Fréttablaðið - 30.11.2013, Page 98
KYNNING − AUGLÝSINGFerðir LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 20136
Malaví er eitt fátækasta land ver-
aldar. Landið er litlu stærra en Ís-
land og þar búa rúmlega 16 millj-
ónir manna. Um tveir þriðju
landsmanna eru kristnir en fyrir
flesta landsmenn snúast þó jólin
ekki um jólagjafir og góðan mat
heldur einfaldlega að eiga fyrir
einhverjum mat.
Guðmundur Rúnar Árnason
hefur starfað fyrir Þróunarsam-
vinnustofnun Íslands í Malaví í
rúmt ár. Hann eyddi fyrstu jólum
sínum þar í fyrra og segir þau
hafa verið mjög frábrugðin þeim
sem hann á að venjast á Íslandi.
„Í fyrsta lagi getur veðrið varla
verið ólíkara en hitinn hér kring-
um jólin er á milli 25 og 35 gráður
og oft sólskin þótt jólin séu á miðju
regntímabili. Í öðru lagi er allstór
hluti landsmanna múslímar, eða
um 30% og þeir halda ekki upp
á jól. Raunar eyddum við drjúg-
um hluta af jólafríinu í héraði þar
sem hlutfall múslima er um 70%.
Í þriðja lagi er Malaví með fátæk-
ustu löndum á jarðkringlunni.
Hinn almenni Malavi hefur því
trúlega um annað að hugsa en
jólahald. Í staðinn fyrir lúxus-
áhyggjur eins og hvort þeir eigi að
borða hamborgarhrygg eða rjúpu
á aðfangadag snúast áhyggjurn-
ar hjá þeim fátækustu frekar um
það hvort takist að ná í eitthvað
að borða fyrir börnin. Við það
bætist að jólin eru á þeim árstíma
þegar þrengst er í búi hjá flestum
Malövum og matur frá síðustu
uppskeru jafnvel uppurinn hjá
sumum fjölskyldum og enn all-
langt í þá næstu.“
Lítið um jólaskraut
Að sögn Guðmundar rey na
kristnir Malavar að gera sér daga-
mun í mat og drykk yfir jólahátíð-
ina hafi þeir tök á því. „Þá borða
þeir hrísgrjón í stað nsima, sem er
maísmauk og uppistaðan í fæðu
Malava árið um kring, og ef til vill
kjötbita, til dæmis kjúkling og kók
eða bjór ef vel stendur á. Án þess
að ég hafi heyrt minnst á jólakött-
inn, þá reyna Malavar á jólum að
klæðast sínu besta pússi og reyna
að eignast „ný“ föt sem eru oftast
keypt á markaði með notuð föt.“
Lítið er um jólaskreytingar
í Malaví að sögn Guðmundar,
nema þá helst í sárafáum versl-
unum í höfuðborginni Lílongve.
„Við eyddum jólum og áramót-
um árið 2010 á Indlandi og þar
var miklu meira um að vera. Þrátt
fyrir þetta litla og fábreytilega til-
stand með umgjörðina held ég að
kristnir Malavar séu mun duglegri
í að iðka helgihald og líklega meira
með hugann við það en við eigum
að venjast. Þeir kristnu Malavar
sem ég hef kynnst eru bæði trúaðir
og kirkjuræknir.“
Jólin hjá fjölskyldunni
Síðustu jól voru þau einu Íslend-
ingarnir í Malaví, eftir því sem
Guðmundur veit best. Annar
sonur þeirra hjóna kom þó í heim-
sókn og íslenskur vinur þeirra,
sem býr í Liverpool, ásamt konu
sinni. „Við vorum heima á að-
fangadag og jóladag, settum upp
gervijólatré með ljósum og kúlum
og höguðum okkur líkt og við
gerum á Íslandi, gerðum sem sagt
fátt annað en að lesa og borða.
Annars fórum við víða með gest-
ina, skoðuðum villt dýr og fórum
niður að Malavívatni, þar sem við
eyddum áramótunum.“
Hann segir að þau muni eyða
jólunum á líkan hátt að þessu
sinni. „Við eigum von á vinafólki
frá Íslandi og hlökkum mikið til.
Það er meiningin að sýna gest-
unum eitthvað af umhverfinu og
hvernig fólk býr. Ætli við verð-
um samt ekki heima á aðfanga-
dag. Hvað við borðum verður að
ráðast, ég hef a.m.k. ekki áhyggj-
ur af því að við töpum kjörþyngd.
Það verða f leiri Íslendingar hér
um jólin, a.m.k. ein eða tvær fjöl-
skyldur. Við hittumst vafalítið
eitthvað og reynum að skapa jóla-
stemningu í sólinni.“
Halda jólin í Malaví
Mikil fátækt ríkir í Malaví sem er í suðausturhluta Afríku. Stór hluti
landsmanna er kristinn og heldur upp á jólin. Aðaláhyggjur þeirra snúast þó
ekki um hvað skuli vera í matinn heldur hvort mat sé einfaldlega að fá.
Mikil náttúrufegurð er í Malaví. MYND/ÚR EINKASAFNI
Innfæddar konur í jólainnkaupum í fyrra. MYND/ÚR EINKASAFNI
Guðmundur og fjölskylda halda jólin í Malaví annað árið í röð. MYND/ÚR EINKASAFNI
Ný alþjóðleg ferðaskrif-
stofa opnuð á Íslandi
Ferðaskrifstofan Nazar, sem er með starfsemi í Svíþjóð, Danmörku,
Noregi og Finnlandi, var opnuð á Íslandi í nóvember. Nazar stend-
ur fyrir sölu á ferðum til Tyrklands en flogið er beint frá Keflavík til
Antalya einu sinni í viku í allt sumar.
„Það er gamall draumur okkar að hefja starfsemi á Íslandi. Ætl-
unin var að byrja mun fyrr en hrunið tafði þær áætlanir um nokkur
ár,“ segir Kemal Yamanlar, framkvæmdastjóri Nazar á Norðurlönd-
unum, sem telur tímasetninguna nú mjög góða til að hefja ferðir frá
Íslandi. „Við erum afskaplega glöð og fögnuðum áfanganum í dag
með risaköku sem skreytt var með íslenska fánanum.“
En er íslenski markaðurinn eftirsóknarverður? „Já, hann er það.
Við stefnum á að selja tíu þúsund ferðir innan þriggja ára frá Íslandi.
Til samanburðar erum við að selja fimmtán þúsund ferðir frá Dan-
mörku, þrjátíu þúsund frá Svíþjóð en allt í allt seljum við um hundr-
að þúsund ferðir árlega,“ segir Yamanlar en Nazar leggur töluverða
áherslu á yngri kynslóðina og býður upp á íslenska barnaklúbba,
dansskóla, sundskóla og einnig unglingaklúbba.
Nazar er tíu ára gömul ferðaskrifstofa með skrifstofur í Malmö
í Svíþjóð. Þar vinna þrjátíu manns en starfsfólkið er frá öllum
Norður löndunum, þar á meðal Íslandi.
Nazar er hluti af heimsins stærstu ferðasamsteypu, TUI Travel
Plc., sem er með starfsemi í yfir 180 löndum. Nazar tilheyrir TUI
Nordic-samsteypunni, sem er með aðalskrifstofur í Stokkhólmi og
nær yfir leiðandi ferðaskipuleggjendur í Danmörku, Svíþjóð, Noregi
og Finnlandi. Nazar er fyrsta TUI-fyrirtækið sem opnað er á Íslandi.
Megináhersla Nazar er á lúxusfjölskylduferðir til Tyrklands.
„Markmið okkar er að veita íslenskum gestum okkar íslenska þjón-
ustu, til dæmis með íslenskum krakkaklúbbum og fararstjórn,“ segir
Yamanlar, sem er yfir sig glaður yfir því hve mörg „like“ ferðaskrif-
stofan hefur fengið á Facebook. „Á fjórða degi okkar á Facebook
fengum við 2.200 læk á Íslandi, fleiri en þau læk sem við höfum feng-
ið í Danmörku og Finnlandi á fimm árum,“ segir hann og hlakkar til
að fljúga með íslenskar fjölskyldur til Tyrklands í sólina þar.
Ferðaskrifstofan Nazar skipuleggur fjölskylduferðir til Tyrklands.
bl
ek
ho
nn
un
.is