Fréttablaðið - 30.11.2013, Blaðsíða 144
30. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 104
Leikskólabörn í Hafnarfirði tóku þátt í jólaundirbúningi í bænum,
en þau skreyttu húsin fyrir árlega opnun Jólaþorpsins þar í bæ. Jóla-
þorpið verður opnað formlega á laugardaginn í ellefta sinn.
„Jólaþorpið er að stækka og stækka,“ segir Marín Guðrún Hrafns-
dóttir, menningar- og ferðamálafulltrúi Hafnarfjarðarbæjar. Hún
segir að mikið samstarf við kaupmenn í Hafnarfirði hjálpi til. „Við
erum í raun að reyna að búa til jólaheim og Jólaþorpið er hjartað. Við
erum að reyna að samtvinna jólastemninguna í miðbænum og Firðin-
um saman við jólaþorpið sem er á Thorsplani. Við verðum með flotta
leiki í samstarfi við kaupmennina og getur fólk unnið veglega vinn-
inga.“
Þorpið hefur vaxið undanfarin ár og notið mikilla vinsælda. „Nú í
ár er algjör metaðsókn, margir vilja vera með hús í þorpinu. Það er
ljóst að við þurfum að fjölga húsum eða fjölga opnunardögum. Lík-
lega komast færri að en vilja,“ segir Marín.
Dagskráin er sniðin fyrir alla fjölskylduna, að sögn Marínar. „Við
reynum alltaf að vera með eitthvað sem höfðar til yngstu barnanna,
hvort sem það eru jólasveinaheimsóknir eða eitthvað annað. Við verð-
um með dagskrá allar helgar fram að jólum, mest á milli 13 til 16, en
annars verður alltaf eitthvað um að vera þarna, lifandi tónlist og fín
stemning.“
Athygli vekur að einhver vinsælasta vara þorpsins verður tekin úr
beinni sölu. „Ein breytingin sem gerð hefur verið er að hætta að selja
heitt kakó. Í staðinn mun Rauði krossinn vera með svokallaðar kakó-
stöðvar víðsvegar um miðbæinn og getur fólk fengið sér kakó þar, án
endurgjalds. Í staðinn verður tekið við frjálsum framlögum sem renna
óskipt til Rauða krossins,“ útskýrir Marín. Jólaþorpið í Hafnarfirði
verður opnað formlega klukkan 12 á laugardaginn og nær dagskráin
þann dag hámarki þegar jólatréð frá Fredriksberg, vinabæ Hafnar-
fjarðar í Noregi, verður tendrað klukkan 17. kjartanatli@frettabladid.is
Jólaþorpið í Hafnarfi rði skreytt af leikskólabörnum
Jólaþorpið í Hafnarfi rði opnað með formlegum hætti í 11. sinn á laugardaginn. Metskráning er í sölubása og færri komast að en vilja.
JÓLASTEMNING Marín er í skýjunum yfir
Jólaþorpinu sem stækkar með hverju árinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Andefnabúðin er titill á safndisk
með alls kyns andefni sem ekki
hefur ratað inn á stúdíóplötur
hljómsveitarinnar Ghostigital.
Andefnabúðin er full af
skemmtilegu góðgæti, eins og
„remixum,“ samstarfsverkefn-
um og einstæðum og einstökum
villilömbum. Tónlist Ghostigi-
tal er skoðuð frá annarri hlið í
fjörugum endurhljóðblöndunum
helstu danshljómsveita landsins
og forvitnileg samstarfsverkefni
dregin í sviðsljósið.
„Stundum eru þetta „remix“ af
okkar lögum eftir aðra listamenn
á borð við Gus Gus og Captain
Fufanu, eða „remix“ eftir okkur
af lögum eftir aðra eins og Björk.
Svo er slatti af samstarfsverkefn-
um, líkt og með Sóleyju og Skúla
Sverrissyni,“ segir Curver Thor-
oddsen meðlimur sveitarinnar.
Síðastliðin ellefu ár hefur
Ghostigital heillað, hrellt og hrist
upp í íslensku tónlistarlífi með
afdráttarlausri og uppátækja-
samri tónlist sinni.
Herlegheitin hefjast með glæsi-
brag klukkan 21.00 í kvöld. - glp
Opin búð á
Kex í kvöld
ALLT OPIÐ Ghostigital opnar
Andefnabúð í kvöld.
Árlegur jólamarkaður Barna-
heimilisins Óss verður haldinn
í dag, laugardag. Húsið verður
opnað klukkan 13 og stendur
markaðurinn til klukkan 18. Á
markaðinum mun kenna ýmissa
grasa og geta gestir gert góð
kaup á barnafötum, heimilisvör-
um, glingri og góssi. Þá verður
einnig jólaglögg á boðstólum.
Barnaheimilið Ós á sér langa
sögu en leikskólinn er til húsa í
hjarta Reykjavíkur, á Bergþóru-
götunni. Allur ágóði af jóla-
markaðinum rennur til barna-
heimilisins. - lkg
Árlegur
jólamarkaður
JÓLASTEMNING Allur ágóði rennur til
barnaheimilisins Óss. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM