farsællegast verði fram hald- ið þeim nýja kapitula í sögu þjóðarinnar. Um tvennt ættum við þegar að geta verið sammála: Sjálfstæði þjóðarinnar á að verða meira en nafnið tómt, það á að verða — eftir því sem framast er unnt — sjálfstæði allra landsmanna, og það á að valda nýjum vexti, nýrri grósku í þjóðlífi voru, meiri grósku, ef vel á að vera, en nokkru sinni fyrr í sögu þjóðarinnar. Hvernig verður þessu náð? Hér verður ekkert fullnaðarsvar við slíku gefið. Það er skylda allra skyni borinna manna að reyna sjálfir að gera sér sem gleggsta grein fyrir slíku, en hins vegar hverjum hollt að heyra eitthvað um annarra skoðanir. Því er þetta mál reifað hér. Enn mun því óhrundið, að traustustu súlurnar, sem rennt verði undir stjórnskipulag hverrar þjóðar, séu frelsi, jafnrétti og brœðralag. Frelsi í hugsun, efnahag og athöfnum, jafnrétti til menntunar, atvinnu og afraksturs, bræðralag eða skilningur og og samstarf einstaklinganna um þessi atriði, skilningurinn á því, að það, sem heildinni er fyrir beztu, er bezt fyrir einstaklinginn, og það, sem er einstaklingnum raunverulega fyrir beztu, er bezt fyrir heildina — og samstarf um að ná þessum heildarhag sem fyrst og bezt. Offrelsi þeirra máttarmeiri og ríkari er þjóðfélaginu hættulegt. Það skapar ágimd, því að mikið vill meira. Vanfrelsi er einnig 1*

x

Stígandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.