Fréttablaðið - 30.11.2013, Qupperneq 62
KYNNING − AUGLÝSINGFerðir LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 20132
Hin f ljótandi neðansjávar-svíta er hönnuð og byggð af sænska f yrirtækinu
Genberg Underwater Hotels sem
Mikael Genberg stofnaði árið 2006
með það að markmiði að þróa og
koma á markað neðansjávarher-
bergjum um allan heim. Fyrirtæk-
ið kom á fót fimm stjörnu lúxus-
ferðamannastað, Manta Resort, á
Pemba-eyju árið 2008 en eyjan er
hluti af Sansíbareyjaklasanum.
Á Manta Resort eru sextán lúx-
usherbergi en með nýja neðan-
sjávarherberginu eru þau orðin
sautján.
Upphafið að neðansjávarsvít-
unni má rekja til listainnsetn-
ingar Genbergs á Mälaren-vatni í
Svíþjóð árið 2000. Um er að ræða
fljótandi hótel sem hann kallaði
Utter Inn en eitt herbergi hótels-
ins liggur þrjá metra niður í vatn-
ið. Mannvirkið reyndist vel út frá
byggingarfræðilegu sjónarmiði en
hefur einnig vakið verðskuldaða
athygli og laðað að fjölda ferða-
manna frá öllum heimshornum.
Genberg Underwater Hotels
hefur í mörg ár þróað hugmynd-
ina að neðansjávarherbergjum
og loks var það fyrsta opnað gest-
um hinn 1. nóvember síðastlið-
inn. Svítan fljótandi er 250 metra
undan strönd Pembaeyjar við
náttúrufyrirbrigði sem kallast
Bláa holan, 12 metra djúp og 50
metra breið hola við kóralrif þar
sem er að finna fjölbreytt dýralíf.
Gestir eru f luttir í svítuna á
báti. Á jarðhæðinni, eða öllu held-
ur sjávarhæðinni, er setustofa og
baðherbergi, stigi liggur upp á efri
hæð þar sem hægt er að slaka á,
sleikja sólina á daginn og mæna
upp í stjörnubjartan himin að
næturlagi. Í kjallaranum er hið
eiginlega neðansjávarherbergi
sem nær fjóra metra niður í sjó-
inn. Þar eru gluggar í allar áttir og
því fá gestir 360 gráða útsýni yfir
sjávar lífið á kóralrifunum. Gest-
ir líkja því við að sofa í loftbólu að
gista í neðansjávarherberginu og
þykir undursamleg upplifun að
fylgjast með dýralífinu. Einhverjir
fiskar hafa sest að í kringum her-
bergið enda veitir það þeim skjól
gegn rándýrum. Ljós undir glugg-
um laða að kolkrabba og f leiri
sjávardýr á næturnar. - sg
Gluggar eru á
öllum hliðum
herbergisins.
MYND/JESPER
ANHEDE FYRIR GENBERG
ART UW LTD
Ljós við
gluggana laðar
að forvitnar
sjávarverur.
MYND/
JESPER ANHEDE FYRIR
GENBERG ART UW LTD
Neðansjávarherbergið
flýtur á miðju hafinu.
MYND/JESPER ANHEDE FYRIR
GENBERG ART UW LTD
Gestir svítunnar geta
kafað í sjónum og kíkt
inn um gluggana líkt
og fiskarnir.
MYND/JESPER ANHEDE FYRIR
GENBERG ART UW LTD
Himnesk
neðansjávarupplifun
Sænski listamaðurinn Mikael Genberg hannaði árið 2000 fljótandi hús sem
listainnsetningu á Mälaren-vatninu í Svíþjóð. Þrettán árum síðar hefur fyrsta
neðansjávarsvítan verið opnuð gestum undan ströndum Sansíbar í Afríku.
Þar býðst fólki sú undursamlega upplifun að gista meðal sjávardýra.
Þeir sem vilja kynna sér nánar
neðansjávarherbergið er bent á
vefsíðurnar
www.themantaresort.com og
www.underwaterroom.com
DRAUMAHÓTEL – DRAUMABAÐSTRENDUR – LÚXUS- OG MENNINGAFERÐ
Vikulöng lúxusferð þar sem gist er á mismunandi stöðum á tyrknesku
rivíerunni, Leiguflug til og frá Antalya, 7 gistinætur á 5 stjörnu hótelum,
ríkulegt morgunverðarhlaðborð á hverjum morgni ....
TYRKLAND TYRKNESKA RIVIERAN VEISLA FYRIR ÖLL SKILNINGARVIT
OSKA Travel er skandinavískur ferðaaðili með skrifstofu í Noregi.
OSKA Travel er meðlimur í norska ríkistryggingasjóðnum RGF og
veitir því ferðatryggingu samkvæmt lögum. Þessi ferðatrygging
gildir einnig fyrir ferðir frá Íslandi. www.rgf.no
Ferðaaðili: OSKA AS | Postboks 4814 Nydalen | NO - 0422 Nydalen
Org.nr. 995 944 588 MVA. Með fyrirvara um villur og breytingar.
Ferðatímabil og verð fyrir 2014 eru gefin upp í íslenskum
krónum á mann í tveggja manna herbergjum
Flugvöllur KEFLAVÍK (-KEF)
2014 04.03. / 11.03. 18.03. / 25.03.
Verð á mann 116.311,- 125.311,-
Hugsanlegt eldsneytisálag og erlent álag sem fer eftir
heimsmarkaðsstöðu eru ekki innifalin í verðinu. Álag, hvers eðlis
sem er, verður aðgengilegt í bókunarferlinu.
UP
PL
IFÐ
U
ME
IRA
Leiguflug með „premium“ flugfélagi til Antalya og til baka.
Flutningur frá flugvelli til hótels og aftur á flugvöllinn með
loftkældum sérrútum.
Allar skoðunarferðir á landi fara fram í loftkældum eða
upphituðum sérrútum.
Gisting í tveggja manna herbergjum með sturtu eða baði
og salerni, loftkælingu og sjónvarpi.
7 gistingar í 5 stjörnu lúxus-strandhótelum (samkvæmt
stöðlum viðkomandi lands) á tyrknesku rivíerunni.
Innifaldar veitingar: 7 x morgunverðarhlaðborð.
Kynningar- og upplýsingarfundur.
Dagsferð: Skoðunarferð um Antalya (hádegisverður
ekki innifalinn).
Ókeypis notkun heilsusvæðis með sánu, gufubaði,
tyrknesku baði (Hamam) og innisundlaug.
Faglærðir enskumælandi fararstjórar með leiðsöguréttindi.
Innifalið í ferðinni eru:
Sérverð frá
116.311
á mann
Aðeins með
afsláttarkóða:
ISBA503
www.oska-travel.is Sími 5 711 888
Aukalega fyrir eins manns herbergi 20.700,- kr. á mann/viku (ef fáanlegt).