Fréttablaðið - 30.11.2013, Page 102

Fréttablaðið - 30.11.2013, Page 102
8 – Margt smátt ... Sjálfstæði og ný tækifæri – valdefling kvenna Fræðsla gegn HIV – lyf, ráðgjöf og eftirfylgd Aukin áhrif kvenna á verkefnasvæðum Hjálparstarfsins leyna sér ekki. Konurnar eru farnar að standa fyrir eigin atvinnustarfsemi eftir að hafa fengið þjálfun í því. Þær hafa nú tekjur sem þær ráðstafa sjálfar. Þær læra um mikilvægi sparnaðar og fá síðan lán til að auka tekjumöguleika sína eða bæta aðstæður sínar. Þetta hefur leitt til valdeflingar, sterkari sjálfsmyndar og meiri virðingar samfélagsins í garð kvenna. Konur fá fræðslu um réttindi sín í velferðarkerfinu. Haldnir eru fræðslufundir fyrir konur og karla um lögvarin réttindi þeirra, t.d. um skaðlegar hefðir eins og umskurð kvenna. Viðhorfsbreyting hefur orðið með góðu samstarfi við þorps- og trúarleiðtoga. Fjölgun stúlkna í skóla er bein afleiðing af tilkomu vatnsþróa, vatnstanka og brunna. Þeir hafa gjörbreytt aðstæðum stúlkna sem bera þær skyldur að sækja vatn. Tíminn sem í það fer hefur minnkað svo mikið að þær geta lokið þessum skyldustörfum áður en skólinn hefst. Aukin menntun er síðan stórt skref í allri framþróun og vitund um réttindi. Í ár var haldinn sérstakur fundur með skólastjórum, opinberum starfsmönnum, trúar- leiðtogum og fulltrúum foreldra um leiðir til að fjölga stúlkum í skóla og draga úr brottfalli. Þannig verða verkefni Hjálparstarfsins til þess að konur verða virkir þjóðfélagsþegnar, ekki aðeins þjónustufólk, sér og samfélaginu til gagns. Langt er í jafnrétti kynja en hér eru stigin skref í átt að því markmiði. Meðal annars þetta er gert til að efla konur: • Samtalshefðum er breytt. • Konur, fátækir og fatlaðir fá aðild að ákvörðunum þopsins. • Heilsu- og næringarfræði fyrir 2OO konur. • Spari- og lánasjóðir efla konur fjárhagslega. • Námskeið fyrir konur um velferðarkerfið. • Samstarf, námskeið og þjálfun fyrir opinbera starfs- menn til að veita betri þjónustu. Við öll Afríkuverkefni Hjálparstarfsins tvinnast barátta gegn HIV/alnæmi og afleiðingum þess. Sjálfboðaliðar eru þjálfaðir til að hafa upp á sjúkum eða munaðarlausum börnum í afskekktum kofum og koma þeim til hjálpar með aðhlynningu, fræðslu, ráðgjöf og efnislegri aðstoð. Einnig eldri konum með barnabörn á framfæri. Í aðstoðinni felst að byggja hús og eldhús, reisa vatns- tanka sem safna rigningarvatni og kamra. Munaðar- laus börn fá kennslu, til dæmis í að flétta mottur og selja og um ræktun; þau fá áhöld og þau fræ sem henta best og þau eru studd til skólagöngu. Matjurta- rækt tryggir fjölbreytta fæðu til vaxtar börnum og alnæmissjúkum til næringar. Án hennar eru HIV-lyf til lítils. Fólk er hvatt í HIV-próf og hjálpað til að fá lyf. Yfirsetukonur eru þjálfaðar í að taka á móti börnum smitaðra mæðra. Með íbúum er farið yfir venjur sem eru skaðlegar konum og börnum. Þar á meðal er umskurður og að skera úfinn úr börnum. Það felur í sér gríðarlega hættu á HIV-smiti og sýkingum. Unnið er með trúar- og þorpsleiðtogum sem geta haft áhrif á fólkið. HIV-smitaðir taka þátt í fræðslu um sjúkdóminn og vinna gegn fordómum sem enn eru miklir. Að fá vatn úr nálægum brunni, tanki eða vatnsþró sparar sjúkum erfiðisvinnu og eykur hreinlæti sem er sérlega mikilvægt þeim sem hafa lamað ónæmiskerfi. Meðal annars þetta er gert í verkefnum í Eþíópíu og Úganda: • Frætt um smitleiðir. • 492 fóru í HIV-próf í Eþíópíu. • HIV-klúbbar stofnaðir í tugum skóla sem fræðsluvett- vangur. • Kennarar þjálfaðir til að leiða starfið. • 1O yfirsetukonur lærðu m.a. um HIV og barnsburð. Hreinlæti. • Kamrar reistir. • Ráðgjöf og stuðningur. • Barátta gegn fordómum. Kona í Malaví. Mynd: Paul Jeffrey / ACT Alliance. Ungar konur á verkefnasvæði Hjálparstarfsins í Austur-Eþíópíu. Móðir í Úganda með börn sín. Hún er með HIV-veiruna en fær lyf. Byggt hefur verið hús og vatnstankur fyrir fjölskylduna.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.