Fréttablaðið - 30.11.2013, Blaðsíða 104
Á heimasíðu Hjálparstarfsins, www.help.is, færðu allar
upplýsingar um starfið og þaðan getur þú sent
minningarkort, keypt gjafabréf eða gefið framlag.
Partíljón og sannkallaður búhnykkur
Geitur og hænur Hjálparstarfsins eru sannkölluð
partíljón. Afmæli, útskriftarveislur og innflutningsboð
eru þeirra ær og kýr. Taktu þær með næst þegar þér
er boðið. Svona ferðu að: Á gjafavefnum okkar
www.gjofsemgefur.is – eða bara á skrifstofunni hjá
okkur, velur þú úr 37 ólíkum gjöfum. Meðal geita og
hæna finnur þú grænmetisgarð, saumavél og ýmsar
gjafir fyrir börn og unglinga á Íslandi. Þú fylgir
leiðbeiningunum, kaupir það gjafabréf sem þér
hugnast best, skrifar fallega kveðju og ferð með það í
boðið. Afmælisbarnið verður ákaflega hissa og glatt að
fá svo óvenjulega gjöf. Útskriftarneminn geymir
gjafabréfið með heillakortunum og á næstu árum á
hann oft eftir að hugsa til fátæku fjölskyldunnar sem
fékk gagnlega gjöf þegar hann fagnaði tímamótum. Já,
því andvirði gjafabréfsins rennur til þeirra sem
sannarlega þurfa á búhnykk að halda. Eftir innflutnings-
boðið hangir gjafabréfið á ísskápnum á nýja heimilinu og
gleður – við hverja laumuferð í ísskápinn ... um nótt ...
Langar þig að gefa?
Ef ekkert sérstakt stendur til en þig langar að gefa,
ferðu inn á www.framlag.is og velur málefni sem þú
vilt styrkja. Þú velur upphæð og gengur frá málinu;
einn, tveir og þrír. Eða hringdu bara til okkar. Við
gerum þetta allt í gegnum síma líka: 528 44OO.
Fréttablaðið okkar, Margt smátt, kemur út fjórum
sinnum á ári. Láttu okkur vita ef þú vilt ókeypis áskrift.
Sjálfbærni og umhverfisvernd eru grunvallarþættir í
verkefnum Hjálparstarfs kirkjunnar. Umhverfisvernd
er lykillinn að framtíðinni, forvörn gegn sífelldum
náttúruhamförum, flóðum og þurrkum. Fólk er frætt
um samhengi hlutanna. Hvernig gróðureyðing, sem
eykst við það að höggvinn er eldiviður, verður til þess
að vatn tollir ekki í jörðinni. Vatnið flýtur burt á
yfirborðinu eða gufar upp þegar engar rætur halda í
það og laufskrúð veitir ekki skugga. Nýtanlegum
vatnsbólum fækkar. Þess vegna er fólki kennt að rækta
græðlinga og planta meðfram ám og lónum til að halda
í jarðveg og raka. Stallar eru gerðir til að rækta á svo
jarðvegur skolist ekki burt. Hraðvaxta trjátegundir má
um leið nýta í eldivið og hlífa þannig náttúrulegum
gróðri. Með sparhlóðum verkefnisins þarf helmingi
minna af honum en áður. Trén bera sum ávöxt og þau
veita matjurtum skugga. Tegundir eru ræktaðar á víxl
til að draga úr næringartapi í ökrum. Gróðurleifar eru
nýttar í moltugerð og tað til áburðar. Náttúruleg
hringrás verndar auðlindir.
Á Indlandi berjast samstarfsaðilar Hjálparstarfsins
fyrir lífi aðalfljóts héraðsins. Það sér ríkum og
fátækum fyrir vatni. Vöruframleiðendur á svæðinu eru
frekir á vatn á kostnað íbúa. Sandnám opinberra og
einkaaðila úr árfarveginum dregur úr rakadrægni
hans og áin verður ekki eins vatnsmikil.
Þetta er meðal annars gert í verkefnum á Indlandi,
í Eþíópíu, Malaví og Úganda:
• Barátta fyrir drykkjar- og áveituvatni.
• Kenna meðferð og geymslu korns og minnka sóun.
• Sparhlóðir vernda umhverfið.
• Ný fræ bæta frjósemi moldar.
• 7.7OO m af grjótstöllum.
• 26.OOO trjágræðlingar.
• Moltugerð.
• Víxlræktun hlífir jarðvegi.
Vefsíður sem vert er að heimsækja!
Náttúruleg hringrás – meiri afurðir
1O – Margt smátt ...
Trjágræðlingar. Víxlræktun hlífir jarðvegi.