Fréttablaðið - 30.11.2013, Blaðsíða 10
30. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 10
Skátahreyfingin hefur um árabil selt sígræn
eðaltré í hæsta gæðaflokki og prýða þau
þúsundir heimila og fyrirtækja.
Sígrænu jólatrén eru seld í Skátamiðstöðinni
Hraunbæ 123 í Reykjavík, s: 550 9800 og á
skátavefnum: www.skatar.is
Frábærir eiginleikar:
-eðaltré ár eftir ár!
Sígræna jólatréð
10 ára ábyrgð
12 stærðir (90-500 cm)
Stálfótur fylgir
Ekkert barr að ryksuga
Veldur ekki ofnæmi
Eldtraust
Þarf ekki að vökva
Íslenskar leiðbeiningar
kynntu þér
málið!w w w . s i d m e n n t . i s
Mannvirðing
Siðmennt styður opið, víðsýnt
og fjölbreytt samfélag
Magimix matvinnsluvélar, blandarar og safapressur.
Kaffivélar fyrir Nespresso og kaffi frá Caffé Vergnano
fyrir Nespressovélar.
Kynntu þér málið hjá sölumönnum Eirvíkur
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
JÓLATILBOÐ
SKIPULAGSMÁL Til að ná meiri sátt
um kirkjubyggingu rússnesku rétt-
trúnaðarkirkjunnar á Nýlendu-
reit verður skoðað hvort finna
megi henni lóð á horni Mýrargötu
og Seljavegar í stað þess að hún sé
austar við Mýrargötuna.
Borgarráð samþykkti á fimmtu-
dag nýtt skipulag fyrir Nýlendu-
reit þar sem meðal annars er gert
ráð fyrir rétttrúnaðarkirkjunni við
Mýrargötu. Talsverð andstaða er
í nágrenni við bygginguna, meðal
annars vegna þess hversu háreist
hún á að verða og vegna þess að
aðeins er gert ráð fyrir þremur bíla-
stæðum á lóðinni. Eftir að skipulag-
ið var samþykkt í borgarráði var til-
laga sjálfstæðismanna um að finna
kirkjunni nýja lóð einnig samþykkt.
„Það hefur komið fram hugmynd
um að kirkjan geti hugsanlega
farið betur á öðrum stað á reitnum
þar sem hún hefði meira rými og
færi betur í jaðri hverfisins,“ segir
Júlíus Vífill Ingvarsson, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokks. Hann
undirstrikar að aðeins sé um athug-
un að ræða. Vinna þurfi málið í sátt
við nágranna og kirkjuna sjálfa. - gar
Endurskoða á hluta nýsamþykkts skipulags fyrir Nýlendureit:
Skoða færslu rétttrúnaðarkirkju
RÚSSNESK RÉTTTRÚNAÐARKIRKJA
Skoða á hvort færa megi rússsnesku
rétttrúnaðarkirkjuna austar á Mýrargötu
þar sem hún gæti staðið næst Héðins-
húsinu.
MYND/REYKJAVÍKURBORG-ÍBÚASAMTÖK VESTURBÆJAR
FJARSKIPTI Hörður Ágústsson,
framkvæmdastjóri Macland sem
selur Apple-vörur, er ánægður með
samning Apple við íslensk fjar-
skiptafyrirtæki. Þau munu bjóða
milliliðalaust upp á vörur fyrir-
tæksins frá og með 13. desember.
„Maður er búinn að heyra þetta
í mörg ár að þetta sé að fara að
bresta á en svo gerist það allt í
einu og það er bara frábært,“ segir
Hörður. „iPhone fer úr því að vera
lúxusvara sem er til dæmis keypt í
gegnum menn í svörtum BMV-bif-
reiðum sem láta menn bíða í bið-
röðum fyrir utan Apple-búðir í
Bretlandi, í það að núna er Apple
TV eina Apple-varan sem er eftir
sem er ekki hægt að fá formlega
á Íslandi. Það eru stórkostlegar
fréttir,“ segir hann.
Í stað þess að kaupa iPhone í
gegnum birgja mun hann, rétt eins
og Epli.is, kaupa símana af fjar-
skiptafyrirtækjunum. „Ég get ekki
beðið eftir að mega kaupa síma af
þessum fyrirtækjum. Þetta er því-
líkur lúxus.“
Hann segir viðgerðaþjónustuna
breytast þannig að menn geta
keypt sér síma í Evrópu og látið
gera við þá á Íslandi og öfugt.
Sama verður ekki hægt með síma
keypta í Bandaríkjunum. „Núna
munu Íslendingar ekki lengur
fara til Boston og kaupa sér iPhone
fyrir jólin því það er engin ábyrgð
á þeim hérlendis.“ - fb
Framkvæmdastjóri Macland fagnar samningi Apple við íslensk fyrirtæki:
„Lúxus“ að fá iPhone til Íslands
ÁNÆGÐUR MEÐ APPLE Hörður
Ágústsson hefur beðið í mörg ár eftir
samningnum við Apple.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
➜ Aðgangur Íslendinga
að tónlistarveitunni iTunes
verður áfram lokaður. Að
sögn Harðar tengjast þau
réttindamál Apple ekki
með beinum hætti.
VELFERÐARMÁL Nýtt bráðabirgða-
gistiskýli fyrir heimilislausa karla
verður opnað á næstu dögum á
Vatnsstíg 12. Þar mun verða pláss
fyrir fimm menn og verður það
notað þar til nýtt gistiskýli verð-
ur opnað á Lindargötu í vor.
Frá því í maí síðastliðnum hefur
alloft þurft að vísa fimm til sex
manns frá sömu nóttina í Gisti-
skýlinu á Þingholtsstræti. Síðan
í vor hefur verið leitað að viðeig-
andi húsnæði, sem stenst öryggis-
kröfur, til að bæta við gistirýmum.
Verkefnið er ekki á fjárhags-
áætlun Velferðarsviðs. Kostnaður
mun falla að mestu til á árinu 2012
og leitast verður við að rúma það
innan fjárheimilda.
„Ef við þurfum að fastráða
starfsmenn frá upphafi fram á vor
þá kostar þetta allt að 8,3 milljón-
um,“ segir Björk Vilhelmsdóttir,
formaður Velferðarráðs. „Það fer
eftir ásókninni hversu mikið þetta
mun kosta því mestur kostnaður-
inn fer í laun starfsmanna. En
það er forgangsmál að koma í
veg fyrir að menn þurfi að sofa
úti. Það hefur alltaf verið stefna
okkar.“
Eingöngu verður boðið upp á
gistingu í húsnæðinu. Kvöldhress-
ing og morgunverður verður enn í
húsnæði Gistiskýlisins í Þingholts-
stræti. Starfsmenn Gistiskýlisins
munu fylgja gestum sem ekki fá
inni þar í útibúið á Vatnsstíg.
Húsnæðið á Vatnsstíg 12 er lítið
einbýlishús í eigu Reykjavíkur-
borgar í miðju íbúahverfi.
„Þetta er bara íbúðarhús og
verður það áfram þótt það séu
mismunandi íbúar. Það þarf ekki
grenndarkynningu. Enda verð-
ur engin biðröð fyrir utan eða
annað sem mun trufla samfélagið
í kring. Við erum bara að bjarga
þessum mönnum af götunni og
þetta er tímabundin lausn.“
erlabjorg@frettabladid.is
Ekki fleiri heimilis-
lausum vísað frá
Síðustu mánuði hefur margoft þurft að vísa heimilislausum frá í Gistiskýlinu við
Þingholtsstræti. Nýtt gistiskýli verður opnað á Vatnsstíg á næstunni þar sem pláss
verður fyrir fimm menn. Nágrannar hafa blendnar tilfinningar vegna málsins.
GISTISKÝLI Á Vatnsstíg 12 er lítið einbýlishús sem hingað til hefur hýst fjóra starfs-
menn sjálfboðaliðasamtakanna SEEDS. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Ég hef ekkert á móti því að
þessir menn komi í hverfið og ég
hef enga trú á að þeir muni valda
mér ónæði. En ég er mest hissa
á að þeir velji þetta hús fyrir þá.
Það er svo lítið og varla pláss fyrir
fimm karlmenn. Mér finnst það
hálfgert glapræði að láta menn í
þessu ástandi vera í timburhúsi í
varla manngengu risi.“
➜ Enga trú á að þeir
valdi mér ónæði
Ragnar P. Steinsson
Vatnsstíg 9
„Það er ekki hægt að koma með
svona fólk inn á svæði þar sem fullt
af fjölskyldum býr. Borgin getur ekki
sífellt vaðið yfir borgarana og komið
með alls kyns starfsemi því það
hentar þeim. Þar að auki er þetta
eitt af örfáum húsum sem eftir
eru á Íslandi af sinni tegund, svona
fátæktarmannahús. Það væri mikil
eftirsjá ef það kviknaði í húsinu.“
➜ Borgin veður sífellt
yfir borgarana
Þorsteinn Steingrímsson
Vatnsstíg 9a