Fréttablaðið - 30.11.2013, Blaðsíða 6
30. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 6
ORKUMÁL Ómar H. Kristmundsson,
prófessor við stjórnmálafræðideild
Háskóla Íslands, segir ekki eðlilegt
að hagsmunaðilar komi beint að
samningu frumvarpa.
Í Fréttablaðinu í gær kom fram
að fyrirtækið Carbon Recycling
International hefði skrifað stóran
hluta af fyrstu drögum atvinnu-
vega- og nýsköpunarráðuneytisins
að frumvarpi um endurnýjanlegt
eldsneyti. Fyrirtækið framleiðir
metanól sem má nota sem íblönd-
unarefni í bensín. Frumvarpið
varð að lögum sex mánuðum síðar.
Ómar kveðst ekki vita til þess
að ákvæði séu um það í lögum sem
meini hagsmunaðilum að koma
drögum að frumvörpum á fram-
færi. „Kjarni málsins er sá að það
er hlutverk Stjórnarráðsins að
vinna frumvörp en ekki aðila úti
í bæ. Það þarf eiginlega ekki að
setja reglu um það því það er svo
augljóst,“ segir hann, aðspurður.
Hann segist ekki geta lagt mat á
þetta tiltekna mál því hann þekki
það ekki nægilega vel. „Almenna
reglan er sú að stjórnarfrumvörp
eru samin af sérfræðingum ráðu-
neytanna eða stofnana þeirra.
Stundum er sérfræðingum utan
ráðuneytis eða sérstökum sam-
starfshópi falið verkefnið.“
Ómar segir að skilja verði á
milli frumvarpsgerðarinnar
sjálfrar og samráðs. „Það hefur
verið vaxandi áhersla hjá íslensk-
um stjórnvöldum að auka samráð
við stefnumótun mála sem leiða til
lagabreytinga. Í því hefur falist
samráð við hlutaðeigandi. Það er
eðlilegt að á stefnumótunarstigi sé
haft samráð við ólíka hagsmuna-
aðila,“ segir hann. „Einnig þurfum
við að hafa í huga að þegar frum-
varp hefur verið lagt fram er
ávallt leitað umsagnar hagsmuna-
aðila og rætt við þá í viðkomandi
fagnefnd þingsins.“
freyr@frettabladid.is
Aðilar úti í bæ semji
ekki ný frumvörp
Ekki er hefð fyrir því að hagsmunaaðilar komi beint að frumvarpsgerð. Stjórnar-
ráðið á að vinna frumvörp en ekki aðilar úti í bæ segir prófessor við Háskólann.
Dæmi eru um að aðilar utan ríkisins hafi komið að samningu frumvarpa
og nefnir Ómar frumvarp um Orkuveitu Reykjavíkur frá 2001 sem hafi að
talsverðu leyti verið samið innan Reykjavíkurborgar.
Jafnframt má geta þess að deCode eða dótturfyrirtæki þess samdi
fyrstu drögin að lögum um gagnagrunn á heilbrigðissviði og voru ein-
hverjir sem gagnrýndu það á sínum tíma.
Frumvarp um OR samið af borginni
EKKI TIL EFTIRBREYTNI Ómar H. Kristmundsson, prófessor við HÍ, segir óeðlilegt
að hagsmunaaðilar komi beint að mótun frumvarpa. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Kjarni málsins er sá
að það er hlutverk Stjórn-
arráðsins að vinna frum-
vörp en ekki aðila úti í bæ.
Ómar H. Kristmundsson
prófessor við stjórnmálafræðideild HÍ
Jólatilboð
KJARASAMNINGAR „Þetta gengur
hægt. Menn eru að þreifa fyrir sér
og reyna að átta sig á því hvaða
atriði eiga að vera í samningnum,“
segir Björn Snæbjörnsson, formað-
ur samninganefndar Starfsgreina-
sambandsins.
Kjarasamningar á milli 80 og 90
þúsund launþega renna út á mið-
nætti og nokkuð langt virðist í land
að nýr kjarasamningur verði undir-
ritaður.
Eitt af því sem tafið hefur samn-
ingsgerðina er að frumvarp til fjár-
laga var ekki lagt fram fyrr en í
byrjun október. Fyrir rúmri viku
kynnti ríkisstjórnin breytingar á
fjárlagafrumvarpinu fyrir forystu-
mönnum verkalýðshreyfingarinn-
ar. Það má því segja að eiginlegar
samningaviðræður hafi ekki byrjað
fyrr en í vikunni sem er að líða.
„Við viljum fá vissu fyrir því að
atvinnurekendur velti kauphækkun-
um ekki beint út í verðlagið. Við vilj-
um líka að ríki og sveitarfélög komi
að borðinu og hækki ekki álögur á
almenning,“ segir Björn. - jme
Kjarasamningar á almenna vinnumarkaðnum renna út á miðnætti:
Tugþúsundir án kjarasamninga
SAMNINGAR LAUSIR Samningar tug-
þúsunda launþega renna út á miðnætti.
FRETTABLAÐIÐ/STEFÁN
VERSLUN „Við leggjum tímamóta-
tilboð á borðið þar sem sjónvarps-
áskrifendur okkar fá 100 prósenta
niðurfellingu á mánaðargjöldum
net- og heimasíma með ákveðn-
um áskriftarpökkum. Það eina
sem viðskiptavinir okkar þurfa að
greiða er línugjald sem er 2.610
krónur eins og tíðkast hjá við-
skiptavinum hjá öðrum fjarskipta-
fyrirtækjum,“ segir Ari Edwald,
forstjóri 365 miðla.
Fyrirtækið hefur nú opnað sölu-
síðuna 365.is þar sem hægt er að
kaupa mismunandi pakkalausnir
sem innihalda net, heimasíma og
áskriftir að sjónvarpsstöðvum.
Þar er boðið upp á ljóshraðanet í
gegnum Ljósleiðara Gagnaveitu
Reykjavíkur og Ljósveitu Mílu.
Ari segir að fyrirtækið ætli til
áramóta að bjóða upp á frítt net
og heimasíma með völdum sjón-
varpsáskriftum í allt að þrjú ár.
„Þetta er svo sannarlega raun-
verulegur sparnaður í þágu heim-
ilanna í landinu. Sparnaðurinn
getur numið allt að 180 þúsund
krónum á þremur árum,“ segir
Ari. - hg
365 miðlar selja nú net- og símaþjónustu á nýrri sölusíðu fyrirtækisins:
Bjóða fjölbreyttar pakkalausnir
BLANDAÐA LEIÐIN Slegið er á létta strengi í auglýsingaherferð 365 miðla þar sem
talað er um blönduðu leiðina.
➜ 365 miðlar bjóða
upp á frítt net og síma
með völdum sjónvarps-
áskriftum í allt að þrjú ár.