Fréttablaðið - 30.11.2013, Blaðsíða 2
30. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 2
Arndís Thorarensen, framkvæmdastjóri Lif-
andi markaðar, segir skort vera á lífrænum
kjúklingi á Íslandi. Hún segir framleiðendur
þurfa að hlusta á markaðinn og bjóða upp
á betri vörur.
Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs,
fagnaði því að aðalskipulag Reykjavíkur til
2013 væri samþykkt í borgarstjórn. Dagur
segir mikla áherslu vera á umhverfismál,
jöfnuð og félagslega blöndun.
Heimir Hallgrímsson og Lars Lager-
bäck munu þjálfa karlalandsliðið í
fótbolta í sameiningu í undankeppni
EM 2016. Í framhaldi af því mun
Heimir taka við stjórn liðsins.
Oddný Sturludóttir segir skilið við stjórn-
málin eftir átta ára starf sem borgar-
fulltrúi fyrir Samfylkinguna. Hún hefur sett
stefnuna á frekara nám en skilur við borgar-
stjórnina stolt og sátt.
➜ Páll Magnússon reiddist heiftarlega á fundi með starfsmönnum
Ríkisútvarpsins sem haldinn var í kjölfar fjöldauppsagna hjá
stofnuninni. Ástæða reiðinnar var spurning um hvort uppsagnirnar
væru hluti af leikriti gagnvart ráðamönnum.
MENNINGARMÁL Sri Chinmoy-mið-
stöðin íhugar nú að kaupa land
við rætur Esjunnar undir þrettán
metra háa bronsstyttu af Chinmoy.
Guðný Jónsdóttir hjá Sri
Chinmoy-miðstöðinni á Íslandi
segir um að ræða listaverk tileink-
að friði, gert af Englendingnum
Kaivaliya Torpy. Hann hafi gert
margar styttur af Chinmoy og
standi þær víða um heim, til dæmis
í Ósló, Prag, á Balí og í Vasa í Finn-
landi.
Að sögn Guðnýjar yrði styttan á
Íslandi sú langstærsta af Chinmoy
sem Torpy hefur gert hingað til
af hinum heimsþekkta indverska
gúrú og kraftlyftingamanni. Torpy
hefur þrisvar komið til Íslands og
ferðast um. Hér upplifir hann frið
í náttúrunni og draumur hans er að
styttan verði hér,“ segir Guðný.
Styttan á að verða 13,35 metra há
og sýna Chinmoy í sitjandi stöðu.
Óskað hefur verið eftir svari frá
Reykjavíkurborg við því hvort
reisa megi styttuna í landi Lunds
við Mógilsá. Þar er tveggja og hálfs
hektara skógi vaxinn skiki með
gömlu húsi einmitt til sölu um þess-
ar mundir. Ásett verð er 35 millj-
ónir króna.
„Við förum náttúrulega ekki að
kaupa land nema vita fyrirfram að
við fengjum leyfi,“ segir Guðný,
sem kveður skiljanlegt að borgin
vilji skoða fyrirspurn þeirra vand-
lega. „Þeir vilja vitanlega kanna
hvort hér er alvara að baki eða
hvort við séum bara einhverjir
rugludallar.“
Þeir sem standa að Sri Chinmoy-
miðstöðinni á Íslandi eiga að sögn
Guðnýjar það sameiginlegt að hafa
numið hugleiðslu hjá indverska jóg-
anum. Hann lést árið 2007.
gar@frettabladid.is
Þrettán metra jógi úr
bronsi við rætur Esju
Jógar í Sri Chinmoy-miðstöðinni vilja heimild til að setja upp þrettán metra hátt
líkneski af Chinmoy við Mógilsá. Styttan er sögð verða sú langstærsta af nokkrum
styttum sem listamaðurinn Kaivaliya Torpu hefur gert af Chinmoy víða um lönd.
Í LUNDI Ind-
verski gúrúinn
Sri Chinmoy
skýtur hér
upp kollinum
í skógarrjóðri
við Esjurætur á
þessari samsettu
mynd.
MYND/SRI CHINMOY
MIÐSTÖÐIN
FORSÆTISRÁÐHERRA LYFT
Sri Chinmoy sýndi aflraunir hér á landi
1989 og lyfti þá Steingrími Hermanns-
syni forsætisráðherra. MYND/SV.Þ
Landshagir 2013
Statistical Yearbook of Iceland
Þeir vilja vitanlega
kanna hvort hér er alvara
að baki eða hvort við
séum bara einhverjir
rugludallar.
Guðný Jónsdóttir
hjá Chinmoy-miðstöðinni á Íslandi.
SAMANBURÐUR Styttan í samanburði
við hús sem stendur á lóðinni.
ERU BÁÐIR JÓLADRENGIR 26
Bogomil Font og Samúel J. Samúelsson halda
jólatónleika með Stórsveit Reykjavíkur í
Hörpu á sunnudaginn.
GET DANSAÐ UPPI Á BORÐUM
EDRÚ 34
Hilda Jana Gísladóttir, dagskrárstjóri hjá N4,
kynntist skuggahliðum lífsins sem unglingur
en er nú hæstánægð með tilveruna.
EINS OG VANSKÖPUÐ KART-
AFLA AÐ SPÍRA 36
Fréttablaðið leitar álits á bestu og verstu
plötuumslögum ársins.
ALLIR LISTAMENN ERU KONUR
40
Ragnar Kjartansson myndlistarmaður er
á sífelldum þönum við sýningahald um
allan heim. Í augnablikinu er hann þó með
fókusinn á Íslandi, opnar sýningu í Kling og
Bang í dag og hannaði Kærleikskúluna í ár.
VILL HERÐA REGLUR UM RANNSÓKNARNEFNDIR 44
Ragnheiður Ríkharðsdóttir, formaður þingfl okks sjálfstæðismanna, vill herða reglur
varðandi rannsóknarnefndir Alþingis og segir nauðsynlegt að setja fastan ramma utan
um lengd og rekstrarkostnað slíkra nefnda.
SÓKNARFÆRI Í OFFITUVANDA 16
Ný vara frá Primex á Siglufi rði gæti gert mönnum
kleift að borða konfekt án samviskubits yfi r
aukakílóunum.
ÖRYGGISATRIÐI AÐ HAFA
MYNDAVÉLAR 4
Eft irlitsmyndavélum hefur fj ölgað mikið í
íslenskum leigubílum. Leigubílstjórar fi nn fyrir
auknu öryggi.
STJÓRNARRÁÐSINS AÐ VINNA
FRUMVÖRP 6
Ekki er hefð fyrir því að hagsmunaaðilar komi
beint að frumvarpsgerð. Stjórnarráðið á að vinna
frumvörp en ekki aðilar úti í bæ, segir prófessor
við Háskóla Íslands.
JÁTAÐI Í BEINNI 8
Íslendingur búsettur í Svíþjóð hefur játað að hafa tekið þátt í að koma svínshausum,
svínsblóði og blóðugu eintaki af Kóraninum fyrir á lóð í Sogamýri þar sem til stendur
að reisa mosku.
HEIMILISLAUSUM EKKI VÍSAÐ FRÁ 10
Síðustu mánuði hefur margoft þurft að vísa heimilislausum frá í Gistiskýlinu við
Þingholtsstræti. Nýtt gistiskýli verður opnað á Vatnsstíg á næstunni þar sem pláss
verður fyrir fi mm menn. Nágrannar hafa blendnar tilfi nningar vegna málsins.
VOGARSKÁLAR VALDA OG
MÁLEFNA 20
Þorsteinn Pálsson um stjórnmál og málefnalegan aga.
FÁTÆKT BARNA Á ÍSLANDI 24
Margrét Júlía Rafnsdóttir um aukinn ójöfnuð barna.
FRÁBÆRT FRUMKVÆÐI FRÁ
HAGRÆÐINGARNEFND 24
Vísindamenn um samkeppnissjóði.
EFNAHAGSMÁL Skýrsla og tillögur sérfræðingahóps
um höfuðstólslækkun verðtryggða húsnæðislána
verður formlega kynnt almenningi á blaðamanna-
fundi klukkan fjögur í dag.
Skýrslan var rædd í ríkisstjórn í gær og samþykkti
hún að halda áfram vinnu um undirbúning að fram-
kvæmd tillagnanna, meðal annars smíði lagafrum-
varpa á grundvelli þeirra. Þingflokkar stjórnarflokk-
anna funda fyrir hádegi í dag um tillögurnar.
Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir að
útfærsla tillagnanna feli í sér viðamestu efnahags-
aðgerð ríkisstjórnarinnar til þessa.
Heimildir Fréttablaðsins herma að aðgerðirnar
muni aðeins ná til hluta íslenskra heimila eða um 70
þúsund þeirra, en um 52% íslenskra heimilda skulda
engin húsnæðislán.
Gert er ráð fyrir að skuldir lækki um allt að 130
milljarða króna og verður farin svokölluð blönduð
leið beinna niðurfellinga verðtryggðra húsnæðislána
ásamt skattaafslætti á niðurgreiðslu með séreignar-
sparnaði.
Blaðamannafundurinn verður í beinni útsendingu
á Vísi í dag, ásamt því sem aukaþáttur af Stóru mál-
unum verður sýndur beint eftir kvöldfréttir Stöðvar 2
í kvöld þar sem Lóa Pind Aldísardóttir stefnir að því
að fá forráðamenn ríkisstjórnarinnar til að ræða til-
lögurnar. - fbj
Tillögur sérfræðingahóps um höfuðstólshækkun verðtryggðra húsnæðislána:
Skuldaniðurfellingar kynntar
FORMAÐURINN Dr. Sigurður Hannesson stærðfræðingur er
formaður sérfræðingahópsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
LIST Á NETINU 90
Listakonan Ásdís Sif fl ytur vídeógjörning í beinni útsendingu á netinu.
MAÐUR OG NÁTTÚRA 92
Þrjár kynslóðir listakvenna sýna verk sín á sýningunni Pumpu í Norræna húsinu.
HVAÐ GERÐU ÞAU? 98
Fræga fólkið og þeirra fyrri störf.
FRÉTTIR 2➜18
SKOÐUN 20➜24
HELGIN 26➜80
SPORT 112
MENNING 90➜118
FIMM Í FRÉTTUM FJÖLDAUPPSAGNIR OG AÐALSKIPULAG
STRÆTISVAGNASÆTI Á VARA-
MANNABEKKNUM
ÍR-ingar voru með óvenjulegan varamanna-
bekk á leik liðsins í Olísdeild karla í vikunni.
STÓRLEIKUR HJÁ GYLFA ÞÓR
OG FÉLÖGUM
Manchester United kemur í heimsókn á
White Hart Lane.