Fréttablaðið - 30.11.2013, Blaðsíða 145
LAUGARDAGUR 30. nóvember 2013 | MENNING | 105
Þýski raftónlistarmaðurinn Paul
Kalkbrenner er einn þeirra lista-
manna sem koma fram á Sónar-
tónlistarhátíðinni í febrúar næst-
komandi. Fréttablaðið náði tali af
Þjóðverjanum þegar hann hámaði
í sig morgunkornið. „Ég hlakka
mikið til þess að koma til Íslands
og vona að ég nái að sjá álfa og
tröll. Ég hef heyrt að þetta sé
mikil hestaþjóð,“ segir Paul Kalk-
brenner léttur í lundu. Hann hefur
komið fram um allan heim og kom
einnig fram á Sónar-hátíðinni í
Barcelona síðastliðið sumar. Þá
var hann einnig á Sónar-tónleika-
ferðalagi um Bandaríkin.
Aðspurður hvort hann ætli að
gera eitthvað sérstakt á Íslandi
segist hann ætla að reyna að fara
í Bláa lónið og mögulega skoða
aðeins skemmtanalífið. „Konan
mín og vinur verða með í för
þannig að þau hafa auðvitað sitt
að segja um hvað við gerum á
Íslandi.“
Kalkbrenner hefur gefið út átta
plötur, sex breiðskífur, eina tón-
leikaplötu og eina „remix“-plötu.
Þessi fyrrverandi trompetleik-
ari er best þekktur fyrir lagið Sky
and Sand sem fór sigurför um Evr-
ópu árið 2009 og gaf síðast út plötu
árið 2012 og hét hún Guten Tag.
„Ég stefni á að gefa út aðra plötu
á næsta ári.“
„Ég þekki Björk, Sigur Rós og
Ásgeir Sigurvinsson,“ segir Kalk-
brenner spurður um hvort hann
viti eitthvað um Ísland. „Ég hlakka
mikið til að koma og lofa góðu
stuði.“ - glp
Vonast til þess að sjá álfa og tröll
Paul Kalkbrenner kemur hingað til lands í febrúar og spilar á Sónar-hátíðinni.
ÞEKKIR ÁSGEIR SIGURVINSSON Paul
Kalkbrenner hlakkar til að koma á Sónar
á Íslandi í febrúar. NORDICPHOTOS/GETTY
Þrjár áður óbirtar smásögur
eftir J.D. Salinger, sem skrifaði
meðal annars bókina Catcher in
the Rye, hafa lekið á internetið,
nú nokkru eftir að ólögleg prent-
uð útgáfa var boðin upp á eBay.
Þetta er í fyrsta sinn sem
smásögurnar Paula, Birthday
Boy og The Ocean Full of Bowl-
ing Balls, sem hafa um langt
skeið verið aðgengilegar á lok-
uðum bókasöfnum Prince-
ton-háskólans og University
of Texas, eru aðgengilegar
almenningi.
Smásagan The Ocean Full of
Bowling Balls er sérlega áhuga-
verð að því
leytinu til
að hún er
talin vera
óopinber
undanfari
bókarinn-
ar Catcher
in the Rye.
- ósk
Óbirt efni
Salingers lekur
Meira en tveimur árum eftir að
Demi Moore tilkynnti að hjóna-
bandi hennar og Ashtons Kutcher
væri lokið, eru þau formlega skilin.
Eftir marga mánuði af orðrómi
þess efnis að samningaviðræður
um eignaskipti væru þess valdandi
að ekki hefði verið skrifað undir
skilnaðarpappíra, komust Kutcher
og Moore loksins að samkomulagi
sem var undirritað 31. október
síðastliðinn, samkvæmt slúður-
miðlum vestanhafs.
Moore, sem er fimmtíu og eins
árs, tilkynnti í nóvember 2011 að
hún væri að skilja við Kutcher
eftir að upp komst um framhjáhald
Kutchers með Söru Leal. Kutcher
neitaði þeim ásökunum. - ósk
Loksins skilin
ÞEGAR ALLT LÉK Í LYNDI Sextán
ár skilja að Demi Moore og Ashton
Kutcher. AFP/NORDICPHOTOS
American Idol-kynnirinn Ryan
Seacrest, 38 ára, sást spóka sig um
með ljóshærðri konu í Úrúgvæ um
síðustu helgi.
Sú heppna heitir Shayna Terese
Taylor, er einnig 38 ára, og er fyr-
irsæta og einkaþjálfari. Turtildúf-
urnar fengu sér hádegismat á La
Huelle og sleiktu sólskinið aðeins.
Ryan hætti með dansaranum
Julianne Hough í mars á þessu ári
og sló sér upp í stuttan tíma með
fyrirsætunni Dominique Piek í
sumar. - lkg
Kominn
með nýja
FANN ÁSTINA Ryan virðist vera
genginn út.
JD SALINGER
Fylgstu með Sprota og vinum hans á hverjum degi til jóla
í spennandi ævintýri um listahátíðina. Sagan er skrifuð og lesin
af Felix Bergssyni og Kári Gunnarsson myndskreytir.
Ævintýrið er einnig flutt á táknmáli.
Sprotarnir eru talsmenn barnaþjónustu Landsbankans
og eru skemmtilegir og skynsamir í fjármálum.
Listahátíðin
Fylgstu með á Sproti. is