Fréttablaðið - 30.11.2013, Blaðsíða 101
Margt smátt ... – 7
Að hlúa að og opna dyr
Börn í örbirgð og börn á eigin vegum eru markhópur
Hjálparstarfsins. Í Úganda fá munaðarlaus börn nýtt
húsnæði, vatnstank, sér eldhús með sparhlóðum og
nauðsynlegasta innbú. Þeim er kennd jarðrækt til
framfærslu og mörg fá stuðning til að ganga í skóla.
Ráðgjafi heimsækir þau reglulega og hjálpar þeim að
finna leið til að framfleyta sér. Sum læra að sníða og
sauma, önnur að smíða, múra og gera við. Þeim
stendur einnig til boða hópvinna með fagfólki til að
vinna úr áföllum, missi sínum og mótlæti. Á Indlandi
eru reknir forskólar fyrir stéttlaus börn til að kynna
þeim og foreldrum hvað felst í menntun og venja börnin
á skólagöngu. Í skóla fá þau kennslu, mat, bólusetningar
og tækifæri til leikja. Haft er upp á þrælabörnum og
þeim komið í kvöldskóla. Þar fá þau fræðslu um réttindi
sín, þar styrkist sjálfsmynd þeirra og þau öðlast nýja
færni. Foreldrar eru styrktir í uppeldishlutverkinu og í
því að sjá fjölskyldunni farborða án launa barnanna.
Börn og foreldrar læra að spara fyrir skólaútgjöldum í
stað lána sem binda í ánauð. Þau fá mótframlag frá
verkefninu. Þegar kvöldskólanum lýkur, eftir 6 mánuði,
er skuld barnanna greidd og þau skráð í almenna skóla.
Öllum er vel fylgt eftir. Á Indlandi styður Hjálparstarfið
heimavist. Þar fá börn nauðsynlega heilsuþjónustu og
næringarríkan mat, fatnað og skóladót sem til þarf.
Starfsfólk veitir stuðning við heimalærdóm, undirbúning
fyrir próf og fræða um samfélagslegar skyldur, hreinlæti
o.fl. Mikið er um dans og leiklist í skólastarfinu. Iðngreina-
nám stendur ungmennum til boða eða tvö fyrstu ár
framhaldsskóla. Í Eþíópíu eru skólar búnir kennslu- og
námsgögnum og námskeið haldið fyrir skólastjóra,
opinbera starfsmenn, þorpsleiðtoga og foreldra um
leiðir til að fjölga stúlkum í skóla og koma í veg fyrir
brottfall þeirra.
Eþíópía, Indland og Úganda
• Kröfugöngur, viðburðir, þrýst á stjórnvöld um
barnavernd og skólaskyldu.
• Sumarnámskeið, nýliðanámskeið, skólaferðalög fyrir
þrælabörn.
• Fullorðinsfræðsla um réttindi barna, gott uppeldi,
skólagöngu, gegn barnabrúðkaupum.
• Barnaþing kenna börnum lýðræðislegar leiðir í mann-
réttindabaráttu.
• Umhyggja, leiðsögn.
• Öryggi.
• Greidd skólagjöld, föt, námsgögn.
GERÐU VERÐSAMANBURÐ! - FÁÐU UPPLÝSINGAR OG TILBOÐ Á WWW.DEKKJAHOLLIN.IS
www.dekkjahollin.is
AKUREYRI EGILSSTAÐIR REYKJAVÍK REYKJAVÍK
GÆ
ÐA DEKK Á
V E R Ð I
BETRA
Gjafabréf
fyrir fjölskyldu í Afríku.
Fyrir andvirði þessa gjafabréfs verður
fátækri fjölskyldu í Úganda eða Malaví
gefin geit. Fjölskyldurnar, þ.á m. mun-
aðarlaus börn sem búa ein, taka þá tt
í þróunarverkefni með Hjálp
kirkjunnar. Fyrst er vatns aflað og það arstarfi
svo nýtt til a ð ve ta á i kra a, til a ð gera
fiskiræktartjarnir eða til að halda skepnur.
Geit gefur af sér mjólk, tað til áburðar,
afkvæmi o g skinn sem ý mist má nota
heima eða selja fyrir nauðþurftum. Taðið
bætir uppskeruna, fæðan verður fjöl-
breyttari með prót ínum geitaafurðanna
og heilsan batnar. Afkoman verður
öruggari en með uppskerunni einni
saman og lífsgæðin meiri.
Geit