Fréttablaðið - 30.11.2013, Page 58
Friðarljós
Þegar hátíð ljóss og friðar nálgast er sannarlega við
hæfi að kveikja á Friðarljósum Hjálparstarfs kirkjunnar.
Þetta eru útikerti sem þekkt eru fyrir gæði og að loga
lengi. Þau eru búin til í Heimaey, vernduðum vinnustað
í Vestmannaeyjum. Þegar veislu halda skal, þegar lýsa
á upp leiði ástvina, þegar lýsa þarf upp myrkur úti við,
eru Friðarljósin lausnin. Um leið er stutt við fjölbreytt
starf Hjálparstarfs kirkjunnar og verndaðan vinnustað.
Þeir sem vilja selja Friðarljós Hjálparstarfsins
í fjáröflunarskyni geta haft samband við skrifstofuna
í síma 528 44OO.
4 – Margt smátt ...
Biskup Íslands, frú Agnes M. Sigurðardóttir,
prédikar. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson og
sr. Birgir Á sgeirsson þjóna fyrir altari ásamt
messuþjónum og fulltrúum H jálparstarfs
kirkjunnar.
Mótettukór Hallg ír mskirkju syngur undir stjórn
Harðar Áskelssonar.
Organisti: B jörn Steinar Sólberg.
Gjöfum t il Hjálparstarfs kirkjunnar veitt
móttaka.
fyrsta sunnudag í aðventu, 1. desember kl. 11
Farsæld er markmiðið
Aðstoð til heimilisinnkaupa er stór þáttur í innanlands-
aðstoð Hjálparstarfsins. Notuð eru inneignarkort í
matvöruverslanir. Með umsókn um inneignarkort þurfa
að fylgja gögn um tekjur og gjöld. Þar sem afgangsfé
er undir viðmiðunarmörkum er aðstoð veitt. Vegna
takmarkaðs fjármagns miðast kortin við barnafólk á
höfuðborgarsvæðinu en öðrum er vísað á hin samtökin
sem starfa á svæðinu. Þar sem öðrum samtökum er ekki
til að dreifa geta allir, líka barnlausir, sótt um kortin.
Áfram stendur öllum til boða lyfjaaðstoð, menntunar-
styrkir og fleira og allir hvattir til að þiggja ráðgjöf.
Hana veita félagsráðgjafar Hjálparstarfsins og félags- og
sálfræðingar Félagsþjónustu kirkjunnar, ókeypis, eftir
þörfum. Fjármálaráðgjöf með lífsleikniívafi er mjög vel
sótt. Haldin voru saumanámskeið og matreiðslunámskeið
fyrir fólk sem vill læra að nýta betur fjármuni. Ungmenni
af öllu landinu fá styrk úr Framtíðarsjóði til að ljúka
starfsréttindum eða komast í lánshæft nám. Það er
mikilvægur liður í að rjúfa vítahring fátæktar. Fjölda
barna og fjölskyldum þeirra eru veittar ánægjustundir
með miðum í leikhús, bíó, ferð á veitingastað, í sund
eða í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn. Hjálparstarfið
stendur fyrir jólaaðstoð þar sem, auk inneignarkorta,
er hægt að fá jólagjafir og föt á börnin. Hjálparstarfið
gaf út skýrsluna „Farsæld – baráttan gegn fátækt“
með Reykjavíkurdeild Rauða krossins. Skýrslan kallar á
hugarfarsbreytingu og breytta orðræðu. Hún leggur til
raunhæfar lausnir og hefur Velferðarráðuneytið tekið
fjölda tillagnanna á aðgerðaskrá sína.
Dæmi um það sem var gert á síðasta starfsári
(júlí 2O12–júní 2O13):
• Inneignarkort í matvöruverslanir veitt 2.23O fjölskyldum
í 5.411 úthlutunum
• 3,8 milljónum veitt til lyfjakaupa og læknisþjónustu,
mest til einstaklinga
• 14 börn fengu gleraugu
• 7O börn úr 11 sveitarfélögum fengu styrk vegna
tómstunda og sumargjafir
• 4OO börn fengu stuðning vegna skólabyrjunar
• 98 ungmenni úr 12 sveitarfélögum og 22 framhalds-
skólum fengu námsstyrk
Jólaaðstoð Hjálparstarfsins 2O13
Tekið er við umsóknum á skrifstofu Hjálparstarfsins,
Háaleitisbraut 66, 1O3 Reykavík, frá kl. 11–15 eftirfarandi
daga: 2., 3. og 4. desember. Utan höfuðborgarsvæðisins
er hægt að sækja um hjá prestum um allt land í síðasta
lagi 12. desember. Gögn um tekjur og gjöld þurfa að
fylgja umsóknum.
Korthafar geta sótt um á netinu
Þeir sem þegar hafa farið í gegnum umsóknarferli
Hjálparstarfsins og eru með virkt inneignarkort geta
sótt um jólaaðstoð á netinu á vefnum help.is. Undir
liðnum „Aðstoð innanlands“ er valinn hnappurinn,
„Sótt um aðstoð“ og umsókn fyllt út. Síðasti umsóknar-
dagur er 15. desember.
Úthlutað verður 18., 19. og 2O. desember kl. 11–15.
Ráðgjöf er mikilvægur þáttur starfsins.
Mataraðstoð er í formi inneignarkorta í matvöru-
verslunum. Arion banki gefur kortin sjálf.