Fréttablaðið - 30.11.2013, Side 12

Fréttablaðið - 30.11.2013, Side 12
30. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 12 ÞINN STUÐNINGUR GERIR KRAFTAVERK Aðgangur að hreinu vatni er ekki sjálfgefinn. Hjálparstarf kirkjunnar gerir fólki kleift að byggja brunna í Afríku – og þitt framlag skiptir sköpum. Þú getur hjálpað núna með því að greiða valgreiðslu í heimabanka. EINNIG: Frjálst framlag á framlag.is Gjafabréf á g jofsemgefur.is Styrktarsími: 907 2003 (2.500 kr.) Söfnunarreikningur: 0334-26-50886, kt. 450670-0499 HREINT VATN BJARGAR MANNSLÍFUM PI PA R \ TB W A SÍ A Nánari upplýsingar og skráning í síma 483 0300 og á www.hnlfi.is Kyrrðardagar verða haldnir 19. - 22. desember á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði. Á dagskrá er meðal annars: Samverustund - Hugleiðing - Bæn og íhugun í þögn - Yoga - Hlustunarhópar - Helgistund - Leikfimi - Slökunartímar - Útivist og fræðslufundir. Innifalið er ljúffengur og hollur matur, aðgangur að sundlaugum, baðhúsi og líkamsrækt. 1 dagur 14.900 kr. á mann. 3 dagar 38.700 kr. á mann. Dagana fyrir sólstöður er dagskrá alla þá sem vilja sinna andlegri og líkamlegri heilsu sinni og fá skjól til að rækta sinn innri mann. Berum ábyrgð á eigin heilsu Kyrrðardagar í desember SKÓLAMÁL Bæjarstjórn Hafnar- fjarðar skorar á mennta- og menn- ingarmálaráðherra, Illuga Gunn- arsson, að endurskoða fjárframlög til Flensborgarskólans og Iðnskól- ans í Hafnarfirði. Á fundi bæjarstjórnarinnar á miðvikudag afhentu fulltrúar nemenda og starfsfólks framhalds- skólanna áskorun vegna stöðunnar og boðuðu til borgarafundar. „Krafa um tafarlausa leiðrétt- ingu á rekstrarhalla skólanna er harkaleg þegar horft er til raun- verulegrar fjárhagsþarfar þessara tveggja menntastofnana,“ bókaði meirihluti bæjarstjórnar. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðis- flokks sátu hjá. Þeir sögðust hafa áhyggjur af fjárhagsstöðu fram- haldsskóla en fullyrðingar um nið- urskurð til skólanna væru rangar. „Hefði bæjarfulltrúum Samfylk- ingar og VG verið nær að líta sér nær og bregðast við á ríkisstjórn- artímabili eigin flokka þegar fjallað er um núverandi stöðu þessara skóla,“ bókuðu þeir. - gar Bæjarstjórn vill endurskoðun fjárveitinga til framhaldsskóla í Hafnarfirði: Borgarafundur um niðurskurð IÐNSKÓLINN Í HAFNARFIRÐI Nem- endur og starfsfólk framhaldsskóla í Hafnarfirði boða til borgarafundar um fjárhagsstöðu skólanna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA LANDBÚNAÐUR Kúabændur fá ekki hærri ríkisstyrki þó mjólkurkvót- inn sé aukinn. Afurðastöðvar ætla að greiða fullt verð fyrir mjólk sem framleidd er umfram kvóta á þessu ári. „Framleiðslustyrkir sem við fáum í gegnum búvörusamning- inn eru föst upphæð og hún breyt- ist ekki þó mjólkurkvótinn sé auk- inn. Eftir því sem kvótinn eykst deilist styrkurinn á fleiri lítra,“ segir Sigurður Loftsson formaður Landssambands kúabænda. Vegna aukinnar neyslu á fiturík- um mjólkurafurðum hefur verið ákveðið að auka mjólkurkvótann um 7 milljónir lítra á næsta ári eða úr 116 milljónum lítra í 123 þús- und lítra. Undanfarin ár hafa bændur framleitt 6 til 8 milljónir lítra af mjólk umfram kvóta. Afurðir úr umframmjólkinni hafa verið fluttar út og hafa bændur fengið um 40 krónur fyrir lítrann. Guðni Ágústsson framkvæmdastjóri Samtaka afurðastöðva í mjólkur- iðnaði segir að búið sé að semja við bændur um að þeir fái greitt sama verð fyrir umframmjólkina og þeir fá fyrir kvótamjólkina, það er 82 krónur fyrir lítrann. - jme Afurðastöðvar greiða meira fyrir umframmjólk: Mjólkurkvótinn á næsta ári aukinn MEIRI MJÓLK Eftirspurn eftir fituríkum mjólkurafurðum hefur aukist mikið síðustu mánuði og hafa afurðastöðvar samið við bændur um að borga jafn mikið fyrir umframmjólkina og kvótamjólkina eða 82 krónur fyrir lítrann. FRETTABLAÐIÐ/GVA ■ Styrkir til kúabænda nema 6,3 milljörðum á þessu ári. Mjólkur- kvótinn er 116 milljónir lítra. ■ Beingreiðslur nema 45,75 kr. á lítra. Kynbóta- og þróunarfé er 1,36 kr. á lítra. Gripagreiðslur eru 5,41 króna á lítra. ■ Aðrar greiðslur, ótengdar fram- leiðslu, nema 1,58 krónum á hvern lítra. Ríkið greiðir 54,10 krónur í framleiðslustyrk á hvern mjólkurlítra. 660 KÚABÚ FÁ STYRKI TAÍLAND, AP Tólf hundruð stjórn- arandstæðingar réðust í gær inn í höfuðstöðvar taílenska hersins í Bangkok. Þar óskuðu þeir eftir aðstoð hersins við að koma for- sætisráðherra landsins, Yingluck Shinawatra, frá völdum, og fóru langleiðina með að kalla eftir valdaráni hersins. Fjöldi fólks hefur síðustu daga tekið þátt í mótmælum í Taílandi og krafist þess að Shinawatra segi af sér. Mótmælin, sem hafa að mestu verið friðsamleg, hafa nú teygt anga sína út fyrir höfuðborg landsins og inn í nálægar borgir og vakið ótta um aukinn óstöðug- leika í landinu. Shinawatra, sem hefur setið í embætti forsætisráðherra frá árinu 2011, sagði í viðtali við BBC í gær að hún hygðist ekki boða til nýrra þingkosninga. „Þú verður að spyrja hvort nýjar kosningar myndu fullnægja kröf- um mótmælenda,“ sagði Shina- watra, sem biðlaði fyrr í vikunni til stjórnarandstæðinga um að stöðva mótmælin. Sjö ár eru liðin síðan taílenski herinn steypti Thaksin Shina- watra, bróður forsætisráðherrans, af stóli í kjölfar ásakana um spill- ingu og önnur brot í starfi. Hann býr nú í Dúbaí en mótmælendur segja að Shinawatra sé einungis leppur bróður síns. Mótmælendurnir hafa áður sagt að markmið þeirra sé ekki einung- is að koma Shinawatra frá völdum, heldur einnig að koma í veg fyrir að bróðir hennar hafi áfram sterk ítök í taílenskum stjórnmálum. Shinawatra hefur hingað til ekki reynt að koma í veg fyrir mótmæl- in og lögregla og her landsins hafa leyft þeim að hafa sinn gang. Forsætisráðherrann og ríkis- stjórn hennar héldu í fyrradag velli þegar 297 þingmenn taí- lenska þingsins greiddu atkvæði gegn vantrauststillögu stjórnar- andstöðunnar. haraldur@frettabladid.is Báðu herinn um aðstoð Stjórnarandstæðingar réðust í gær inn í höfuðstöðvar taílenska hersins. Þeir krefjast þess að forsætis- ráðherra landsins, Yingluck Shinawatra, segi af sér. Mótmælin í landinu hafa hingað til verið friðsamleg. MIKIL ÓÁNÆGJA Mótmælendurnir biðu í höfuðstöðvum hersins í um tvo klukkutíma áður en þeir héldu friðsam- lega á brott. NORDICPHOTOS/AFP.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.