Stígandi - 01.01.1944, Side 50

Stígandi - 01.01.1944, Side 50
48 INDRIÐI ÞÓRKELSSON Á FJALLI STÍGANDI sjónarhólnum í miðri sveitinni sá „vítt og vítt um veröld hverja“. Vegna ættvísinnar, vegna þess sambands, sem hann hafði við menn þessarar sveitar og þessa héraðs út yfir gröf og dauða, var honum heldur ekki eins mikil í augum og okkur hinum flest- um — hvorki fyrir sig eða aðra — sú langferð, er hann hefir nú lagt í. Vegna þessa viðhorfs hans, vegna alls sem hann hafði af líf- inu notið og þrátt fyrir allt, sem lífið hafði við hann leikið, varð honum svo eðlilegt að láta verða síðast orða: Ég bið að heilsa, lieilsa öllum. Þegar ég liefi mér til hugarhægðar lesið kvæði Indriða á Fjalli, liefir mér stundum fundizt til um það, að svo mikið skáld af guðs náð skyldi ekki leggja enn meiri rækt við íjrrótt sína, enn meiri vilja í Jrað að komast Jrar eins langt og hann hafði hæfileika til. í kvæðum hans er svo göfugur málmur, að mér hefir oft orðið það harmsefni, að þau eru baugabrot, eins og hann kallaði þau og dæmdi sjálfur. Þeir, sem kynnzt hafa ættvísi hans, hafa á sarna hátt harmað það, að hann skyldi ekki leggja Jrar fram alúð sína alla. En við verðum að beygja okkur undir þau lögmál, að ekki verður bæði sleppt og haldið. Ef Indriði á Fjalli hefði lagt allan hug á að verða skáld, hefði liann vafalaust náð þar miklu lengra en hann náði. Ef hann hefði lagt allan hug á ættfræði, hefði hann lokið þar miklu meira starfi en hann hefir lokið. Og enn held ég, að mér væri óhætt að segja — og verður það að vera skýringar- laust að þessu sinni — ef hann hefði lagt allan hug á að verða sveitarhöfðingi og héraðshöfðingi, hefði hann getað náð þar miklu lengra og náð almennari hylli manna, rneðan hann fór með völd, en hann hefir notið. Ég vil ekki dyljast Jress, að það getur á vissan hátt takmarkað afrekin að eiga sér stólparót. En hvað af þessu, sem orðið hefði, hefði líf hans ekki orðið eins hamingju- samt, síðasta kveðjan eigi eins hlý, viðskilnaðurinn eigi eins létt- ur fyrir hann og Jrá, er næst honurn standa mitt í þrautum hans og harmi þeirra. Ég ætla að lokum að segja frá minningu, sem kemur Indriða á Fjalli ekkert við. Þegar ég var barn á Sandi, kom Jóhannes á Skál þangað eitt sinn og sagði þetta, sem mér varð minnisstætt: „Skítt með alla skynsemi, en gáfur eru gull“. Þetta varð mér síðar ímynd þrár þjóðar minnar, í einangrun hennar og fátækt, eftir fjölbreytni, er hún gat helzt notið í þeim blæbrigðum hugarþels- ins, sem hún kallaði gáfur, sömu þrárinnar, er birtist í draumum hennar um það, sem er fjarlægt. Þessi þrá eftir því, sem er til-

x

Stígandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.