Stígandi - 01.07.1944, Side 79
STÍGANDI
UM BÆKUR
Traustir hornsteinar,
erindi og greinar um félagslegt ör-
yggi eftir sir William Beveridge, Bene-
dikt Tómasson íslenzkaði, M. F. A.
gaf út.
Raunar telst bók þessi til bóka M.F.A.
árið 1913, en kom ekki út fyrr en upp
úr áramótunum síðustu. Þetta er ekki
stór bók, en hin smekklegasta að frá-
gangi, málfari og prentun. Fyrir þýð-
ingunni eru formálsorð eftir Jóhann
Sæmundsson lækni, þar sem gerður er
nokkur samanburður á félagslegum ör-
yggismálum hér á landi, eins og þeim
er nú hátiað, og tillögum Beveridges
hins enska um þau mál í heimalandi
hans.
Beveridgesáætlunin svonefnda vakti
mjög mikla athygli víða um heim. Flef-
ur verið mikið um hana ritað í l)löð
hér á landi, 'aðalatriði hennar birt og
gerð grein fyrir henni allýtarleg. Kennir
í tillögum þessum margra nýrra grasa
og eru þær allróttækar, en þó mið-
aðar við aukningu og eflingu á því,
sem fyrir er, en ekki gagngerða bylt-
ingu í þeim málum.
Hinar fimm meinsemdir þjóðfélags-
ins telur Beveridge vera skortinn,
sjúkdómana, fáfræðina, volæðið og
iðjuleysið — og þessar meinsemdir
verði að kappkosta að nema burtu.
Hér skal engin tilraun gerð til að
rekja, hvernig Beveridge vill skera
fyrir þessar meinsemdir, þar er bezt
að lesa hans eigin orð, því að mál-
færsla hans er hin greinagleggsta, en
þeim, sem ekki hafa lesið þessa bók,
verður til fróðleiks birtar hér nokkrar
málsgreinir úr henni, svo að nokkuð
megi af sjá, hvernig þar er á málum
haldið:
„Baráttan við fáfræðina er uppeldis-
atriði. Viið þurfum betri skóla og
fleiri kennara. En lausnin er ekki fólg-
in í því einu að hækka skólaskylduald-
urinn. Það er engu minna virði, hvers
konar menntun skólarnir láta í té, og
þó er ef til vill menntun hinna full-
vöxnu mesta vandamálið* *).“
„Við eldri mennirnir erum sorglega
fáfróðir um margt, sem við ættum að
vita.“
„Ráðið til að afnema vinnuhöft, svo
að allir hafi frjálsan aðgang að inðgrein-
um, sem þurfa á vinnukrafti að halda,
er að uppræta óttann við atvinnu-
leysi*).“
„Það er heldur ekki ætlazt til, að við
getum verið án forystu eða einstaklings-
framtaks í iðnaði, fremur en hægt er að
vera án aga.“
„Umfram allt verðum við að venja
okkur af þeim eftirlætisósið að geta ekki
staðið sem sterk og einhuga þjóð."
„Við eigum enga áætlun um, hvernig
á að nota landið, þar sem þjóðin lifir
og hrærist og vinnur. Auk þess eigum
við ekki nærri því nógu mörg né nógu
góð hús. Baráttan við volæðið er því
fólgin í því, að skipuleggja borgir og
byggðarlög og reisa fleiri og betri hús.“
*) Leturbreyting mín. Br. S. Saman-
ber tímaleysi flestra fullorðinna til að
lesa, fylgjast með og auka við fengna
þekkingu. Oft er líka um viljaleysi að
ræða.
*) Leturbreyt. mín. Br. S.