Fréttablaðið - 30.11.2013, Blaðsíða 32
30. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 32
lífi Bubba þó það sé eflaust stutt í
að hann þeysi upp fjallshlíðina á ný.
„Í dag er heilsan í fyrsta sæti
hjá mér. Það er minn stóri lærdóm-
ur þessa dagana. Og þakklætið. Að
vera þakklátur fyrir það sem þú
hefur. Mér finnst mikilvægt að lifa
ekki í gærdeginum eða vera fastur
í hugsunum um morgundaginn. Ég
reyni að temja mér að njóta dagsins
í dag, njóta þess að vera með fjöl-
skyldu minni og vinum. Ef maður
nær því þá er maður að lifa lífinu.
Maður verður að passa sig að drep-
ast ekki á stressi eða óhollustu,“
segir Bubbi.
Trúir á karma
Bubbi segir þá ákvörðun að verða
edrú hafa bjargað lífi sínu. „Ég hélt
um tíma lista yfir þá vini og kunn-
ingja sem höfðu verið mér samferða
í neyslunni. Svo hætti ég því. Nöfn-
unum á listanum tók að fækka ansi
hratt. Þegar menn deyja úr neyslu
heitir það ýmsum nöfnum – stund-
um sjálfsvíg, stundum hjartaáfall.
Ég er löngu búinn að missa töluna
á þeim sem ég hef horft eftir yfir
móðuna miklu vegna drykkju.“
„Ég trúi líka á karma. Ég hef til
dæmis aldrei rukkað fyrir að spila
í jarðarförum. Ég hef sungið í ansi
mörgum jarðarförum ungs fólks
sem hefur tekið eigið líf. Suma
þekki ég. Aðra ekki. En það er allt-
af jafn sorglegt þegar ungt fólk í
blóma lífsins fellur frá út af neyslu,“
segir Bubbi.
Ég minnist á fréttina af ungri
stúlku sem fannst látin í partíi í
heimahúsi fyrr í mánuðinum og það
er ljóst að slíkar fréttir hafa áhrif
á Bubba.
„Við tilheyrum einfaldlega sam-
félagi sem lítur á unglingadrykkju-
orgíur einu sinni á ári sem sjálf-
sagðan hlut, þar sem fullorðnum
finnst eðlilegt að drekka með börn-
um, þar sem menn á Alþingi drekka
sig fulla nokkru sinnum í mánuði og
sitja svo á þingi og garga yfir dóp-
neyslu. Það er allt á skjön og áhersl-
urnar í heilbrigðismálum eru ansi
brenglaðar,“ segir Bubbi og heldur
áfram. „Ég samdi lag á síðustu plötu
sem fjallar nákvæmlega um þetta,
um unga stúlku sem deyr í partíi á
afmælisdaginn sinn. Þessar frétt-
ir hafa alltaf áhrif á mig. Við verð-
um að leggja meira fé í forvarnir.
Það er ekki hægt að láta Vog berj-
ast í bökkum. Heilbrigðiskerfið er í
molum, fornvarnarstarfið er molum
og Alþingi er lamað.“
Sigurinn í uppgjöfinni
Bubbi kynntist sjálfur tólf spora
samtökum árið 1985 og leitaði lausn-
ar við áfengisvandamálinu.
„Mér gekk samt erfiðlega að
finna mig. Ég var ekki að kaupa þá
hugmynd að ég hefði tapað fyrir
áfenginu. En því meira sem ég
rembdist við að telja sjálfum mér
trú um að ég væri við stjórnvölinn,
þeim mun verr leið mér. Ég var oft
þurr í marga mánuði en svo datt ég
í það. Féll. Þetta var mikið strögl og
ég þjáðist svolítið af „Hemma Gunn
einkenninu“. Ég laug að þjóðinni, ég
laug að vinum mínum og ég laug að
sjálfum mér,“ útskýrir Bubbi.
Á endanum gafst hann upp.
„Augnablikið þegar ég gafst upp
var stærsti sigur lífs míns. Það er
enn ein þverstæðan. Sumir geta
ekki hugsað sér að tapa. En öll töpin
í mínu lífi hafa verið sigrar. Þannig
er það bara. Síðan þá hef ég reynt að
deila reynslu minni með öðrum. Ég
hef farið skóla og talað og hugsað að
ef ég næði að hafa áhrif á bara einn
einstakling væri það sigur.“
Við færum okkur um set. Bubbi
opnar dyrnar á bílskúrnum. Þar er
lyftingabekkur og handlóð og svart-
ur boxpúði. Í litlu vinnuherbergi
sýnir Bubbi okkur áritaða ljósmynd
af átrúnaðargoði sínu – sjálfum
Cassius Clay – Muhammed Ali og
Bítlunum. Í bókahillu eru ævisögur
hnefaleikakappa í röðum. Fyrir utan
tónlistina er boxið kannski stærsta
ástríðan í lífi Bubba enda á hann
sinn þátt í því að kveikja áhuga þjóð-
arinnar á hnefaleikjum með lýsing-
um sínum á Sýn og Stöð 2 í gegnum
tíðina.
Sannleikurinn í hringnum
„Það eru þrjár persónur úr mann-
kynssögunni sem ég gæfi allt til
að hitta. Cassius Clay, Chaplin
og Jesús Kristur,“ segir Bubbi.
„Cassius Clay kemur til sögunnar á
svipuðum tíma og Bítlarnir og Bob
Dylan og mér fannst hann alveg
jafn merkilegur. Þetta ofboðs-
lega sjálfstraust og hvernig hann
flaut í hringnum. Það var eins og
hann væri að dansa ballett bæði
með höndunum og fótunum. Ég sá
hann í Kanasjónvarpinu og varð
gjörsamlega heillaður. Gleymi því
aldrei,“ segir Bubbi.
Hann segist heillast af hrein-
leika bardagaíþrótta, alveg eins
og hann sé heillaður af nautabön-
um sem leggi líf sitt að veði á vell-
inum. „Ég fór eitt sinn til Spánar
og ferðaðist um og horfði á nauta-
at. Var í nettum Hemingway-fíling.
Og ég varð orðlaus að sjá 61 kílóa
mann kyssa granirnar á 750 kílóa
nauti. Þarna heillaðist ég af þessum
íþróttum en síðar fór ég að skilja
þær betur. Ég skildi að þegar tveir
menn kljást í hring er lífið strípað
niður í sína hráustu mynd. Þar ríkir
því einhver algildur sannleikur. Í
bardaganum eru engar lygar, ekk-
ert feik eða svik. Eina sem skiptir
máli meðan á bardaganum stendur
er þessi sannleikur, hvort sem hann
er ljótur eða fallegur. Kannski er
hringurinn síðasta vígi sannleik-
ans,“ segir Bubbi þó hann viður-
kenni að eflaust séu margir ósam-
mála honum í þessum efnum.
Leitin að hamingjunni
Þetta er hins vegar Bubbi. Hann er
maður þversagna. Hann sér fegurð
í ljótleikanum, hann er einlægur
rokkari, hann er elskaður og hat-
aður og hann hefur þurft að berj-
ast fyrir sínu. Þegar John Lennon
var krakki fékk einu sinni það
verkefni að skrifa skólaritgerð um
hvað hann vildi verða þegar hann
yrði stór svaraði hann með einu
orði: Hamingjusamur. Og þrátt
fyrir að ritgerðin væri ekki löng
fólst í henni stór sannleikur.
Bubbi segir: „Mér finnst mik-
ilvægt að minna mig á að ham-
ingjan er ekki einhver staður eða
hlutur. Hamingjan er ekki að eign-
ast Iphone 5c eða nýjan Ipad eða
deita fallegustu stelpuna eða eiga
stærsta húsið eða mest af pen-
ingunum. Það er ekki hamingj-
an. Hamingjan er alltaf til stað-
ar. Inni í þér. Og maður verður að
vera meðvitaður um þetta augna-
blik, þetta sekúndubrot sem ham-
ingjan knýr dyra.“
Ég spyr Bubba hvenær hann sé
hamingjusamur og er ekki frá því
hann svari með ljóði.
„Þegar ég vakna og heyri andar-
drátt hússins,
þegar litla stelpan mín, nýbyrj-
uð að tala, segir hæ,
þegar ég horfi á bakið á konunni
minni og sé þessa fallegu sveigju,
eða þegar ég er lifandi að tala
við þig.
Stundum koma dagar þar sem
tilveran er grá og dökk,
samt er hamingjan alltaf kring-
um þig. Hún kallar á þig.
En þú sérð hana ekki.
Eftir stutta þögn heldur Bubbi
áfram:
„Ég held að Lennon hafi nefni-
lega hitt naglann á höfuðið. Það
er stórkostlegt takmark að taka
á móti hamingjunni. Hún kemur
í allskyns birtingarformum. Nú
hlakka ég rosalega til jólanna
því ég er jólabarn en það verð-
ur algjörlega undir mér komið
hvernig mér líður á aðfangadag.
Þannig er hamingjan. Hún kemur
ekki nema þú takir á móti henni,
nema þú sért með opinn faðminn
og ef þú ert með opinn faðminn þá
verður þú verðlaunaður mörgum
sinnum á dag.“
ÍSBJARNARBLÚS 1980
Textar Bubba á plötunni
voru byltingarkenndir.
Bubbi sýndi að ekki
aðeins var hægt var að
semja íslenska texta um
íslenskan raunveruleika
á trúverðugan hátt,
heldur fór hann alla leið
í áliti sínu á þessum
raunveruleika. Reiði
hins unga rokkara og
fyrirlitningin á því órétt-
læti sem hann taldi
alþýðu landsins beitta,
þó sér í lagi farand- og
fiskverkafólk, kom
bersýnilega í ljós.
FINGRAFÖR 1983
Með hljómsveitinni Egó
og sólóplötunni Fingra-
för náði Bubbi auknum
vinsældum almennings
og seldust plötur hans
og sveitarinnar í stærra
upplagi en hann hafði
áður þekkt. Á árunum
1984 til 1985 lifði
Bubbi sígandi lukku lífs
síns og orðspor lista-
mannsins fylgdi á þeirri
niðurleið.
KONA 1985
Bubbi safnaði nýjum
þrótti og kom fram,
með sterkari texta
en nokkru sinni fyrr
á plötunni Kona. Frá
þeirri stund hefur leið
listamannsins Bubba
legið upp á við.
FRELSI TIL SÖLU 1987
Samningur hans við
sænska útgefandann
Mislur, gaf Bubba tækifæri
til að gera rokkplötu eins
og þær gerast bestar.
Frelsi til sölu sló í gegn.
Vinsældir Bubba og hljóm-
sveitarinnar MX-21 sem
hann stofnaði til að fylgja
plötunni eftir voru miklar.
Platan markaði einnig
tímamót í íslenskri útgáfu
því hún varð fyrsta platan
sem kom út á geisladiski.
VON 1992
Bubbi hafði árið 1990
starfað sem tónlistar-
maður í heilan áratug og
lengst af þann tíma verið
einn vinsælasti tónlistar-
maður landsins en um
leið sá umdeildasti. Þessi
staðreynd gaf honum
tækifæri til að láta gamla
drauma rætast. Einn
þeirra var að gera plötu
undir spænskum og/eða
suðuramerískum áhrifum
og það gerðist með
plötunni Von. Bubbi hélt
til Kúbu þar sem grunnar
hennar voru hljóðrit-
aðir með þarlendri sveit;
Sierra Mastera.
NÝBÚINN 2001
Árið 2001 var Bubbi í
rokkgír með Stríð og frið
og sendi frá sér plötuna
Nýbúinn. Platan vakti
umtal, sérstaklega titillag
plötunnar en með því
vildi Bubbi vekja fólk
til umhugsunar á þeim
rasisma sem virtist vera
að skjóta upp rótum
hér á landi. Myndbandi
við lagið var einnig
gert að sæta skoðun
yfirvalda til að athuga
hvort lög um íslenska
þjóðfánann hefðu verið
brotin.
06.06.06. 2006
Bubbi Morthens varð
fimmtugur og fagnaði
áfanganum með stór-
tónleikum í Laugar-
dalshöll. Ásamt Bubba
komu fram allar þær
hljómsveitir sem hann
hefur stofnað og gefið
hafa út efni: EGÓ,
GCD, MX-21, UTAN-
GARÐSMENN, DAS
KAPITAL og STRÍÐ OG
FRIÐUR. Tónleikarnir
voru sendir beint út til
þjóðarinnar og komu
síðan út á DVD og
geislaplötu fyrir jólin og
náðu metsölu.
ÆSKU MINNAR JÓL 2013
Fyrsta jólaplatan sem
Bubbi sendir frá sér á
meira en þrjátíu ára ferli.
Yrkisefni Bubba eru jólin
út frá sjónarhóli barns. Á
plötunni er að finna hið
sígilda jólalag Hátíð í bæ
sem Haukur Morthens,
föðurbróðir Bubba, gerði
frægt.
HÁPUNKTAR Á FERLI BUBBA2
BREYTTUR MAÐUR „Ég laug að þjóðinni, ég laug að vinum mínum og ég laug að
sjálfum mér.“ FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN