Fréttablaðið - 30.11.2013, Síða 36

Fréttablaðið - 30.11.2013, Síða 36
30. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 36 „Vel heppnað í alla staði. Grípandi list sem fær mann til að skoða. Bravó.“ María Lilja Þrastardóttir „Margslunginn og sýrður ævintýra- heimur í óendanlegum, stjörnufylltum himingeimi. Endalaust gaman að skoða. Skerpir glæsilega á „speisuðu döbbi“, tyrkneskri sýru og fleiru spennandi í hljóðheimi Ojba Rasta.“ Jens Guð „Ragnar Fjalar Lárusson er að stimpla sig inn sem fjölhæfur og afkastamikill listamaður með litríkt stílbragð. Hér leikur hann sér fram og aftur með myndmálið; hinn innri mann, heilahvelin, náttúruna, alheiminn og sínusbylgjur. Passar eins og flís við rassinn á Ojba Rasta.“ Arnór Bogason „Eins og í fyrra er boðið upp á frábært umslag á plötu Ojba Rasta. Í sama „80‘s overkill“-anda. Virkilega flott. Tvö lokuð augu og það þriðja galopið á enni er líka alltaf „winner“ hjá mér. Jóhann Alfreð Kristinsson BESTU UMSLÖGIN Ojba Rasta með besta umslagið Eins og venja er um þetta leyti árs leitaði Fréttablaðið til hóps valin- kunnra andans manna og kvenna til að velta fyrir sér kostum og göllum við umslög íslenskra hljómplatna sem komið hafa út á árinu. Mammút Komdu til mín svarta systir Jafnmörgum álitsgjöfum þótti um- slagið á þriðju plötu Mammút gott og slæmt. „Gersamlega tryllt framsetning og útlitið svo órætt í allri sinni afstæðu fegurð. Myndin vekur umsvifalausa forvitni en samt er eins og maður vilji ekki vita hvað er að gerast á henni.“ Kristinn Pálsson „Eitthvað mjög óþægilegt við þessa mynd.“ Álfrún Pálsdóttir „Ég veit ekki almennilega hvað ég er að horfa á, en á einhvern pervert- ískan hátt líkar mér það.“ Stígur Helgason „Með furðulegri koverum sem ég hef séð. Leiðinlegt þar sem platan er svo fín. Reyndar fékk það mig til þess að taka plötuna upp og rýna framan á hana sem ég hefði alla jafna ekki gert. Mér sýndist þetta nefnilega vera einhvers konar vansköpuð kartafla að spíra.“ María Lilja Þrastardóttir UMDEILDASTA UMSLAGIÐ „Af hverju er þessi maður í þessari stell- ingu og með þennan svip? Er eitthvað að honum? Er honum illt?“ Stígur Helgason „Svipurinn er svolítið eins og hann sé við það að átta sig á því að maðurinn sem hann var að opna fyrir er handrukkari.“ Ölvir Gíslason „Bjóst við meiru frá vonarstjörnu Íslands í poppinu. Hugmyndasnautt og tilgerðarlegt í alla staði. Eins og tískuþáttur í menntaskólablaði.“ Álfrún Pálsdóttir „Eftir fyrstu hlustun virðist sem svo að það hafi verið hent í plötu út af einum hittara. Mér sýnist einmitt líka hafa verið bara hent í umslag. Mjög sorglegt þar sem Steinar er ungur og upprennandi og því verð ég reið þegar ég sé þetta umslag. Á þetta að gera eitthvað fyrir einhvern?“ Lilja Katrín Gunnarsdóttir VERSTU UMSLÖGIN 1. SÆTI Ojba Rasta Einhvern veginn svona 2. SÆTI Drangar Drangar „Hér er mjög vel hugað að innihaldi. Innblásturinn er í takt við tónlistina og því er fylgt vel eftir í meðhöndlun leturs, efnisvali og litapallettu. Hand- verkið og nostrið nýtur sín vel og gripur- inn er afskaplega eigulegur. Mig langar mikið frekar til að opna þetta umslag en skrolla eftir plötunni í Spotify.“ Kristín Agnarsdóttir „Skemmtilega einfalt og svolítið út úr kú fyrir testósteróntröllin í hljómsveitinni. Hraundranga-leysið í smekklegri hönnuninni var góð ákvörðun.“ Sunna Valgerðardóttir „Ég væri til í að ramma þetta umslag inn og hafa það uppi á vegg hjá mér. Ég get horft á það endalaust. Hið full- komna umslag sem er ekki bara konfekt fyrir augað heldur lýsir tónlistinni líka svo vel. Frábært samspil tveggja listforma.“ Lilja Katrín Gunnarsdóttir 3. SÆTI Dj flugvél og geimskip Glamúr í geimnum „Glitrandi og hressandi umslag sem lýsir samtímanum vel.“ Ólafía Svansdóttir „Flott mynd og fríkað fótósjopp. Það þarf víst að kunna reglurnar til þess að brjóta þær. Þetta er eins og remix af Silvíu Nótt– Goldmine-umslaginu sem kom út í góðærinu. Krúttlega kærulaust … eins og tónlistin.“ Jói Kjartans 4. SÆTI Dr. Gunni og vinir hans Alheimurinn! „Stórkostlegt, litfagurt, lifandi og fyndið umslag sem ungir og aldnir munu hrifsa til sín hugsunarlaust úr plöturekkunum fyrir jólin. Plata með svona útliti getur ekki verið annað en sú skemmtilegasta í öllum heim- inum.“ Kristinn Pálsson „Eitt orð: skemmtilegt.“ Guðmundur Pétursson 5. SÆTI Emilíana Torrini Tookah „Skemmtilegt og galsafengið listaverk. Vangasvipur í svart- hvítri spegilmynd skreyttur með einföldum formum í möttum lit. Úr fjarlægð (eða með því að píra augun) birtist feitlagið andlit.“ Jens Guð „Það er eitthvað svo dásamlega furðulegt við þetta umslag. Ég doka alltaf við þetta eins og Sledge- hammer-myndband Peters Gabriel eða umslag Alan Parsons Project við Eye in the Sky-smáskífuna. Skrýtið á mjög jákvæðan hátt. Eins og flest sem er skrýtið reyndar.“ Kristín Agnarsdóttir 2. SÆTI Kaleo Kaleo „Einstaklega ósexí. Á að hafa klass- ískt yfirbragð en tekst það ekki og verður fyrir vikið óspennandi og tilgerðarlegt.“ María Lilja Þrastardóttir „Gullblóm. Þetta er eins og bók og er mjög ljótt.“ Guðmundur Pétursson 3. SÆTI. Ólafur Arnalds - For Now I Am Winter „Ólafur horfir fjarrænn út í tómið með íslensku náttúruna inni í sér. Allt mjög íslenskt og klisjukennt með smá snert af velgju.“ Ólafía Svansdóttir „Brimrótið er INNI Í honum. Ég skil. Djúpt. Eða eitthvað.“ Stígur Helgason 4. SÆTI Ólöf Arnalds - Sudden Elevation „Þótti þetta í alvöru svona góð mynd að það þyrfti að nota hana fjórum sinnum? Þetta er eins og amma hafi komist í Photoshop.“ Stígur Helgason „Hugmyndin er óskiljanleg og hönn- unin á ekkert skylt við titil plötunnar. Og þó að Ólöf sé vissulega fögur eru fjögur andlit í þessu tilviki þremur of mörg.“ Sunna Valgerðardóttir 5. SÆTI Ýmsir flytjendur - Einnar nætur gaman með Sigga Hlö „Ég efast ekki um að valið á „one hit wonder“-slögurum sé traust hjá Sigga. En undir titlinum Einnar nætur gaman og við undirtitilinn 57 sjóðheit lög undir einni sæng er mynd af Sigga þar sem ég veit ekki hvort hann ætli í mann eða langi í mann. Þetta er samt eiginlega uppáhaldsumslagið mitt líka.“ Jóhann Alfreð Kristinsson „Hreinræktaður óhugnaður. Þessi maður hefur ekkert gott í hyggju.“ Ölvir Gíslason 1. SÆTI Steinar Beginning Arnór Bogason grafískur hönnuður Álfrún Pálsdóttir blaðamaður Berti Andrésson tónlistaráhugamaður Guðmundur Pétursson grafískur hönnuður Jens Guð grafískur hönnuður Jóhann Alfreð Kristinsson grínisti Jói Kjartans ljósmyndari Kristinn Pálsson tónlistaráhugamaður Kristín Agnarsdóttir grafískur hönnuður Lilja Katrín Gunnarsdóttir blaðamaður María Lilja Þrastardóttir fréttamaður Ólafía Svansdóttir bóksali Stígur Helgason blaðamaður Sunna Valgerðardóttir fréttamaður Tryggvi Hilmarsson grafískur hönnuður Þórður Helgi Þórðarson útvarpsmaður Ölvir Gíslason þýðandi Álitsgjafar
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.