Fréttablaðið - 30.11.2013, Page 82
| ATVINNA |
Laust er til umsóknar starf sérfræðilæknis í gigtlækningum.
Starfið veitist frá 15. mars 2014 eða eftir samkomulagi.
Stefnt er að því að um fullt starf verði að ræða en starfshlut-
fall getur þó verið samkvæmt nánara samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
» Vinna á legu-, dag- og göngudeild gigtlækninga
» Vinna við samráðskvaðningar á aðrar deildir Landspítala
» Þátttaka í vaktþjónustu gigtarlækna
» Þátttaka í almennum lyflækningum sem fer fram að hluta á
bráðalyflækningadeild
» Þátttaka í kennslu og rannsóknarstarfi
» Þátttaka í vinnu í gagnagrunn líftæknilyfja á gigtardeild
Hæfnikröfur
» Sérfræðiviðurkenning á Íslandi í almennum lyflækningum
og gigtlækningum
» Breið þekking og reynsla í almennum lyflækningum og
gigtlækningum
» Reynsla í kennslu og rannsóknarvinnu
» Góðir samskiptahæfileikar
Umhyggja • Fagmennska • Öryggi • Framþróun
Laun samkvæmt samningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra. Sótt er um starfið
rafrænt á; www.landspitali.is, undir „laus störf“. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
um ráðningu hefur verið tekin. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum.
Nánari upplýsingar um forsendur ráðningar er að finna á heimasíðu Landspítala.
Nánari upplýsingar
» Umsóknarfrestur er til og með 15. janúar 2014.
» Upplýsingar veitir Kristján Steinsson, yfirlæknir, netfang
krstein@landspitali.is, sími 543 1000.
» Umsóknum fylgi vottfestar upplýsingar um nám, fyrri störf,
reynslu af kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum
ásamt sérprentun eða ljósriti af greinum sem umsækjandi
kann að hafa birt eða skrifað.
» Umsóknargögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu
berast, í tvíriti, Kristjáni Steinsyni, yfirlækni gigtlækninga,
LSH E7 Fossvogi.
» Mat stöðunefndar læknaráðs Landspítala byggist
á innsendum umsóknargögnum. Viðtöl verða við
umsækjendur og ákvörðun um ráðningu í starfið byggir
einnig á þeim.
» Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr.
yfirlýsingu LSH vegna kjarasamnings sjúkrahúslækna dags.
2. maí 2002, sbr. breytingu 5. mars 2006.
GIGTLÆKNINGAR
Sérfræðilæknir
Laus eru til umsóknar störf sjúkraþjálfara á Landspítala.
Aðsetur og starfshlutfall eru eftirfarandi;
Sjúkraþjálfun Fossvogi, 80% starf sem veitist frá 15. des.
2013 og 80% afleysingastarf sem veitist frá 1. jan. 2014 til
31. des. 2015.
Sjúkraþjálfun Grensási, 80% starf sem veitist frá 1. jan.
2014 og 100% afleysingastarf sem veitist frá 1. jan. 2014
til 31. ágúst 2014.
Sjúkraþjálfun í Fossvogi sinnir bráðadeildum og göngu-
deildum með gæsluvöktum á kvöldin og um helgar.
Sjúkraþjálfun á Grensási sinnir fjölbreyttri og sérhæfðri
endurhæfingu sjúklinga m.a. með skaða í miðtaugakerfi,
fjöláverka og aflimanir auk almennrar endurhæfingar.
Í sjúkraþjálfun er lögð áhersla á fagþróun, rannsóknir og
kennslu heilbrigðisstétta og þverfaglegt samstarf.
Helstu verkefni og ábyrgð
» Ábyrgð á þeirri sjúkraþjálfun sem hann veitir og mat á
árangri meðferðar
» Skráning og skýrslugerð
» Fræðsla og skipulagning starfa aðstoðarfólks sjúkraþjálfara
á deild/um
» Fræðsla til sjúklinga og aðstandenda
» Þátttaka í þverfaglegu samstarfi/teymi
» Þátttaka í fagþróun
» Meðferð sjúklinga vegna forfalla annarra sjúkraþjálfara á
starfsstöð
Hæfnikröfur
» BS próf í sjúkraþjálfun eða sambærilegt próf
» Íslenskt starfleyfi sem sjúkraþjálfari
» Hæfni í mannlegum samskiptum
» Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Umhyggja • Fagmennska • Öryggi • Framþróun
Laun samkvæmt samningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra. Sótt er um starfið
rafrænt á; www.landspitali.is, undir „laus störf“. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
um ráðningu hefur verið tekin. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum.
Nánari upplýsingar
» Umsóknarfrestur er til og með 14. desember 2013.
» Upplýsingar veita eftirfarandi yfirsjúkraþjálfarar:
Ragnheiður S. Einarsdóttir, ragnheie@lsh.is, sími 543 9306
Sara Hafsteinsdóttir, sarahf@lsh.is, sími 543 9136
Sigrún Knútsdóttir, sigrunkn@lsh.is, sími 543 9104.
SJÚKRAÞJÁLFUN
Sjúkraþjálfarar
Jafnaðarmenn í Norðurlandaráði
auglýsa eftir starfsmanni.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
Meistaragráða æskileg.
• Mjög góð þekking á norrænum stjórnmálum
og Norðurlöndunum almennt.
• Reynsla af pólitísku starfi.
• Reynsla af rekstri og fjármálastjórnun.
• Miklir skipulagshæfileikar.
• Umsækjandi þarf að geta unnið sjálfstætt.
• Mjög gott vald á dönsku, norsku eða sænsku,
bæði í töluðu og rituðu máli. Önnur
tungumálakunátta er kostur.
Helstu verkefni:
• Að leiða daglegt starf Jafnaðarmanna í Norður-
landaráði og veita meðlimum og öðrum
starfsmönnum ráðgjöf og upplýsingar.
• Að bera ábyrgð á rekstri og samskiptum út á við.
• Undirbúningur funda og annarra verkefna.
• Eftirfylgni og samþætting pólitískrar vinnu.
• Að vakta umræður og málefni er varða starf
Norðurlandaráðs.
Við erum að leita að jafnaðarmanni með mikinn
áhuga á norrænum málefnum. Núverandi starfsstöð
er Kaupmannahöfn, þar sem skrifstofur Norður-
landaráðs og Norrænu ráðherranefndarinnar eru
staðsettar, en til greina kæmi að starfsmaðurinn yrði
staðsettur í einhverri hinna höfuðborga
Norðurlandanna. Starfsmaðurinn heyrir beint undir
stjórn Jafnaðarmanna í Norðurlandaráði og vinnur
samkvæmt verklagsreglum sem hún setur. Töluverð
ferðalög innan Norðurlandanna fylgja starfinu.
Umsóknir og launaóskir skal senda í tölvupósti eigi
síðar en 15. desember nk. til formanns
Jafnaðarmanna í Norðurlandaráði Helga Hjörvar
(helgih@althingi.is) og varaformanns
Maarit Feldt-Ranta (maarit.feldt-ranta@riksdagen.fi).
Jafnaðarmenn í Norðurlandaráði er samstarfs
vettvangur 26 þingmanna jafnaðarmanna á þjóðþingum
Norðurlandanna sem sæti eiga í Norðulandaráði
kopavogur.is
Kópavogsbær
Spennandi störf
hjá Kópavogsbæ
· Grunnskólakennari, yngsta stig í
Hörðuvallaskóla
· Grunnskólakennarar í forfallakennslu í
Smáraskóla
· Leikskólakennari á leikskólann Baug
· Leikskólakennari á leikskólann Læk
· Stuðningsfulltrúi á áfangaheimili fyrir fatlaða
· Starfsmenn í íbúðarkjarna fyrir fatlaða
· Þroskaþjálfi í íbúðarkjarna fyrir fatlaða
· Ritari á menntasvið Kópavogsbæjar
Nánari upplýsingar og fleiri störf er að finna á
vef Kópavogsbæjar
Eingöngu er hægt að sækja um störfin rafrænt
á vef Kópavogsbæjar www.kopavogur.is
Dalvegi 6-8
201 Kópavogur
Sími 535 3500
www.kraftvelar.is
kraftvelar@kraftvelar.is
Vegna aukinna umsvifa vantar okkur sölumann fyrir Iveco sendibíla,
Iveco vörubíla og Komatsu vinnuvélar.
Um e r að r æða krefjandi starf sem felur í sér sölu á s endibílum, v örubílum o g
vinn vu él mu . Einnig h eimsóknir til viðskiptavina mu l and allt á samt s amninga- o g
tilboðsgerð.
Umsækjandi þarf að að hafa víðtæka þekkingu á sendibílum, vörubílum
og v innuvélum. H ann þarf a ð vera f ramsækinn, á reiðanlegur,
ósérhlífinn og hafa getu til að skipuleggja starf sitt og vinna
sjálfstætt. Umsækjandi þarf að hafa gott vald á íslensku og ensku.
yUmsóknir skulu sendar á heida@kraftvelar.is f rir 14. desember.
Öllum umsóknum verður svarað.
30. nóvember 2013 LAUGARDAGUR10