Fréttablaðið - 30.11.2013, Page 44

Fréttablaðið - 30.11.2013, Page 44
30. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 44 1991-2000 Skólastjóri Gagnfræða- skóla Mosfellsbæjar. Viðtalið við Ragnheiði er hægt að sjá í þættinum Pólitíkin á www.visir.is. visir.is 1970 1975 1980 1985 1990 1995 2000 2005 20101969 1988 19911983 2013200720022001 STJÓRNMÁLAÞÁTTTAKA Höskuldur Kári Schram hoskuldur.schram@365.is Þjóðaratkvæða- greiðsla um ESB Ragnheiður er fylgjandi þjóðar- atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður um ESB. Hún vill þó bíða eftir skýrslu utanríkisráðherra um málið. „Ég taldi og ég tel að það sé ætlun okkar að spyrja þjóðina hvort halda eigi þessum viðræðum áfram eða ekki.“ Krónan „Hún hefur stundum reynst okkur ömurlega en stundum verið okkur hagfelld. Krónan er lítill gjaldmiðill og á meðan við göngum ekki inn í eitthvert myntbandalag þá þurfum við að horfa til þess að tengja hana við aðra gjaldmiðla og þá gjaldmiðla þeirra þjóða sem við eigum í mestum viðskiptum við.“ Reykjavíkur- flugvöllur „Það er alveg ljóst í mínum huga sem fyrrverandi sveitarstjórnarmaður og sem þingmaður að skipulagsvaldið er á höndum Reykjavíkurborgar hvað þetta varðar [...] ríkið á ekki neinn rétt á því að koma inn og ráðskast með skipulagsmál borgarinnar eða annarra sveitarfélaga.“ Dýrar rannsóknarnefndir Ragnheiður Ríkharðsdóttir, formaður þingflokks sjálfstæðismanna, vill herða reglur varðandi rannsóknarnefndir Alþingis og segir nauðsynlegt að setja fastan ramma utan um lengd og rekstrarkostnað slíkra nefnda. 2002-2007 Bæjarfulltrúi í Mosfellsbæ 2007- Alþingismaður. 2013 Formaður þing flokks Sjálfstæðis- flokksins. 1969 Stúdentspróf MA. 1988 Próf í uppeldis- og kennslufræði HÍ. 1991 BA-próf í íslensku HÍ. 2002 Framhaldsnám í menntunar- og uppeldis- fræðum með áherslu á stjórnun KHÍ. 1983-1991 Kennari við Gagnfræðaskólann í Mosfellsbæ. 2001-2002 Skólastjóri Hjallaskóla í Kópavogi. MENNTUN OG HELSTU STÖRF FRÉTTABLAÐIÐ/GVA 2002-2007 Bæjarstjóri Mosfellsbæjar. ÞESSI KOSTNAÐUR RÍKISSTJÓRNARINNAR SEM EKKI VAR GERT RÁÐ FYRIR Í SÍÐUSTU FJÁRLÖGUM ERU BIÐLAUN FRÁFARANDI RÁÐHERRA OG AÐSTOÐARMANNA ÞEIRRA Ekki of mikill sveigjanleiki | Kostnaður vegna rannsóknar- nefnda Alþingis hefur farið langt fram úr áætlun samkvæmt frumvarpi til fjáraukalaga sem lagt var fram á Alþingi í vikunni. Heildarkostnað- ur er kominn upp í rúmar 800 milljónir en um er að ræða annars vegar rannsóknarnefnd um Íbúðalánasjóð og hins vegar rannsóknarnefnd um fall sparisjóðanna. Sú fyrrnefnda skilaði skýrslu í sumar en sú síðar- nefnda hefur enn ekki lokið störfum. Upphaflega stóð til að vinnunni myndi ljúka um mitt ár 2012. Ragnheiður segir nauðsynlegt að endur- skoða tíma- og útgjaldaramma í tengslum við rannsóknarnefndir. „Það er algjörlega ljóst að við getum ekki leyft okkur, hvort sem við eigum fullt af peningum eður ei, að setja á fót rannsóknarnefndir sem hafa svona víðtækar heimildir til tímafrestunar, til rannsókna og fjármagns,“ segir Ragnheiður og vill að Alþingi skoði málið. „Það má vera einhver sveigjanleiki í tímaramma og einhver sveigjanleiki í fjármagni en ekki upp á mörg hundruð milljónir.“ Fram kemur í fjáraukalögum að rekstarkostnaður ríkisstjórnarinnar hefur aukist um eitt hundrað milljónir miðað við áætlun núgildandi fjár- laga eða um ríflega 30 prósent. Ríkisstjórnin hefur enn fremur verið gagnrýnd fyrir að fjölga ráðherraembættum og aðstoðarmönnum. Ragn- heiður segir að biðlaun fyrrverandi ráðherra skýri þessa hækkun að sumu leyti. „Þessi kostnaður ríkisstjórnarinnar sem ekki var gert ráð fyrir í síðustu fjárlögum eru biðlaun fráfarandi ráðherra og aðstoðar- manna þeirra. Þannig að þetta er ekki eingöngu kostnaður við núverandi ríkisstjórn,“ segir Ragnheiður. Hún telur eðlilegt að sumir ráðherra séu með tvo aðstoðarmenn líkt og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra. „Þetta er ráðuneyti sem er bæði efnahagsráðuneyti og fjármálaráðu- neyti. Aðstoðarmennirnir hafa þekkingu hvor á sínu sviði. Við getum líka horft til innanríkisráðherrans sem er með tvo aðstoðarmenn. Í því ráðuneyti eru sveitarstjórnarmál, dómsmál og innanríkismál. Þannig að það getur verið auðveldara að ná fram hagræðingu innan ráðuneyta ef þar eru sérfræðingar sem koma að málum. Menn verða líka að hafa í huga að þetta er starfsfólk sem fer [að loknu kjörtímabili] en verður ekki eftir í ráðuneytinu,“ segir Ragnheiður. Galinn spurningaþáttur | Ragnheiður hefur gagnrýnt spurninga- þáttinn Vertu viss sem hóf göngu sína á RÚV í nóvember og hefur tekið málið upp á Alþingi. „Mér finnst það algjörlega galið að Ríkisútvarpið sé að taka upp og stílfæra hér heima einhvern þátt sem gengið hefur í útlöndum [...] Mér finnst þetta ekki vera hlutverk RÚV. Ég hef sagt það upphátt og ég get sagt það hvar og hvenær sem er. Þetta er eitt af því sem verður skorið niður ef það þarf að draga saman því ekki hefur þetta listrænt eða menningarlegt gildi.“ Óheflaðir þingmenn | Um 14 prósent landsmanna bera traust til Alþingis samkvæmt könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands sem var gerð í ágústmánuði síðastliðnum. Ragnheiður segir nauðsyn- legt að bæta umræðuhefð á Alþingi. Þannig megi auka tiltrú og traust almennings. „Það verður hver og einn þingmaður að velta fyrir sér tungutaki sínu og orðfæri. Um leið og þingmenn gera það þá mun annað fylgja í kjölfarið. Við erum stundum mjög óvægin og óhefluð,“ segir Ragnheiður. Hún vill einnig breyta þingsköpum til að styrkja stöðu stjórnarandstöðunnar á Alþingi og koma í veg fyrir málþóf. „Það verður að finna þannig flöt að stjórnarmeirihlutinn geti ekki bara valtað yfir minnihlutann þegar honum hentar. Mér finnst að það verði að tryggja það með einhverjum hætti að minnihlutinn hafi alltaf það vopn að geta með einhverjum hætti stöðvað mál. Það er nefnilega ekki þannig að öll mál sem koma frá stjórnarflokkunum séu rosalega góð og að minni- hlutinn hafi alltaf rangt fyrir sér,“ segir Ragnheiður.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.