Stígandi - 01.07.1944, Side 43

Stígandi - 01.07.1944, Side 43
STÍGANDI ALFRED TENNYSON: ÁHLAUP LÉTTVOPNUÐU RIDDARANNA (The Charge of the Light Brigade.) Friðgeir H. Berg þýddi. Hólfa röst, hálfa röst, hálfa röst áfram, hraðför um heljardal hundruð sex riðu. „Fram, fram, hið fráa lið, framvígin takið þið." — Hraðför um heljardal hundruð sex riðu. „Fram, fram hið fráa lið." Fannst sá er kviði við, þó að þeir vissu að var vitlaus sú skipan —? Þeir skulu hlýða hljótt, hugsunarlaust og skjótt, sigra eða falla fljótt. Hundruð sex heljardal hleyptu í svipan. Fallstykki framan við, fallstykki á hvora hlið hvarvetna hvinu við, hvæstu fulltundruð. Yfir skall ægiél, áfram þeir héldu vel; beint inn í dauðans dal djúpt inn í gin á Hel hleyptu sex hundruð.

x

Stígandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.