Fréttablaðið - 30.11.2013, Blaðsíða 50
30. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 50
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
Það hefur alltaf verið keppikefli okkar á VA arkitektum að gera byggingar góðar fyrir manneskjur og tillits-samar við umhverfi sitt
og náttúru. Nú eru bara komin
ákveðin orð yfir þá stefnu: sjálf-
bært og vistvænt.“ Þetta segir
Anna Sigríður Jóhannsdóttir, arki-
tekt hjá VA arkitektum. Hún og
félagar hennar á stofunni, í sam-
vinnu við Landmótun og Verk-
ís, sigruðu í samkeppni Nordic
Built um vistvæna endurhönnun
á Höfðabakka 9 í Reykjavík. Aðal-
hugmyndafræði í tillögu þeirra er
að skapa atvinnusvæði þar sem
lögð er áhersla á náttúruleg gæði
sem stuðla að aukinni vellíðan
fólks sem þar starfar.
Íslensk náttúruöfl í borginni
„Þetta var tveggja þrepa keppni.
Átján tillögur bárust í fyrri hlut-
ann, víða að úr heiminum. Fjór-
ar þeirra voru valdar úr og við
áttum eina þeirra sem við nefnd-
um Grænhöfða. Við unnum áfram
með hana og stóðum uppi sem sig-
urvegarar,“ segir Anna Sigríður
og er ekki í vafa um að staðþekk-
ing hafi haft þar sitt að segja.
„Í vistvænum arkitektúr leggja
aðrar Evrópuþjóðir og Banda-
ríkjamenn ofuráherslu á orku-
og vatnssparnað af illri nauðsyn.
Víða er notað rigningarvatn af
þökum í klósettin en ekki neyslu-
vatn eins og hér. Við búum við
gnægð vatns og vistvæna, ódýra
orku ennþá og því höfum við tæki-
færi til að sinna öðrum atriðum
betur, eins og að skapa heilsusam-
legt umhverfi. Það hefur keðju-
verkandi áhrif á samfélagsrekst-
urinn, veikindadögum fækkar,
kostnaður við heilbrigðisþjónustu
lækkar, afköst aukast og arðsemi
fyrirtækja batnar.“
Anna Sigríður telur að þó við
Íslendingar séum með tiltölu-
lega hreint loft og ódýra raforku
getum við ekki umgengist efnivið
og fjármuni eins og alltaf sé nóg
til. Til dæmis þurfi að endurnýta
orku eins og unnt er og draga úr
umferð bíla, bæði vegna mengunar
og kostnaðar. Hún segir nauðsyn-
legt að vinna með íslensk náttúru-
öfl í borginni og skapa eftirsókn-
arvert umhverfi. Gera gangandi
fólki hærra undir höfði en hingað
til hefur verið gert, þannig að við
getum öll ferðast um á þægilegan
máta, hvort sem við erum akandi,
gangandi eða hjólandi. Með því að
taka tillit til íslensks veðurfars og
loftslags og vinna úr því á vist-
vænan hátt sé markvist dregið
úr viðhalds- og rekstrarkostnaði
bygginga. Einnig verði að huga að
förgunarkostnaði. „Við tökum þátt
í alþjóðasamfélagi og verðum að
tryggja að auðvelt sé að endurnýta
efni sem við flytjum inn í landið
og farga þeim á vistvænan máta,“
tekur hún fram.
Meira og meira gaman
Þá snúum við okkur aftur að
Höfðabakka 9. Anna Sigríður
segir það hafa verið frábæra
áskorun að fá að gera tillögu að
endurnýjun svæðisins á vistvæn-
an hátt. En eru ekki alls konar
efni í aðalbyggingunni skaðleg
umhverfinu ef út í það er farið?
„Eflaust en það er heldur ekki
vistvænt að rífa niður það sem
þegar er komið enda er það ekki
markmiðið,“ svarar hún og segir
augljóst að meðal stórra verkefna
arkitekta í framtíðinni verði að
endurhanna byggingar sem búið
er að reisa og annaðhvort eru
komnar á viðhaldstíma eða þurfa
að fá nýjan tilgang. Það verði að
gerast á umhverfisvænan máta.
Höfuðáherslan var á stóru
bogabygginguna á Höfðabakka 9
í fyrri hluta samkeppninnar, að
sögn Önnu Sigríðar en í framhald-
inu var farið að skoða stóra sam-
hengið. „Þá fengum við Landmót-
un, landslagsarkitekta til aðstoðar
við hönnun lóðarinnar og verk-
efnið óx í höndunum á okkur, allt-
af varð meira og meira gaman og
við sáum fleiri og meira spennandi
möguleika á hönnun í vistvænum
anda,“ lýsir hún.
Bogabyggingin er há og oft rok
inni í kringlunni. „Við Íslendingar
þurfum alltaf að taka tillit til þess
að hér er vindasamt og háar bygg-
ingar mynda sterka hvirfla. Því
gerum við ráð fyrir nýrri bygg-
ingu á tveimur hæðum sem bæði
verður inngangur og dregur úr
vindsveipum. Á neðri hæð yrði
sameiginleg matsala fyrir allt
svæðið og á þeirri efri vinnuað-
staða fyrir smærri hópa, svipuð
og í háskólabyggingum. Einnig
er lagt til að bæta tveimur létt-
byggðum hæðum ofan á boga-
bygginguna með þakgörðum sem
gefa útsýni og aðgengi að grænum
svæðum og kost á samveru fyrir
starfsfólk. Til viðbótar setjum
við minni viðbyggingar ofan á
lágu bygginguna á móti, til að
Hlýleg vin í hörðu borgarumhverfi
Dagsbirta og náttúruleg loft ræsting, skjól fyrir vindi og umferðargný, aukinn gróður og aðlaðandi staðir til samveru starfsfólks, utan
húss og innan. Allt eru þetta áberandi þættir í verðlaunatillögu VA arkitekta og samstarfsfólks um endurhönnun á Höfðabakka 9.
ANNA SIGRÍÐUR „Allir hagnast á vistvænum hugsunarhætti, rekstraraðilar, vinnandi fólk og ekki síst framtíðin,“ segir hún. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FRAMTÍÐ OG NÚTÍÐ Verðlaunatillagan gerir ráð fyrir nýrri forbyggingu sem á að hýsa inngang og veitingastað, auk þess að draga úr vindsveipum við dyrnar. Svo á að færa bílana undir stéttina og inn í hól.