Fréttablaðið - 30.11.2013, Blaðsíða 152
30. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| SPORT | 112
Blóð, sviti og tár fóru í bekkinn
„Það er búið að leggja blóð, svita og tár í þennan bekk. Þetta er skýringin
á því að við höfum tapað þessum leikjum,“ segir Jón Heiðar Gunnarsson,
línumaður ÍR-inga. „Við höfum unnið öll kvöld að því að smíða þennan
bekk með hjálp frá strætó og BYKO sem útveguðu hráefnið,“ segir Jón
Heiðar. Hann nefnir þjálfarann Bjarka Sigurðsson sérstaklega til sögunnar.
„Bjarki, sem vinnur sem blaðberi í hlutastarfi, hefur unnið myrkrana á
milli að smíða þetta. Nú er bekkurinn kominn og sigurinn kominn og við
getum haldið áfram á réttri braut,“ segir Jón Heiðar kíminn.
HANDBOLTI „Mér fannst þetta
óíþróttamannsleg framkoma gagn-
vart gestaliðinu,“ segir Guðjón L.
Sigurðsson, eftirlitsdómari á við-
ureign ÍR og HK í efstu deild karla
á fimmtudaginn. Heimamenn unnu
36-30 sigur en í leiknum vígðu þeir
nýjan varamannabekk sem vakti
mikla athygli. Síðari bekkurinn
er í smíðum en var ekki klár á
fimmtudagskvöldið.
ÍR-ingar sátu á bekknum í fyrri
hálfleik og létu fara vel um sig. Lið
í handbolta hafa sætaskipti í hálf-
leik og ákváðu ÍR-ingar að nýta
tækifærið og víxla á bekkjum.
Guðjón tók það ekki í mál.
„Ég var búinn að nefna þetta við
þá fyrir leik. Mér fannst í góðu
lagi að nota bekkina en það þýddi
ekkert að víxla þeim í hálfleik,“
segir Guðjón. Hann nýtti tæki-
færið eins og fleiri í hálfleik, fór
fram í veitingasöluna og fékk sér
pylsu.
Frussaði næstum pulsunni
„Ég var næstum því búinn að
frussa henni út úr mér þegar ég sá
þetta,“ segir Guðjón sem var ekki
sáttur þegar hann sá að ÍR-ingar
voru búnir að víxla bekkjunum
eftir allt saman í hálfleik. Hann
segir vissulega ekkert í reglum að
bekkir þurfi að vera eins beggja
vegna. Í hans huga snúist þetta
einfaldlega um heilbrigða skyn-
semi.
„Það hefur ekki reynt á þetta
áður,“ segir Guðjón sem trúir
ekki að aðrir eftirlitsmenn hefðu
leyft ÍR-ingum að víxla bekkjum.
Honum finnst hins vegar framtak
ÍR-inga til fyrirmyndar enda kom-
inn tími til að félög hugsi sinn gang
varðandi varamannabekki sína.
„Ég hef verið að hnýta aðeins í
félögin varðandi þessa trébekki.
Þeir eru ekki bjóðandi íþrótta-
mönnum í heilan leik og eru hrein-
lega dónaskapur,“ segir Guðjón.
Bekkirnir séu alltof lágir og veiti
engan stuðning. Guðjón er reynd-
ur á alþjóðavettvangi þar sem alla-
jafna er boðið upp á sæti, ýmist
með örmum eða ekki.
Flott framtak hjá Breiðhyltingum
Guðjón segir ÍR-inga þó aðeins
þurfa að laga bekkina sína til.
Þannig þurfi að vera fjórtán sæti
á hvorum bekk en voru ellefu á
fimmtudaginn.
„Ég hrósa þeim fyrir framtak-
ið. Þetta var flott hjá þeim.“
kolbeinntumi@frettabladid.is
SPORT
LEIKIR HELGARINNAR
LAUGARDAGUR
15.00 CARDIFF - ARSENAL SPORT 2
15.00 EVERTON - STOKE SPORT 3
15.00 A. VILLA - SUNDERLAND SPORT 4
15.00 WEST HAM - FULHAM SPORT 5
15.00 NORWICH - C. PALACE SPORT 6
17.30 NEWCASTLE - WBA SPORT 2
SUNNUDAGUR
12.00 TOTTENH. - MAN. UTD. SPORT 2
14.05 HULL - LIVERPOOL SPORT 2
16.00 CHELSEA - SOUTHAMPT. SPORT 2
16.00 MAN. CITY - SWANSEA SPORT 3
FÓTBOLTI Það verður boðið upp á
athyglisverðan þríhöfða í ensku
úrvalsdeildinni á morgun en hann
hefst á stórleik Tottenham og
Manchester United. Gylfi Þór Sig-
urðsson og félagar hans verða á
heimavelli en þeir hvítklæddu eru
Fá Gylfi og félagar annan skell?
Arsenal getur náð sjö stiga forystu á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í dag.
GÓÐUR Í NOREGI
Gylfi lagði upp tvö
mörk fyrir Totten-
ham gegn Tromsö
og fær vonandi
tækifærið í dag.
Bekkjum mátti ei víxla
ÍR-ingar vígðu nýjan varamannabekk í sigrinum gegn HK á fi mmtudag. Aðeins
annar bekkurinn af tveimur var tilbúinn fyrir leikinn og hugðust Breiðhyltingar
færa bekkinn í hálfl eik. Það fór öfugt ofan í eft irlitsdómara leiksins.
EKKI FET Guðjón L. stóð fastur á sínu í Austurberginu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
enn að sleikja sárin eftir að
hafa tapað stórt fyrir hinu
Manchester-liðinu um síð-
ustu helgi. Tottenham sótti
þá City heim og steinlá, 6-0.
Tottenham gerði reyndar
góða ferð til Noregs
í vikunni og vann
þar 2-0 sigur á
Tromsö í Evr-
ópudeild UEFA
en Andre Vil-
las-Boas, stjóri
Tottenham, vill
sjálfsagt sanna
um helgina að
hann sé rétti
maðurinn til
að stýra liðinu.
Enskir fjölmiðlar
héldu því fram í
vikunni að starf
hans héngi á bláþræði en hann
þrætti fyrir það.
Topplið Arsenal er það
eina af efstu sex liðum
deildarinnar sem spilar í
dag er það fer í heimsókn til
Arons Einars Gunnarssonar
og félaga í Cardiff. Sigri
Arsenal fara stuðnings-
menn liðsins sjálfsagt
brosandi í rúmið í
kvöld enda með sjö
stiga forystu á toppn-
um. - esá
HANDBOLTI Ísland hafði betur gegn
Sviss, 27-26, í öðrum æfingaleik
liðanna af þremur nú um helgina.
Leikið var á Seltjarnarnesi en loka-
leikurinn fer þar fram í dag kl. 14.00.
Íslenska liðið tapaði fyrsta leiknum
með þriggja marka mun en mætti
vel stemmt til leiks í gær. Stelpurnar
voru með sex marka forystu í hálf-
leik og náðu að verða tíu mörkum
yfir um miðbik þess síðari.
Þær svissnesku rönkuðu þá við
sér og náðu að minnka muninn í
eitt mark á lokamínútu leiksins. Nær
komust gestirnir ekki og þar við sat.
- esá
Stelpurnar okkar höfðu betur gegn Sviss á Seltjarnarnesi
FRÁBÆR Í GÆR Karen Knútsdóttir skoraði tíu mörk fyrir Ísland. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HANDBOLTI Enn fjölgar í hópi þeirra leikmanna íslenska kvenna-
landsliðsins sem glíma nú við meiðsli en Rakel Dögg Bragadóttir,
leikmaður Stjörnunnar, fékk heilahristing á æfingu í gær. Hún
gat því ekki spilað með stelpunum í gær þegar þær unnu
Sviss í æfingaleik í gær.
„Það var ákveðið að taka ekki neina áhættu með hana
og það verður bara að koma í ljós hvort hún getur
spilað í dag,“ sagði Ágúst Þór Jóhannsson, þjálfari Ís-
lands, eftir leikinn í gær en Ísland mætir Sviss í dag.
Stella Sigurðardóttir meiddist á auga í fyrsta
leiknum gegn Sviss á fimmtudagskvöldið. Hún
var með lepp í gær og má ekki æfa næstu
vikuna hið minnsta.
Þá heltist Rut Jónsdóttir úr lestinni
vegna axlarmeiðsla sem hún fékk strax á
fyrstu landsliðsæfingunni fyrr í vikunni. - esá
Rakel fékk heilahristing
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
TOTTENHAM
MAN. UTD.
6 STIGA LEIKUR
– Gummi Ben
Aðeins
153
krónur fyrir
hvern leik í
desember.
Fáðu þér áskrift