Stígandi - 01.01.1944, Page 65

Stígandi - 01.01.1944, Page 65
STÍGANDI LAJOS ZILAHY: HEFÐI EKKI... Sigurður L. Pálsson þýddi Hann tafði sig ekki á því að þvo terpentínuna af höndum sér, 'neldur lét sér nægja að þurrka af þeim á tuskunni, sem hékk á nagla fyrir aftan hurðina. Síðan tók hann af sér grænu hlífðarsvuntuna, sem hann bar um mitti sér að Iiætti trésmiða, og hristi spænina af buxnaskálmunum. Hann setti á sig hattinn, og áður en hann gekk út um dyrnar, leit hann við til gamla trésmiðsins, sem stóð og hrærði í líminu og snéri baki að honum. Röddin var þreytuleg, er liann sagði: „Góða nótt.“ Einhver annarleg og dularfull tilfinning hafði gagntekið hann síðan um morguninn. Það hafði verið eins og óbragð í munninum á honum. Hönd lians hafði öðru hvoru hætt að hreyfa til hefilinn, og augun lokazt af þreytu. Hann fór heim og snæddi kvöldverð sinn eins og úti á þekju. Hann bjó hjá gamalli konu, ekkju Ferenz Borka, í litlu, óvist- legu herbergi, sem einu sinni hafði verið timburgeymsla. Þá nótt — fjórða októbermánaðar 1874 — klukkan stundar- fjórðung gengin í tvö, dó trésmíðasveinninn Jóhann Kovacs. Hann hafði verið hæglátur maður, fölur og óhraustlegur yfir- litum, siginaxla, en yfirskeggið rauðleitt. Hann var þrjátíu og fimm ára gamall, þegar liann dó. Tveim dögum síðar var hann jarðaður. Hann lét hvorki eftir sig konu eða barn og ekkert skyldmenni utan kvenmann einn, er var eldabuska hjá bankastjóra í Buda- pest, Torday að nafni. Hún og Jóhann Kovacs voru systkinabörn. Fimm árum síðar dó gamli trésmiðurinn, sem átti verkstæðið,

x

Stígandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.