Fréttablaðið - 30.11.2013, Page 8

Fréttablaðið - 30.11.2013, Page 8
30. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 8 LÖGREGLUMÁL Íslenskur karlmað- ur búsettur í Svíþjóð játar að hafa tekið þátt í að koma svínshausum og blóðugu eintaki af Kóraninum fyrir á lóð í Sogamýri á miðviku- dag. Múslimar á Íslandi hyggjast reisa mosku á lóðinni. „Þetta er bara gjörningur. Við vorum bara að mótmæla mosku þarna,“ segir Óskar Bjarnason. Hann segir að hann sé hluti af stærri hópi og þrír menn til við- bótar hafi staðið að því að dreifa hausunum. Óskar var í viðtali við Útvarp Sögu á miðvikudag, sama dag og hausunum var komið fyrir á lóðinni. Þar játaði hann í beinni útsendingu að hafa tekið þátt í verknaðinum. Þar segir hann þó að rauður vökvi sem dreift var á lóðinni hafi verið málning, ekki svínsblóð. Í viðtalinu sagði Óskar að til- gangurinn hafi verið sá að van- helga lóðina svo múslimar vilji ekki byggja þar. Næst verði not- ast við blóð en ekki málningu. Talsmenn Félags múslima á Íslandi hafa bent á að þetta hafi engin áhrif á áform um að byggja mosku á lóðinni. Málið er rannsakað sem meint brot á þeirri grein hegningar- laga þar sem lagt er bann við hat- ursáróðri segir Benedikt Lund, fulltrúi hjá lögreglu höfuðborgar- svæðisins. Lögreglan hefur óskað eftir upptöku af viðtali Útvarps Sögu við Óskar. Hann segir að Óskar verði kall- aður til skýrslutöku og málið því næst sent ákærusviði lögreglunn- ar. Þar verði ákveðið hvort ákært verði fyrir hatursglæp. Eins og fram kom í Frétta- blaðinu í dag telur Björg Thor- arensen það blasa við að þessi verknaður teljist hatursglæpur og varði við almenn hegningar- lög. Borgarstarfsmenn hentu bæði svínshausunum og blóðugu ein- taki af síðum úr Kóraninum, trúarriti múslima, að lögreglu- mönnum ásjáandi. Benedikt segir lögreglu því ekkert hafa í hönd- unum til að staðfesta að um síður úr Kóraninum hafi verið að ræða. Ljósmyndari Fréttablaðsins tók mynd af síðunum þar sem hægt er að lesa textann og staðfesta að hann er úr Kóraninum. Myndin hefur verið send lögreglu. Óskar segir að hann hafi verið á staðnum þegar lögreglan hafi komið á vettvang í Sogamýr- inni, en lögreglan hafi ekki haft afskipti af honum. „Ég bara stóð þarna og horfði á þá.“ Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins, vildi ekki tjá sig um málið í gær, og sagðist ekki hafa kynnt sér það né vita um hvað það snúist. brjann@frettabladid.is Þetta er bara gjörning- ur. Við vorum bara að mót- mæla mosku þarna. Óskar Bjarnason Styrkir til náms og rannsókna Orkurannsóknasjóður Landsvirkjunar styrkir náms- menn og rannsóknarverkefni á sviði umhverfis- og orkumála. Til úthlutunar 2014 eru 52 milljónir króna. Styrkir til efnilegra nemenda í meistara- eða doktorsnámi á sviði umhverfis- eða orkumála. Styrkir til rannsókna á sviði umhverfis- og orkumála, veittir til að mæta kostnaði vegna vinnu sérfræðinga, þátttöku meistara- og doktorsnema og öðrum útgjöldum. Umsækjendur um styrk til rannsóknarverkefna þurfa að leggja fram lýsingu á verkefni sínu, og rökstuðning fyrir því að verkefnið tengist markmiðum sjóðsins. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar eru á www.landsvirkjun.is. Umsóknum ásamt fylgi- gögnum má skila rafrænt á orkurannsoknasjodur@ landsvirkjun.is. Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál. Umsóknarfrestur er til 9. janúar 2014. Sími: 552 2440 www.borgarbilastodin.is City taxiCity taxi Borgarbílastöðin. ehf ATH.Ekkert utanbæjargjald. eldri borgara og öryrkjar fá 20% Stgr.afslátt! KÓPAVOGUR Fulltrúar minnihlut- ans í bæjarráði Kópavogs hafa lagt til að sveitarfélagið leggist gegn frumvarpi um afturköllun nýrra náttúruverndarlaga. „Efling almannaréttar, ítrekun banns við utanvegaakstri, inn- leiðing varúðarreglunnar og aukin vernd náttúrufyrirbæra skipta öll miklu máli fyrir komandi kynslóð- ir,“ segir í tillögu Ólafs Þórs Gunn- arssonar úr VG og Péturs Ólafs- sonar úr Samfylkingu. Málinu var vísað til umsagnar hjá umhverfis- sviði og til umhverfis- og sam- göngunefndar. - gar Afturköllun náttúrulaga: Bærinn leggist gegn frumvarpi SVEITARFÉLÖG Bæjaryfirvöld í Kópavogi vilja láta skoða stórfellda aukningu sameigin- legra verkefna sveitarfélaga á höfuðborgar- svæðinu. Góð reynsla sé af sameiginlegum rekstri á borð við Sorpu og Strætó. „Sókn- arfæri eru víða og eru Samtök sveitarfélaga á höfuðborgar- svæðinu kjörinn vettvangur til að kortleggja af fullri alvöru stórfellda aukningu á samstarfi milli sveitarfélaga á höfuðborg- arsvæðinu sem hafa vart sýni- leg bæjarmörk,“ segir í tillög- unni sem lögð var fram af Pétri Ólafssyni úr Samfylkingu og bæjarráð samþykkti. - gar Samþykkt í Kópavogi: Sveitarfélög auki samstarf PÉTUR ÓLAFSSON FJÁRMÁL Rekstur Sorpeyðingar- stöðvar Suðurnesja, Kölku, hefur gengið vel að undanförnu. Sam- kvæmt Víkurfréttum hafa lán félagsins lækkað um nær sjö hundruð milljónir króna og farið úr um 1.300 milljónum króna í um 600 milljónir. Umbætur í rekstri fyrirtækis- ins ásamt því að staðfestur hefur verið nýr lánssamningur við Íslandsbanka með lækkun á lána- stöðu fyrirtækisins um tæplega 340 milljónir króna, gerir Kölku kleift að halda óbreyttum gjöld- um þriðja árið í röð. - fb Skuldir stöðvarinnar Kölku: Lækka um 700 milljónir króna Kallaður í yfirheyrslu eftir játningu í beinni Íslendingur búsettur í Svíþjóð hefur játað að hafa tekið þátt í að koma svínshaus- um, svínsblóði og blóðugu eintaki af Kóraninum fyrir á lóð í Sogamýri þar sem til stendur að reisa mosku. Verður kallaður til yfirheyrslu segir lögreglufulltrúi. TRÚARRIT Tilgangur þeirra sem dreifðu svínshausunum og blóðugum síðum úr Kóraninum á lóð Félags múslima á Íslandi var að vanhelga lóðina. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM ÞÝSKALAND, AP Þýskur lögreglu- maður hefur verið handtekinn grunaður um að hafa drepið og bútað niður mann sem hann kynnt- ist á netinu. Manninn dreymdi víst um að vera drepinn og étinn. Haft er eftir Dieter Kroll, lög- reglustjóra í Dresden, að hinn maðurinn hafi látist af stungusári á heimili árásarmannsins. Morðið átti sér stað í byrjun mánaðar um mánuði eftir að mennirnir kynnt- ust í netspjalli. - óká Lögreglumaður handtekinn: Drap mann og bútaði niður Í DRESDEN Frúarkirkju ber við himin í miðborg gömlu Dresden í Þýskalandi. NORDICPHOTOS/AFP
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.