Fréttablaðið - 30.11.2013, Blaðsíða 4
30. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 4
gæti kostað að koma upp háhraðalest
milli Keflavíkur og Reykjavíkur.
E-töflur hafa verið gerðar
upptækar í tollinum það
sem af er ári.
ÖRYGGISMÁL Eftirlitsmyndavélum í íslenskum
leigubílum hefur fjölgað mikið að undanförnu
og eru þær á bilinu sextíu til eitt hundrað
talsins, flestar á höfuðborgarsvæðinu, sam-
kvæmt ágiskun Ástgeirs Þorsteinssonar, for-
manns Bandalags íslenskra leigubifreiða-
stjóra. Alls eru 587 leigubílar í umferð á
númerum á höfuðborgarsvæðinu í dag sam-
kvæmt upplýsingum frá Samgöngustofu.
„Menn hafa orðið varir við það að ef fólk
veit af myndavélunum, þá hagar það sér
öðruvísi,“ segir Ástgeir, spurður hvort leigu-
bílstjórar hafi fundið fyrir auknu öryggi
með myndavélunum „Þetta hefur ákveðinn
fælingarmátt.“
Myndavélarnar fást hér á landi og kostar
stykkið á bilinu fimmtíu til eitt hundrað þús-
und krónur. Leigubílstjórarnir þurfa sjálfir
að kaupa þennan eftirlitsbúnað, enda eru þeir
einyrkjar.
Árásum á leigubílstjóra hefur fjölgað tölu-
vert og með notkun myndavélanna vilja menn
sporna við þeirri þróun. Oft tengjast árás-
irnar fíkniefnaneytendum. Að sögn Ástgeirs
verða leigubílstjórar meira varir við þá á
næturnar í miðri viku enda sé hinn almenni
maður ekkert á ferli þá.
Hann segir öðruvísi að keyra fíkniefna-
neytendur en drykkjufólk. „Þetta er ekkert
eins og var hér áður fyrr þegar menn voru
eingöngu að keyra drukkið fólk. Þá var yfir-
leitt hægt að tala menn til en almennt taka
menn engan „séns“ á því í dag. Menn geta
aldrei áttað sig á ástandi farþega og menn
eru hálfruglaðir undir áhrifum. Oft er betra
að reyna að losa sig við farþegana. Þetta
hefur samt ekki verið neitt stórvandamál.“
Þeir sem vilja gerast leigubílstjórar þurfa
í dag að undirgangast námskeið á vegum
Samgöngustofu þar sem fulltrúi frá fíkni-
efnadeild lögreglunnar fer yfir hvað er best
að gera þegar fíkniefnaneytendur stíga inn í
leigubíla.
Starfsmenn Hreyfils sem lenda í vandræð-
um geta látið lögregluna vita með því að ýta
á neyðarhnapp í bíl sínum. Staðsetningartæki
lætur lögregluna vita hvar þeir eru staddir
og þurfa þeir því ekki að segja aukatekið orð
þurfi þeir á hjálp að halda. freyr@frettabladid.is
Eftirlitsvélar í 100 leigubíla
Eftirlitsmyndavélum hefur fjölgað mikið í íslenskum leigubílum. Leigubílstjórar finna fyrir auknu öryggi þar
sem fólk hagi sér öðruvísi þegar myndavél er til staðar. Árásir á leigubílstjóra tengjast oft fíkniefnaneytendum.
AUKIÐ ÖRYGGI
Ástgeir Þorsteins-
son segir að leigu-
bílstjórar með eftir-
litsmyndavélar finni
fyrir auknu öryggi í
starfi sínu.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Menn
hafa orðið
varir við það
að ef fólk veit
af myndavél-
unum þá
hagar það sér
öðruvísi
Ástgeir Þorsteinsson,
formaður
Bandalags íslenskra
leigubifreiðarstjóra
Daníel Einarsson borgaði hátt í 100 þúsund krónur fyrir eftirlits-
myndavél í leigubílinn sinn fyrir þremur mánuðum. Hann segir
andrúmsloftið í bílnum hafa breyst við það. „Fólk er ekki eins
mikið að rífa kjaft upp úr þurru og hættir að gleyma veskinu og
svona.“
Hann lenti eitt sinn í því að málbandi var vafið utan um hálsinn
á honum. „Mér brá heldur. Það var maður sem sat fyrir aftan mig
sem hengdi málbandið á mig. Þegar ég reyndi að losa strekkti
hann,“ segir Daníel, sem hefur verið leigubílstjóri í tólf ár. „Þetta
á að vera sniðugt og fínt en þegar fólk er í glasi gerir það sér ekki
grein fyrir hættunni sem það er að stofna bílnum í, það er bara í
öðrum heimi. Þegar djammklukkan slær hjá Íslendingum þá allt í
einu má allt sem mátti ekki áður.“
Hann veit dæmi þess að fólk hafi hringt og pantað sér fíkniefni
úr bílnum hans. „Það er að spyrja hvort það eigi stuð. Svo er það
með peninga fyrir stuðinu og er ekki með peninga fyrir bílnum, en
núna er þetta allt á myndavél með hljóði.“
Daníel er sammála því að heimurinn sé að harðna þegar vímuefnaneytendur í leigubílum eru
annars vegar. „Maður veit ekkert á hvaða efnum fólk er. Það getur „snappað“ allt í einu.“
Málbandi vafið utan um hálsinn
MYNDAVÉL Eftirlitsmyndavélum í
leigubílum hefur fjölgað mikið á höfuð-
borgarsvæðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
snjallsíma af tegundunum
iPhone 5c og 5s seldi
Apple á fyrstu þremur
dögunum sem símarnir
voru til sölu.
talsins árið 2024 ef
áætlanir ganga eftir.
af fiskhausum eftir
veiðiferð á Vestfjarðamið.
Þeir fara á markað
þurrkaðir og frystir.
grunnskólanemendur frá 23
skólum tóku þátt í Skrekk
2013. Það var Langholtsskóli
sem fór með sigur af hólmi.
✥
❄
✼
❦
e 830100 tonnum
40.000
9 milljónir
70.000 tonn
102
milljónir
14.000
106.000.000.000 kr.
Togarinn Örfirisey RE, skip
HB Granda, landaði um
Íbúar Kópavogs verða
af síld voru talin
vera innan brúar
í Kolgrafafirði á
fimmtudag þegar
Landhelgisgæslan nýtti
smásprengjur í tilraun til
að fæla hana á brott.
EFNAHAGSMÁL Alls voru 117
fyrir tæki tekin til gjaldþrota-
skipta í októbermánuði, að því er
fram kemur í nýjum tölum Hag-
stofu Íslands.
„Fyrstu tíu mánuði ársins var
fjöldi gjaldþrota 787, en það er
13,6 prósenta fækkun frá sama
tímabili í fyrra þegar 911 fyrir-
tæki voru tekin til gjaldþrota-
skipta,“ segir á vef Hagstofunnar.
Fram kemur að flest gjaldþrot
það sem af er ári séu í flokknum
heild- og smásöluverslun og öku-
tækjaviðgerðir. Þar eru þau 162,
eða rúmur fimmtungur. - óká
Gjaldþrot eru 13,6% færri:
Flest gjaldþrot í
smásöluverslun
KÖNNUN Um 43,1 prósent lands-
manna styður ríkisstjórnina sam-
kvæmt skoðanakönnun MMR. Það
er lítils háttar lækkun frá síðustu
könnun þar sem stuðningurinn
mældist 44,6 prósent.
Litlar breytingar eru á fylgi
flokka milli kannana. Sjálfstæðis-
flokkur mælist með 26,8 prósenta
fylgi. Björt framtíð er með 15,2
prósent og Framsóknarflokkurinn
mælist með 15 prósent. Alls segj-
ast 13,8 prósent styðja Samfylk-
ingu og 12,6 prósent VG. Þá segj-
ast níu prósent styðja Pírata og 7,4
prósent nefna aðra flokka. - bj
Ný skoðanakönnun MMR:
Færri styðja
ríkisstjórnina
KVARÐINN LESINN Hart virðist í ári
á verkstæðum fyrir vélknúin ökutæki.
NORDICPHOTOS/AFP
23.11.2013 ➜ 28.11.2013
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn
Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigrún Kristinsdóttir sigrunp@365.is, Sigurjón Viðar Friðriksson sigurjon@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir
elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Steinunn Sandra Guðmundsdóttir ssg@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Jólaþorpið í Hafnarfirði er opið
allar aðventuhelgar kl. 12-17
19. og 20. desember kl. 16-21
Þorláksmessu kl. 16-21
Dagskrá, myndir o.fl.
á Facebook
3.000.000
manns höfðu hlaðið niður spurningaleikn-
um QuizUp í byrjun þessarar viku. Áhugi
erlendra fjárfesta á leikjafyrirtækinu Plain
Vanilla er mikill í kjölfar vinsælda leiksins.
króna voru óinn-
heimtar viðskipta-
kröfur Landspítalans
á einstaklinga í júní.
Veðurspá
Mánudagur
10-18 m/s V-til, annars hægari.
HVASSVIÐRI Það verður ekkert sérstaklega jólalegt þessa fyrstu helgi í aðventu. Víða
allhvasst eða hvassviðri en hægari NA-til framan af degi á morgun. Skúrir eða él V- og
NV- til í dag og rigning S- og V- lands á morgun.
3°
15
m/s
4°
15
m/s
4°
12
m/s
5°
15
m/s
Á morgun
15-20 m/s, hægari A-til framan af degi.
Gildistími korta er um hádegi
1°
-1°
-2°
-3°
-4°
Alicante
Basel
Berlín
18°
4°
4°
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
5°
5°
2°
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
6°
6°
23°
London
Mallorca
New York
7°
14°
3°
Orlando
Ósló
París
24°
1°
9°
San Francisco
Stokkhólmur
17°
3°
4°
9
m/s
5°
13
m/s
4°
9
m/s
3°
12
m/s
4°
8
m/s
2°
14
m/s
-1°
11
m/s
8°
4°
5°
5°
6°
Snjólaug Ólafsdóttir
veðurfréttamaður