Fréttablaðið - 30.11.2013, Blaðsíða 72
KYNNING − AUGLÝSINGKirkjur LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 20132
Al l ir þek kja Hallgríms-kirkju, enda sést hún víða frá,“ segir Jón Dalbú Hró-
bjartsson sóknarprestur. „Það vita
hins vegar ekki allir hversu mikið
starf fer fram hér innandyra, sér-
staklega á aðventu. Við byrjum í
fyrramálið kl. 11 en þá er hátíð-
armessa með biskupi Íslands, frú
Agnesi M. Sigurðardóttur, en um
leið fer í gang jólasöfnun Hjálp-
arstarfs kirkjunnar,“ segir hann
ennfremur.
„Á aðventunni verða tólf messu-
gjörðir á sunnudögum og um há-
tíðir. Aðra daga vikunnar eru 22
bæna- og kyrrðarstundir. Prestar
hér sinna einnig þjónustu á Drop-
laugarstöðum en þar verða fimm
helgistundir í desember,“ segir
Jón Dalbú en annasamur tími er
að ganga í garð hjá prestum.
„Á vegum Hallgrímskirkju
verða ellefu jólatónleikar á að-
ventu. Fyrstu tónleikarnir verða
á morgun með Schola Cantorum
sem einnig verður með hádeg-
istónleika á miðvikudögum til
jóla. Mótettukórinn verður síðan
með jólatónleika um næstu helgi.
Einnig verða organistarnir með
sína tónleika,“ greinir Jón frá og
bætir við að fimm aðrir kórar verði
með tónleika í kirkjunni í desemb-
er, þar á meðal Karlakór Reykja-
víkur.“
Mikið líf er alltaf í og við Hall-
grímskirkju. Jón Dalbú segir að
um 1.000-1.500 erlendir ferða-
menn komi daglega í heimsókn
og ekkert lát sé á því þótt kom-
inn sé vetur. „Ferðamennirn-
ir setja mikinn svip á kirkjuna og
allt umhverfið í kringum hana.
Við reynum að taka vel á móti öllu
þessu fólki en margir setjast inn og
hlusta á æfingar. Við finnum fyrir
þakklæti þessa fólks fyrir að fá að
hlusta á fallega músík eða eiga
með okkur kyrrðarstund.“
Prestar kirkjunnar eru Jón
Dalbú og Birgir Ásgeirsson. Einnig
er starfandi í kirkjunni Irma Sjöfn
Óskarsdóttir héraðsprestur.
Ha l lg r í m s k i rk ja er með
heimasíðu þar sem hægt er að
kynna sér dagskrána í desember,
www.hallgrimskirkja.is.
Öflugt starf á aðventu
Hallgrímskirkja mun skarta sínu fegursta á aðventu, jafnt í messuhaldi,
tónleikum og fjölskrúðugu mannlífi. Aðventudagskrá hefst á morgun.
Sextán jólatónleikar verða í Hallgríms-
kirkju á aðventunni. MYND/GVA
Jón Dalbú Hróbjartsson, sóknarprestur í Hallgrímskirkju, segir að nú sé annasamur en
skemmtilegur tími fram undan í kirkjunni. MYNDIR/GVA
Fríkirkjan í Hafnarfirði er 100 ára á þessu ári og af því til-efni gefur söfnuðurinn út
sögu kirkjunnar sem ber titilinn
Loksins klukknahljómur. Í bók-
inni er rakin saga safnaðarins sem
var stofnaður að vori og byggði
kirkju að hausti 1913. Hún er um
leið saga mannlífs í bænum á sinn
hátt og hefur fengið afar góðar við-
tökur lesenda.
Sigríður Valdimarsdóttir, kenn-
ari og djákni við Fríkirkjuna í
Hafnarfirði, er einn höfunda bók-
arinnar. „Ég tók að mér að vera
með í ritun þessarar bókar því ég
tel sögu kirkjunnar mjög merki-
lega og nauðsynlegt fyrir framtíð-
ina að eiga aðgengilegar upplýs-
ingar um söfnuðinn og það óeig-
ingjarna starf sem hér hefur verið
unnið. Að hugsa til þess að árið
1913 var hægt að stofna söfnuð
og byggja kirkju með handaflinu
einu saman og mikið í sjálfboða-
vinnu er ótrúlegt.“
Höfundar lúslásu fundargerða-
bækur safnaðarstjórnar, kven-
félagsins og bræðrafélagsins auk
fjölmiðlaefnis um söfnuðinn frá
því fyrir 1913 og ýmsar aðrar heim-
ildir. „Allt þetta efni notuðum við
síðan til að skrifa söguna. Við feng-
um fjölmargar myndir til að birta
í bókinni, áttum líka töluvert af
þeim sjálf og enn aðrar voru teknar
á meðan á vinnu við bókina stóð.“
Sigríður er fædd inn í söfnuð-
inn, ef svo má segja. „Ég er mjög
tengd kirkjunni og þá sérstaklega
kvenfélaginu og öllu barnastarfi.
Foreldrar mínir báðir voru í söfn-
uðinum og þeirra foreldrar einn-
ig. Má því segja að ég hafi feng-
ið fríkirkjuandann í vöggugjöf.
Mamma var í kvenfélaginu í mörg
ár, þar af varaformaður í samtals
þrettán ár og það gerði hún þrátt
fyrir að segjast ekki geta staðið
upp á fundum og talað.“
Bókinni fylgir diskur með Frí-
kirkjukórnum og einsöng Ernu
Blöndal. Hún kostar 4.900 kr. og
fæst í safnaðarheimilinu, Fjarðar-
kaupum, Blómabúðinni Burkna,
Kirkjuhúsinu, á Hrafnistu, hjá
Hár-Ellý og í vefverslun safnaðar-
ins á www.frikirkja.is.
Fékk fríkirkju-
andann í vöggugjöf
Nýverið kom út saga Fríkirkjunnar í Hafnarfirði sem er 100 ára í ár.
Fjölmargar skemmtilegar myndir prýða bókina.
Fríkirkjan og Hafnarfjarðarkirkja sjást hér um 1920. MYND/ÚR EINKASAFNI
Sunnudaginn 1. desember, fyrsta í aðventu, verður árlegur basar
Fríkirkjunnar Kefas, Fagraþingi 2a í Kópavogi, milli kl. 13-17. Á basarnum
verður happadrætti fyrir börn og fullorðna með flottum vinningum á öllum
miðum! Heimabakað bakkelsi á góðu verði, fallegar gjafavörur, handverk,
bækur, mynddiskar og tónlist. Einnig má kaupa sérlega vönduð kerti frá
Heimaey í Vestmannaeyjum og rennur ágóðinn af þeirri sölu til
sunnudagaskóla kirkjunnar.
Gómsætar vöfflur, rjúkandi kaffi eða gos verða til sölu og hægt verður að
njóta veitinganna undir lifandi hátíðartónlist sem tónlistarhópur kirkjunnar
flytur yfir daginn ásamt góðum gestum; hjónunum Evu Dögg og Einari, Ingunni
Huld, Blokkflautuhópnum og hljómsveitinni GIG. Einnig verður hægt að skoða
listaverk eftir sunnudagaskólabörn sem verða til sýnis í kirkjusalnum.
Endilega lítið við, upplifið skemmtilega
aðventu stemningu og gerið góð kaup!
Basar Fríkirkjunnar Kefas
1. des. 1. sd. í aðventu
● Hátíðarmessa og barnastarf
kl. 11.00.
● Biskup Íslands, frú Agnes M.
Sigurðardóttir, predikar.
● Upphaf jólasöfnunar Hjálp-
arstarfs kirkjunnar.
● Mótettukórinn syngur.
8. des. 2. sd. í aðventu
● Messa og barnastarf kl. 11.
● Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir
predikar.
● Karlakór Reykjavíkur syngur.
15. des. 3. sd. í aðventu
● Messa og barnastarf kl. 11.00.
● Sr. María Ágústsdóttir pre-
dikar.
● Kvennakór Háskóla Íslands
syngur
● Christmas Carols kl. 14.00.
22. des. 4. sd. í aðventu
● Fjölskylduguðsþjónusta
kl. 11.00 í umsjá Ingu Harð-
ardóttur æskulýðssfulltrúa
og sr. Jóns D. Hróbjartsson-
ar.
● Jólasöngvar. Fiðlusveit úr
Allegro-skólanum leikur,
● Jólakór barna í Hallgríms-
kirkju syngur.
● Áróra Gunnarsdóttir leikur
á horn.
24. des. aðfangadagur jóla
● Aftansöngur kl. 18.00.
● Sr. Birgir Ásgeirsson predikar
● Miðnæturguðsþjónusta á
jólanótt kl. 23.30.
● Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson
predikar.
● Rannveig Káradóttir syngur
einsöng.
● Mótettukórinn syngur í
báðum athöfnunum.
● Jólatónlist flutt fyrir báðar
athafnirnar af organistum
kirkjunnar, Herði Áskelssyni
og Birni S. Sólbergssyni.
25. des. jóladagur
● Hátíðarguðsþjónusta kl.
14.00
● Inga Harðardóttir æskulýðs-
fulltrúi predikar.
● Mótettukórinn syngur.
26. des. annar í jólum
● Hátíðarguðsþjónusta kl.
14.00 með Drengjakórnum.
● Sr. Birgir Ásgeirsson prédik-
ar.
29. des. sd. milli jóla og nýárs
● Messa kl. 11.00.
● Sr. María Ágústsdóttir pré-
dikar.
● Mótettukórinn syngur.
● Ensk messa kl. 14.00 í umsjá
sr. Bjarna Þ. Bjarnasonar.
31. des. gamlársdagur
● Hátíðarhljómar kl. 17.00 í
umsjá Harðar Áskelssonar
kantors.
● Aftansöngur kl. 18.00. Sr. Jón
Dalbú Hróbjartsson pré-
dikar.
● Mótettukórinn syngur.
1. jan. nýársdagur
● Hátíðarmessa kl. 14.00.
● 400 ára afmælisár Hallgríms
Péturssonar hefst.
● Sr. Birgir Ásgeirsson prédik-
ar.
● Mótettukórinn syngur.
HELGIHALD Á AÐVENTU OG
JÓLUM Í HALLGRÍMSKIRKJU
Sigrún Valdimarsdóttir er einn höfunda bókarinnar. MYND/GVA