Fréttablaðið - 30.11.2013, Síða 34
30. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 34
Hilda Jana Gísladóttir tekur á móti mér í Amaróhúsinu á Akur-eyri. Þar, á annarri hæð, er vinnustaður-inn hennar, fjölmiðla-
fyrirtækið N4 sem hún byrjar á að
sýna mér áður en við komum okkur
fyrir á kaffistofunni. Hilda Jana er
jafn heillandi í framkomu og hún er
á skjánum þar sem hún er snilling-
ur í að láta öllum líða vel, bæði við-
mælendum og áhorfendum. „Ég er
svo heppin að hafa einlægan áhuga
á fólki og mismunandi áhugamál-
um þess og þarf ekkert að setja
mig í stellingar til þess,“ segir hún
brosandi. „Það liggur við að það
sé sama með hverjum maður sest
niður, allir hafa einverja sögu að
segja. Meira að segja sjarmerandi
sögu. Mér finnst gaman að vita
hvað það er sem fær fólk til að fara
á fætur á morgnana og hafa ástríðu
fyrir því sem það er að gera. Það
er svo nærandi fyrir okkur hin að
fylgjast með því.“
Missti vinnuna í hruninu
Þegar Hilda Jana kom á N4 fyrir
fjórum árum var eigandinn, Þor-
valdur Jónsson, þar ásamt þrem-
ur öðrum að vinna við dagskrána.
Nú eru þar átján starfsmenn í fullu
starfi og sex verktakar að auki.
Hilda Jana kveðst áður hafa
verið búin að taka hring í fjölmiðla-
heiminum norðan heiða. „Ég byrj-
aði að vinna við Akureyrarsjón-
varpið, Aksjón, og starfaði fyrir
Stöð 2 á sama tíma. En hlutirnir
breyttust hratt. Nokkur fjölmiðla-
fyrirtæki í bænum tóku höndum
saman og stofnuðu N4, losuðu sig
við fyrri starfsmenn og réðu nýja.
Þá fór ég yfir á RÚV, var á RuvAk
í nokkur ár en missti vinnuna þar í
hruninu þegar svæðisútvarpið var
lagt niður. Sjónvarpshluti N4 var þá
kominn í þrot og búið að vera slökkt
á vélunum í fjóra mánuði. Ég kom
með skottið á milli lappanna til Þor-
valdar aftur og spurði hvort það
væri ekki hægt að gera eitthvað
við þessar græjur. Hann tók vel í
það og það endaði með því að ég og
tveir tæknimenn fengum styrk hjá
Vinnumálastofnun til hefja þessa
vegferð. Þar með hófst mikið upp-
byggingarstarf og vöxturinn hefur
verið ótrúlegur.“
Opnar glugga frá landsbyggðinni
Sjónvarpsdeild N4 fór rólega af
stað að sögn Hildu Jönu. „Á þeim
tíma var þjóðfélagið vængbrotið
eftir fjármálahrunið og fréttamiðl-
ar lögðu áherslu á að sýna samfé-
laginu aðhald og spyrja gagnrýn-
inna spurninga. Við ákváðum að
fara ekki þá leið. Hugsuðum: Hér
erum við þrjú að vinna við sjón-
varp og ætlum ekki að gera það
sama og aðrir, nema bara verr,“
útskýrir hún. „Stefnan var strax
sú að vera með lágan prófíl og fara
ekki í samkeppnina um mest sjokk-
erandi fyrirsögnina, æsinginn eða
glansinn heldur vera með þægilegt,
notalegt og heimilislegt efni um
venjulegt fólk fyrir venjulegt fólk.
Ég ber mikla virðingu fyrir frétt-
um og gildi gagnrýninna frétta-
miðla en það er líka eftirspurn eftir
því jákvæða efni úr daglega lífinu
sem við erum með útsendingar á
alla daga. Ég er alltaf að heyra í
ánægðu fólki og finnst gaman að
geta gefið eitthvað gott út í sam-
félagið. Fyrir utan það að opna
ákveðinn glugga frá landsbyggð-
inni því stundum finnst mér vanta
upp á samtalið milli höfuðborgar og
landsbyggðar.“
Ætlaði að vera í ár fyrir norðan
Hilda Jana er ekki dóttir Gísla Sig-
urgeirssonar fréttamanns, bara svo
það sé á hreinu. Hún segir það samt
mjög algengan misskilning. „Meira
að segja dóttir Gísla fær setning-
ar eins og: „Ég bið að heilsa henni
systur þinni í sjónvarpinu.“ En nei,
við Gísli Sigurgeirsson erum ekk-
ert skyld. Ég á annan Gísla fyrir
föður sem býr í Reykjavík og vinn-
ur hjá Samkaupum. Þetta Gíslanafn
fylgir mér samt. Ég á bróður sem
heitir Gísli, pabbi heitir Gísli og
afi heitir Gísli og svo vinn ég með
Gísla. Tengdapabbi heitir Gísli
og mágur minn Gísli og á Aksjón
forðum var yfirmaður minn Gísli
Gunnlaugsson. Ætli ég sé ekki bara
gísl!“
Hún er úr höfuðborginni. Flutti
norður þegar hún var tvítug.
„Mamma og pabbi fluttu hingað og
ég bara elti þau,“ rifjar hún upp.
„Ég var ólétt að elstu dóttur minni
og var með barnsföður mínum þá.
Við ætluðum bara að vera í ár, síðan
eru liðin 17 ár og hér er ég enn. Mér
finnst Akureyri yndislegur staður.
Stundum finnst mér heimamenn
ekki fatta hvað hann er æðisleg-
ur. Sumum aðkomumönnum finnst
erfitt að kynnast Akureyringum,
ég upplifði það aldrei en ég er nú
ekki lokaðsta manneskja sem þú
hittir og mér var vel tekið af öllum.
Ég féll fyrir því hvað Akureyri er
fjölskylduvæn og mikill íþrótta-
og menningarbær. Auðvitað mætti
vera meiri fjölbreytileiki að sumu
leyti. En þetta er fallegt samfélag
sem hefur sýnt mikla aðlögunar-
hæfni frá því að vera þessi gamli
iðnaðarbær yfir í þetta fjölbreytta
atvinnusvæði sem það er í dag.“
Var í tómu rugli
Frá tíu ára til tvítugs bjó Hilda
Jana með foreldrum sínum og bróð-
ur úti á Granda í Reykjavík, gekk í
Melaskóla og Hagaskóla, fór svo í
Kvennó og Ármúlaskólann en klár-
aði stúdentinn í Verkmenntaskól-
anum á Akureyri. Þaðan lá leiðin
í kennaradeild Háskólans á Akur-
eyri og nú er hún grunnskólakenn-
ari að mennt. Þegar nafn hennar
er gúglað kemur upp saga um eit-
urlyf. Hvernig stendur á því? „Ég
var í tómu rugli á tímabili meðan
ég var fyrir sunnan – árin 1994 og
95 þegar ég var í Ármúlaskólanum.
Var bara týnd.“
Hvernig leiddist þú út í það?
Komu dílerar í skólann eða eitt-
hvað svoleiðis?
„Nei, nei. Ég held ég hafi bara
séð um að sækja í það sjálf. Var
ekki fórnarlamb aðstæðna eða neitt
svoleiðis. Bara ung og forvitin og
vitlaus og sótti í félagsskap sem var
mér ekki hollur. En ég fór í með-
ferð þegar ég var átján ára. Það
var dásamlegt að hafa stofnun eins
og SÁÁ til að ná fótfestu á ný. Það
bjargaði mér.“
Þetta hefur þá verið stuttur tími.
„Já, stuttur en harkalegur. Svolítið
eins og að henda sér ofan í ískalda
laug, maður stekkur fljótt upp úr.
Fann að þetta var ekki það sem mig
langaði að eyða ævinni í að gera.
Ég drekk ekki einu sinni í dag. Get
líka alveg dansað uppi á borðum þó
að ég sé edrú. Ég hef rosa gaman
af því að fara út á lífið og dansa og
skemmta mér en það er samt voða
gott að vita hvar mörkin eru.“
Eftir að Hilda Jana flutti norður
kveðst hún mikið hafa sinnt for-
varnarstarfi í Jafningjafræðslunni.
„Það varð ákveðin tegund af
ástríðu hjá mér um tíma að vara
unga fólkið við eiturlyfjum. Þó að
ég hefði fegin viljað hafa sleppt
þessu rugli þá er ekki í boði nein
tímavél og ég nýtti bara reynsluna
til að læra af henni og miðla. Er
svolítið ýkt týpa og fer alla leið í
öllu sem ég er að gera, sem hefur
bæði kosti og galla.“
Kynntust gegnum kvenréttindin
Núna snýst líf Hildu Jönu um fjöl-
skylduna og starfið. „Þetta eru
tvær fjölskyldur, N4-fjölskyldan
og alvörufjölskyldan,“ segir hún
hlæjandi og segir mér nánar frá
þeirri síðarnefndu. „Elsta stelp-
an mín er Hrafnhildur Lára, hún
verður 17 ára í janúar. Það er sú
sem ég var ólétt af þegar ég flutti
norður. Hún er í 1. bekk í MA,
mikið félagsdýr eins og mamman.
Svo eru þær yngri tvær, fæddar
2004 og 2005. Ísabella Sól er eldri
og Sigurbjörg Brynja yngri. Þær
eru ótrúlega ólíkar en báðar frá-
bærar, eru í fótbolta, leiklistar-
skóla og öllu mögulegu.“
Hver er svo maðurinn þinn?
„Hann heitir Ingvar Már
Gíslason og er sölustjóri hjá
Norðlenska. Hann var þjálf-
ari í ræðuliði Morfís í Verk-
menntaskólanum 2001 og ég var
að hjálpa einum félaga mínum
að gera morfísræðuna sína um
kvenfrelsi. Þar lágu okkar leið-
ir saman. Hann heillaði mig með
kvenréttindabaráttunni og nú er
ég gift, þriggja barna móðir á
Brekkunni.“
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
Get dansað uppi á borðum edrú
Hilda Jana Gísladóttir, dagskrárstjóri hjá N4, var frumkvöðull að því að endurvekja sjónvarp á Akureyri fyrir fjórum árum og
á sinn þátt í vexti þess og vinsældum. Hún kynntist skuggahliðum lífsins sem unglingur en er nú hæstánægð með tilveruna.
DAGSKRÁRSTJÓRINN „Mér finnst gaman að vita hvað það er sem fær fólk til að fara á fætur á morgnana og hafa ástríðu fyrir
því sem það er að gera. Það er svo nærandi fyrir okkur hin að fylgjast með því,“ segir Hilda Jana. MYND/AUÐUNN
Núna er ég með þætti sem heita Á flakki frá Siglu-
firði til Bakkafjarðar. Svo er ég í föstudagsþættinum.
Þátturinn Að norðan er alla daga, við erum fimm í
honum, svo er Matur og menning. Glettur Gísla hafa
slegið í gegn, hann er mest fyrir austan og Friðrik
Ómar er með þáttinn Borgarinn sem er tekinn á
höfuðborgarsvæðinu.
Svo erum við með framleiðsludeild sem ég vinn
talsvert í líka. Vorum að klára myndband fyrir Jafn-
réttisstofu, fyrir Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar,
Markaðsstofu Norðurlands, vinnum fyrir ferðaþjón-
ustuaðila, tökum upp fundi, gerðum auglýsingu fyrir
Leikfélag Akureyrar og fleira í þeim dúr. Það er margt
sem kemur inn á okkar borð.
Hulda Jana um N4
Þó að ég hefði fegin
viljað hafa sleppt þessu
rugli þá er ekki í boði nein
tímavél og ég nýtti bara
reynsluna til að læra af
henni og miðla. Er svolítið
ýkt týpa og fer alla leið í
öllu sem ég er að gera, sem
hefur bæði kosti og galla.