Fréttablaðið - 30.11.2013, Síða 90
KYNNING − AUGLÝSINGKirkjur LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 20134
AGNES BLESSAÐI KÆRLEIKSKÚLUNA
Fyrsta Kærleikskúlan 2013 var afhent í vikunni. Það var Hrefna Haraldsdóttir sem fékk hana afhenta fyrir störf sín í þágu fatlaðra.
Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, flutti ávarp við athöfnina og blessaði Kærleikskúluna. Hún ræddi um umhyggju og kærleika
og lét þess meðal annars getið að jóladagatal kirkjunnar í ár fjallar um kærleikann.
Kærleikskúlan í ár heitir Hugvekja og er hönnuð af Ragnari Kjartanssyni listamanni. Kúlan er nú seld í ellefta sinn en hún er gefin út
af Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra og er allur ágóði af sölu hennar notaður til að efla barna- og unglingastarf félagsins í Reykjadal.
Ragnar skrifar um Kærleikskúluna:
Það var jólanótt árið 1998 og ég sat niðri í stofu með föður mínum. Aðrir voru farnir í háttinn, kertin voru að brenna upp og það
rigndi ofan í jólasnjóinn. Faðir minn verður yfirleitt svolítið drukkinn á jólunum og honum finnst mikilvægt að nota hátíðleikann til að lesa
syni sínum lífsreglurnar. Þessi jól var hann í sérstaklega miklu stuði. Við reyktum vindla og hann var með koníaksglas í hendinni. Skyndilega sagði hann með
þungum andardrætti: „Ragnar, ég þarf að segja þér eitthvað það mikilvægasta sem ég mun nokkurn tíma segja þér.“ Hann lokaði augunum og það var löng
þögn. Svo sagði hann: „Það er fallegt en sorglegt að vera manneskja“. Þetta hafði djúpstæð áhrif á mig. Nú prýðir þessi sanna mótsögn Kærleikskúluna.
Það er einmitt mótsögnin sem alltaf situr í mér, sérstaklega á jólunum þegar við hlustum á prestinn tala í útvarpinu, poppararnir syngja um kærleik og frið og
við hugsum um stóra hluti. En lífið er aldrei „annaðhvort eða“ – aldrei annaðhvort harmþrungið eða gleðilegt, aldrei svart eða hvítt. Við lifum og deyjum á gráa
svæðinu. Þar byggjum við okkar bústað. Hlutskipti okkar, hvers og eins, er bæði sorglegt og fallegt.
Kærleikskúlan verður til sölu víða frá 5. til 19. desember.
ELSTU KIRKJUR LANDSINS
Dómkirkjan á Hólum var byggð
á árunum 1757-63 úr steini og
vígð 1763. Hún telst elsta kirkja
landsins.
Kirkjan að Gröf á Höfðaströnd
gæti þó mögulega talist eldri að
stofninum til en byggingarsögu
hennar má rekja aftur á 17. öld.
Kirkjan var lögð niður 1765 og
notuð sem skemma. Skipt var um
allan við í kirkjunni 1950 og hún
endurvígð 1953.
Bænahúsið á Núpsstað í Fljóts-
hverfi má einnig rekja aftur til 17.
aldar. Lítið er þó af upprunalegu
byggingarefni í húsinu en það var
endurbyggt árið 1972 .
Viðeyjarkirkja var hlaðin úr
steini á árunum 1767 til 1774
og telst næstelsta steinkirkja
landsins.
Landakirkja í Vestmannaeyjum
var byggð á árunum 1774 til
1778 og telst þriðja elsta kirkja á
Íslandi.
Bygging Dómkirkjunnar í
Reykjavík hófst árið 1787. Hún var
vígð árið 1796
Bessastaðakirkja var byggð á
árunum 1773 til 1823. Hún var
vígð árið 1796.
Víðimýrarkirkja í Skagafirði var
reist árið 1834.
Heimild: Wikipedia.org
FYRSTA KERTIÐ MINNIR Á
FYRIRHEIT SPÁMANNA
Fyrsti í aðventu er á morgun,
sunnudaginn 1. desember.
Dagurinn markar upphaf nýs
kirkjuárs og hefst um leið form-
legur jólaundirbúningur í kirkjum
landsins. Mörg heimili setja upp
aðventukrans og kveikja á fyrsta
kertinu þann daginn auk þess
sem kveikt er á fyrsta kertinu í
sunnudagsskólum landsins.
Aðventukransinn ber fjögur
kerti. Fyrsta kertið sem kveikt
er á heitir Spádómskerti og á
að minna á fyrirheit spámanna
Gamla testamentisins sem höfðu
sagt fyrir um komu spámanns-
ins. Annan í aðventu er kveikt á
Betlehemskertinu sem er ætlað
að beina athygli að borginni
Betlehem þar sem Jesús fæddist.
Þriðja kertið heitir hirðakerti
en þar er vísað í að fátækir og
ómenntaðir fjárhirðar fengu
fyrstir tíðindin um fæðingu Jesú.
Fjórða í aðventu er svo kveikt
á síðasta kertinu sem nefnist
englakerti. Það minnir okkur á þá
sem fluttu fregnina um fæðingu
frelsarans.
Aðventukransinn byggir á
norður-evrópskri hefð en siðurinn
barst ekki til Íslands fyrr en eftir
seinni heimsstyrjöldina. Upphaf-
lega var hann notaður sem skraut
í verslunum og veitingahúsum en
þeir urðu algengir á heimilum á
sjöunda áratug síðustu aldar.