Fréttablaðið - 30.11.2013, Side 60
6 – Margt smátt ...
Þróunarsamvinna
Eþíópía
Malaví
Úganda
Indland
Neyðaraðstoð
Filippseyjar
Sýrland
Malaví
Með þéttu samstarfsneti um allan heim
náum við þangað sem þörfin er
Hjálparstarfið er stofnaðili að Lúterska heims-
sambandinu. Öflug þróunardeild þess vinnur í þeim
anda að reisn sé manninum meðfædd og að hver og
einn eigi rétt á því að lifa á sjálfbæran hátt við
fæðuöryggi án tillits til trúar eða annarra þátta.
Lúterska heimssambandið á sterkar rætur í nær-
samfélögum um heim allan þar sem samtökin hjálpa
fólki að brjótast undan oki fátæktar. Lögð er áhersla
á að efla getu og leiðtogahæfileika staðarfólks, betri
stjórnarhætti og opinbera þjónustu við fólk. Fólk er
frætt um rétt sinn. Markmið sambandsins er að sýna
samlíðan og veita þá faglegu aðstoð sem aðstæður
krefjast. Þau leita friðar og sátta í margskonar
árekstrum og átökum. Í höfuðstöðvum Lúterska
heimssambandsins eru 97 starfsmenn í þróunar- og
neyðaraðstoð, fulltrúar 142 aðila í 79 löndum og
7O milljóna kristinna manna. Hjálparstarfið vinnur
í gegnum Lúterska heimssambandið í Eþíópíu og
Úganda. www.lutheranworld.org
Í neyðar- og þróunarstarfi styður ACT Alliance fólk í
hamförum, stríði og átökum og vinnur gegn kerfislægri
fátækt, án skilyrða eða aðgreiningar. Fátækir verða
oft verst úti í hamförum. Þeir búa þar sem land er að
fá, við eyðimerkur, í bröttum fjöllum, á árbökkum og
víðar þar sem flóð, þurrkar og vindar geta haft
hörmulegar afleiðingar. Starfsmenn ACT Alliance
hjálpa fólki að takast á við og laga sig að veðurfars-
breytingum. ACT vinnur stöðugt að því að hafa áhrif á
stjórnvöld víða um heim og alþjóðlegar stofnanir til að
gæta mannréttinda hinna fátækustu. Í ACT Alliance
sameinast 139 kirkjur og kirkjutengdar hjálparstofnanir.
25.OOO starfsmenn og sjálfboðaliðar um allan heim
svara neyð, vinna að þróun og eru talsmenn þeirra
fátækustu í 14O löndum. ACT Alliance hefur áunnið sér
traust og virðingu meðal þeirra sem samtökin vinna
með. ACT starfar oft þar sem aðrar stofnanir hafa ekki
komið og fylgir skuldbindingum sínum eftir, oft í mörg ár
þótt fjölmiðlar beini sjónum sínum annað. Hjálpar starfið
er stofnaðili að ACT Alliance. ACT Alliance hefur fengið
Humanitarian Accountability Partnership (HAP) vottun,
fylgir alþjóðlegum stöðlum eins og SPHERE um neyðar-
aðstoð, ströngum siðareglum og endurmetur sífellt
starfsemi sína til að bæta hana. www.actalliance.org
Börn í skóla í Úganda.
Börn í skóla UCCI, samstarfsaðila Hjálparstarfsins á
Indlandi. Mynd: Kristján Ingi Einarsson.