Fréttablaðið - 30.11.2013, Blaðsíða 136
30. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 96
Gjörningar
18.00 Á laugardaginn mun Ásdís Sif
Gunnarsdóttir myndlistarkona sýna
stóra myndbandsinnsetningu utan-
dyra.
Innsetningin mun standa eina
kvöldstund en einnig verður bein
útsending í 15 mínútur frá kl. 18.00.
Tónleikar
16.00 350 dansarar á öllum aldri
dansa við kröftugan undirleik
Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands
30. nóvember kl. 16.00 og 19.30 í
sýningunni Hnotubrjóturinn í Hofi:
Litríkt jólaævintýri.
22.00 Á laugrdaginn heldur Kaleo
útgáfutónleika á Græna hattinum kl.
22.00 Miðaverð 2.000 kr.
22.00 Plow, Why Not Jack, Tundra
og Godhillca koma fram á Bar 11
laugardagskvöld á hátíðinni Fuzz Fest.
Dagskrá hefst klukkan 22.00.
22.00 Tilbury, Útgáfutónleikar á
Græna hattinum kl. 22.00 Miðaverð
2.000 kr.
22.00 Laugardaginn 30. nóvember
mun hljómsveitin Sudden Weather
Change halda sína síðustu tónleika.
Hljómsveitin hefur verið starfandi
frá 2006 og á sjö ára ferli hefur hún
gefið út 6 plötur. Tónleikarnir verða á
Gamla Gauk og opnar húsið kl. 22.00.
Markús & The Diversion Sessions
sér um upphitun. Þúsund krónur
aðgangseyrir og diskar á tilboði.
23.00 Sváfnir Sigurðarson skemmtir á
Ob-La-Dí-Ob-La-Da,Frakkastíg 8.Laug-
ardaginn 30. nóvember kl. 23.00.
Listasmiðja
12.00 Vegna síendurtekinna fyrir-
spurna opna listamenn og hönnuðir í
Flóru vinnustofur sínar næstkomandi
laugardag 30. nóvember kl. 12-16.
Aðgangur er ókeypis, allir velkomnir.
Sýningar
15.00 Laugardaginn 30. nóvember kl.
15:00 verður opnuð í listasafni ASÍ
sýning á verkum Tuma Magnússonar
og Michael Mørk. Sýningin nefnist Á
staðnum, en báðir listamennirnir ganga
oft út frá eigindum staðarins í verkum
sínum.
Hátíðir
13.00 Minjasafnið á Akureyri opnar
jólasýningu laugardaginn 30. nóvember
kl 13. Í aðalhlutverki eru 82 hrekkjóttir
íslenskir jólasveinar, skógur gamalla
jólatrjáa, jólaskraut, spennandi jóla-
sveinaveröld og rannsóknarstofa
jólasveina.
14.00 Aðventuhátíð Kópavogsbæjar
verður haldin laugardaginn 30. nóvem-
ber þar sem jólaljósin á vinabæjartrénu
á Hálsatorgi verða tendruð.
Dansleikir
11.00 Nemendur og kennarar SalsaIce-
land munu á laugardag dansa til
styrktar Barnaspítala Hringsins í dans-
stúdíó okkar á Grensásvegi 12a. Einnig
verður boðið upp á tíma fyrir byrjendur,
ekki er þörf að mæta með dansfélaga.
Dagskrá hefst klukkan 11.00.
Markaðir
11.00 Jólabasar
Kattholts verður
laugardaginn 30.
nóvember milli
klukkan 11 og 16.
Margt góðra muna
verður á boð-
stólum, jólakort,
handunnið
jólaskraut, kerti og
fleira sem tengist
jólum. Allur ágóði
fer til styrktar
óskilakisum í
Kattholti.
Tónleikar
16.00 Tónleikar Harmoniku-
félags Reykjavíkur í Ráðhúsinu við
Vonarstræti verða laugardaginn nk.
kl. 16.00. Titill tónleikanna er Dagur
harmonikunnar.
17.00 Jólatónlistarhátíð Hallgríms-
kirkju 2013 hefst næsta sunnudag
þann 1. desember. Upphafstón-
leikarnir eru aðventutónleikar
kammerkórsins Schola cantorum, sem
flytur glæsilega efnisskrá með undir-
leikslausri kórtónlist sem spannar stef
aðventu og jóla. Tónleikarnir hefjast
klukkan 17.00.
17.00 Stórsveit Reykjavíkur heldur
árlega jólatónleika sína í Silfurbergi,
Hörpu sunnudaginn 1. desember kl.
17. Einsöngvari verður hinn dularfulli
og ástæli Bogomil Font en stjórnandi
verður Samúel J. Samúelsson. Flutt
verður öll tónlistin af hinum vinsæla
geisladiski Majonesjól sem kom út
2006. Tónleikarnir verða rúmlega
klukkustundarlangir, án hlés. Þeir eru
ætlaðir fjölskyldufólki á öllum aldri.
Miðaverð er kr. 3.500 fyrir fullorðna
en aðeins kr 1.500 fyrir börn.
17.00 Laugardag kl. 17 opnar sýning á
margrómuðu verki Ragnars Kjartans-
son, The Visitors, í Kling & Bang
gallerí, Reykjavík í samstarfi við Thys-
sen-Bornemisza Art Contemporary,
Vínarborg.
17.00 Andrea Jónsdóttir leikur og
kynnir lög af hljómplötum á Ob-La-Dí-
Ob-La-Da, Frakkastíg 8.
Leiklist
14.00 Möguleikhúsið sýnir jóla-
leikritið Hvar er Stekkjarstaur?eftir
Pétur Eggerz í Menningarmiðstöðinni
Gerðubergi sunnudag kl. 14.00.
14.00 Sunnudaginn 1. desember kl.
14 frumsýnir Stoppleikhópurinn jóla-
leikritið Sigga og skessan í jólaskapi í
Ársafni, Hraunbæ 119. Leikritið byggir
á sögum Herdísar Egilsdóttur um þær
stöllur og er ætlað börnum á aldrinum
2-9 ára.
Fræðsla
15.00 Kínakynning vegna 60 ára
afmælis KÍM og næstu ferðar Kína-
klúbbs Unnar til Kína/Tíbet, á Njálsgötu
33. Sýndar verða myndir, drukkið te og
borðaðar piparkökur. Allir velkomnir,
enginn aðgangseyrir.
Sýningar
11.00 Sunnudaginn 1. desember, opnar
sýning Húberts Nóa Jóhannessonar,
Leiðarstjörnur undir nafninu Celestial
navigation, í safnaðarheimili Neskirkju.
Sýningin verður opnuð að lokinni
messu sem hefst kl. 11.
Hátíðir
11.00 Á sunnudag verða tvær athafnir
í Breiðholtskirkju í Mjódd: Kl. 11 verður
fjölskylduguðsþjónusta og kl. 20 verður
síðan haldin hin árlega aðventuhátíð
Breiðholtssafnaðar.
16.00 Ljósin verða tendruð á Óslóar-
trénu á Austurvelli, á sunnudaginn
kl.16 Fyrir hönd Reykvíkinga mun Jón
Gnarr veita grenitrénu viðtöku úr hendi
Dag Wernø Holter sendiherra Noregs
og Rinu Marin Hansen, borgarfulltrúa
Verkamannaflokksins í Ósló.
Opið hús
10.00 Á sunnudaginn er aðgangur að
Þjóðminjasafni Íslands ókeypis. Jólasýn-
ingar safnsins verða opnar og gestum
boðið að taka þátt í jólaratleiknum,
Hvar er jólakötturinn?
Kvikmyndir
15.00 Gulleyjan (Ostrov sokrovistsj),
sovésk kvikmynd frá 1971,
sem er byggð á samnefndri skáldsögu
skoska rithöfundarins Roberts Louis
Stevenson (1850-1894) verður sýnd í
MÍR, Hverfisgötu 105. Leikstjóri mynd-
arinnar er Jevgeníj Fridman. Myndin
er á rússnesku en með enskum texta.
Aðgangur ókeypis.
Dansleikir
20.00 Dansað verður i félagsheimili
eldri borgara i Stangarhyl 4 i Reykjavík
næstkomandi sunnudagskvöld kl.
20.00-23.00. Danshljómsveitin Klassík
leikur fyrir dansi. Aðgangseyrir er 1.500
kr. fyrir félagsmenn en 1.800 fyrir gesti.
Allir velkomnir.
Listamannaspjall
15.00 Sunnudaginn 1. desember kl. 15
mun Þorbjörg Br. Gunnarsdóttir ræða
við gesti um sýninguna Dvalið hjá
djúpu vatni í Hafnarborg.
Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@
frettabladid.is
LAUGARDAGUR
30. NÓVEMBER
SUNNUDAGUR
31. NÓVEMBER
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
KÆRU ÍSLENSKU AUKALEIKARAR,
VIÐ HJÁ GAME OF THRONES VILJUM ÞAKKA YKKUR FYRIR
ÞÁTTTÖKUNA Í 4. ÞÁTTARÖÐINNI OKKAR.
VIÐ KUNNUM VEL AÐ META ÁHUGA YKKAR, DUGNAÐ OG JÁKVÆÐNI.
MEÐ EINLÆGUM ÞÖKKUM FRÁ OKKUR ÖLLUM,
THE DRAGON UNIT - GAME OF THRONES