Fréttablaðið - 30.11.2013, Page 59
Háaleitisbraut 66, 1O3 Reykjavík, sími 528 44OO
Jólaaðstoð
Hjálparstarfs kirkjunnar
Tekið er við umsóknum frá barnafjölskyldum í
Reykjavík dagana 2., 3. og 4. des. kl. 11-15.
Þeir sem eru með virk inneignarkort frá Hjálparstarfinu
geta sótt um á www.help.is.
Einnig taka prestar á landsbyggðinni við öllum umsóknum
þar. Síðasti umsóknardagur hjá þeim er 12. desember.
www.help.is
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
Gjafabréf
Hænur
Andvirði þessa gjafabréfs fer til kaupa á hænum handa fjölskyldu í Afríku.
Sígaggandi og á eilífu iði, setja hæn-
ur svip á sérhvern bæ. Afrískar hænur
eru marglitar eins og íslensk landnáms-
hænsn og vappa um bæjarhauginn
borginmannlegar. Hænur fyrir and-
virði þessa gjafabréfs gefa egg og unga
sem ala má í ljú fenf gan kvöldverð fyrir
þreytta fjölskyldu í harðri lífsbaráttu.
Fjölskyldan tekur þátt í þr óunarverkefni
Hjálparstarfsins. Meiri líkur eru á að h ún
eigi nógan mat en þegar þarf að treysta
eingöngu á uppskeruna. Næringarefni
verða fleiri, viðnám við sjúkdómum be tra
og þróttur til vinnu og náms meiri. Þessi
gaggandi gjöf verður vel þegin!
Margt smátt ... – 5
Lyf og heilsa styðja lyfja-
aðstoð Hjálparstarfsins
Aðstoð við að kaupa lyf, greiða læknisaðstoð og kaupa gleraugu er hluti af innan-
landsaðstoð Hjálparstarfsins. Mikilvægur bakhjarl er keðjan Lyf og heilsa sem gaf
3,5 milljónir á nýliðnu starfsári. Þau reka lyfjasjóðinn Lyfjagjöf sem bæði fyrirtækið
og almenningur gefur í. 7O% þeirra sem fá lyfjaaðstoð eru aðrir en barnafólk. Meðal
annars þannig tekst að veita fleirum en barnafólki aðstoð, þótt Hjálparstarfið hafi
takmarkað mataraðstoð við barnafjölskyldur. Varkárni er gætt í því hvaða lyf eru
greidd til þess að koma í veg fyrir endursölu þeirra. Öll lyf eru greidd beint í lyfja-
verslanir. Stuðningur vegna gleraugna er fyrst og fremst ætlaður börnum og
ungmennum en einnig fullorðnum sem
sækja nám með styrk frá Hjálparstarfinu.
14 börn og ungmenni fengu gleraugu á
nýliðnu starfsári, fjölgaði um þrjú.
Það er ekki spurning að mati Hjálparstarfs kirkjunnar að jólasveinaþjónusta
Skyrgáms er alveg frábær, enda láta þeir 2O% af innkomu sinni renna til Hjálpar-
starfs kirkjunnar og láta þannig gott af sér leiða. Þeir heimsækja hundruð leikskóla,
fyrirtæki og einstaklinga fyrir jólin ár hvert. Á 14 ára starfsferli hafa þessir
jólasveinar gefið hátt í 7 milljónir króna til starfs Hjálparstarfsins. Þeir eru
bráðskemmtilegir, gefa í skóinn, syngja og prakkarast og slá í gegn hvar sem þeir
fara. Það eru engin takmörk sett fyrir því hverju þeir geta fundið upp á. Í fyrra
komu þeir klifrandi niður turn Laugarneskirkju til að afhenda framlag sitt 823.7OO kr.
Nánari upplýsingar má fá hjá Skyrgámi Leppalúðasyni á jolasveinn.is, með tölvupósti
á skyrgamur@skyrgamur.is eða í síma 587 1O97.
Jólasveinaþjónusta Skyrgáms
alveg frábær