Fréttablaðið - 30.11.2013, Page 100
KYNNING − AUGLÝSINGFerðir LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 20138
TÍU BESTU HÓTEL MEÐ ALLT INNIFALIÐ
Tyrkland lendir oftast á lista þar sem tíu
bestu hótel í Evrópu með allt innifalið eru
valin. Það sýnir könnun sem gerð var á
Tripadvisor. Fimm af tíu bestu hótelunum
með allt innifalið eru í Tyrklandi, síðan kemur
Ítalía, Grikkland, Spánn, Kýpur og Portúgal.
Þegar allur heimurinn er tekinn með er
Mexíkó áberandi með flest hótel á toppnum.
Langbesta hótel í heimi með allt innifalið
að mati Tripadvisor er Iberostar Grand Hotel
Paraiso á Playa del Carmen í Mexíkó.
Evrópulistinn:
1. Voyage Belek Golf & Spa, Belek, Tyrklandi
2. Adler Thermae Spa & Relax Resort, Bagno
Vignoni, Ítalíu
3. Club Med Palmiye, Kemer, Tyrklandi
4. Louis Ledra Beach, Papfos, Kýpur
5. Iberostar Anthelia, Playa de Fanabe,
Spáni
6. Club Med Kemer, Kemer, Tyrklandi
7. Liberty Hotels Lara, Antalya, Tyrklandi
8. Pestana Porto Santo Beach Resort & Spa,
Porto Santo, Portúgal
9. Oceania Club, Nea Moudania, Grikklandi
10. Marmaris Imperial Hotel, Marmaris,
Tyrklandi
TREYSTA EKKI KVENKYNS
FLUGMÖNNUM
Fimmtíu og eitt prósent breskra
flugfarþega treystir ekki kvenkyns
flugmönnum samkvæmt könnun
sem ferðasíðan sunshine.co.uk
lét gera og sagt er frá í The Daily
Mail. Ástæðurnar eru þær að
kvenkyns flugmönnum gangi verr
að starfa undir álagi.
Tuttugu og sex prósent svarenda
sögðu kyn flugmannsins málinu
óviðkomandi en 14 prósent
treystu karlkyns flugmönnum
verr. Þeir sem efuðust um hæfni
karlanna sögðu að bráðlyndi
þeirra hefði áhrif á skoðun sína
auk þess sem karlar væru líklegri
til að missa athyglina.
Þessi mikla tortryggni gagnvart
kvenkyns flugmönnum getur
skýrst af því hversu fáir þeir eru.
Tíu prósent svarenda sögðu að
allir flugmenn sem þeir hefðu
flogið með hefðu verið karlkyns.
Í Huffington Post er bent á að
skýrsla frá 2010 sýni að af 266
þúsund flugmönnum í Banda-
ríkjunum hafi aðeins 8.715 verið
konur.
Helmingur breskra flugfarþega efast
um hæfni kvenkyns flugmanna.
NORDICPHOTOS/GETTY
TÖFRANDI JÓLAVERÖLD
Þjóðverjar eru þekktir fyrir
jólamarkaðina sína sem lýsa
upp borgir og bæi víðsvegar um
landið vikurnar fyrir jól. Í Berlín
einni fylla jólamarkaðirnir marga
tugi. Flestir eru opnaðir um
miðjan nóvember og þar magnast
jólastemningin dag frá degi.
Einn allra veglegasti jólamarkað-
ur Berlínar er á Gendarmenmarkt-
torginu þar sem frönsku og þýsku
dómkirkjurnar standa ásamt
konserthúsinu. Ljósaskreyting-
arnar skapa hálfgerða töfraveröld
á torginu og gestir gæða sér á
ristuðum möndlum, sykruðum
ávöxtum og öðru góðgæti.
Við Gendarmenmarkt stendur
líka stærsta „súkkulaðihús“
Evrópu, Fassbender og Rausch,
en þar er hægt að sjá súkulaði-
módel af ýmsu tagi og bragða á
óteljandi súkkulaðitegundum.
Á Gendarmenmarkt-torginu er að
finna veglegasta jólamarkaðinn í
Berlín. NORDICPHOTOS/GETTY
NJÓTTU ÞESS AÐ FERÐAST Á EINFALDAN HÁTT.
ÞÚ KEMST ÞANGAÐ
MEÐ OKKUR!
Áætlunarferðir Flugrútunnar eru í tengslum við allar
komur og brottfarir flugvéla um Keflavíkurflugvöll.
Kauptu miða núna á www.flugrutan.is
Alltaf laus sæti.
BSÍ - Umferðarmiðstöðin
101 Reykjavík
580 5400
Skannaðu strikamerkið
með snjallsímanum og
kynntu þér áætlunina.
Frí þráðlaus internet -
tenging í öllum bílum
BSÍ - Umferðarmiðstöðin
Reykjavík
Keflavíkurflugvöllur
Ferðatími er
um það bil