Fréttablaðið - 30.11.2013, Side 110

Fréttablaðið - 30.11.2013, Side 110
30. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 70 ➜ Þessi tvö greindu spendýr létu sig félagslegar hefðir engu varða, fundu hvor aðra og urðu næsta óaðskiljan- legar. Óvænt vinátta Höfundur: Jennifer S. Holland Útgáfa: Bókafélagið Fjöldi síðna: 210 bls. Skúfpáfinn og kötturinn Með því að klóra ketti á bak við eyrun eignast maður lífstíðar-vin. En hvað ef sá sem klórar er með fjaðrir, gogg og fugls- fætur? Það virtist ekki skipta máli fyrir Lucky, ungan flækingskettling, sem var svo heppinn að Libby Miller og Gay Fort- son í Savannah í Georgíu björguðu henni. Þegar Lucky var tekin inn á heimilið þurfti hún að búa með Coco, hvatvísum og framhleypnum skúfpáfa sem tók köttinn mjúkum tökum. Coco sat á háum fótagaflinum á rúmi eigenda sinna einn morguninn og Lucky, sem hafði ekki enn komist í návígi við fuglinn, hlýtur að hafa verið í felum undir rúminu. Þegar Libby gekk inn í herberg- ið „voru þau saman í rúminu“. Hún hafði áhyggjur af því að önnur myndi meiða hina en „Coco bar sig svo mjúklega að! Hún strauk Lucky með öðrum fætinum og gekk síðan fram og aftur á höfðinu á henni. Lucky virtist standa á sama.“ Libby náði í upptökuvél og myndaði þessi skrítnu samskipti. Myndbandið rataði á internet- ið og hefur breiðst út eins og eldur í sinu. „Fólk um allan heim hefur unun af að sjá hvernig þeim semur,“ segir hún. Dýrin tvö halda áfram að vera góðir sambýlingar þrátt fyrir að fuglinn hafi alla burði til að meiða köttinn með sterk- um gogg og klóm. Coco rekur örmjóa tunguna inn í lítil eyru kattarins eða hnoð- ast með hann og kjáir við hann og virðist heilluð af bragðinu af mjúkum feldi og mjúkum líkama. Lucky finnst þetta gott og veltir sér á bakið til að bjóða upp á að maginn sé nuddaður. Á kvöldin sitja kötturinn og fuglinn hin ánægðustu í kjöltu eigendanna og „tjilla“ ásamt hundunum fjórum sem eru á heim- ilinu. Kvöldin eru ekki fullkomin fyrr en búið er að hleypa öllum dýrunum út þar sem þau halda áfram að mynda tengsl, segja eigendurnir. „Okkur þykir yndislegt að dýrin okkar skuli vera svona ánægð með að vera saman.“ Vinátta þvert á dýrategundir Í hinni nýútkomnu bók Óvænt vinátta– 47 ótrúlegar sögur úr dýraríkinu eftir Jennifer S. Holland heyrum við sögur og sjáum myndir af dýrum sem eiga ekkert sameiginlegt en bindast ólíklegustu vináttuböndum. Greifingjahundurinn og grislingurinn Á ískaldri nóttu kom heppinn gríslingur í heiminn á hálmfleti í hlöðu í Vestur-Virginíu. Pink var afturkreistingur hvernig sem á það var litið. Þegar hann fæddist töldu hvorki Johanna Kerby, sem hjálpaði til við fæðinguna, né eiginmaður hennar og dóttir sem fylgdust með, að pínulitli grislingurinn gæti haldið lífi utan við leg móður sinnar. Til allrar hamingju kom óvæntur velgjörð- araðili til skjalanna og gaf Pink tækifæri til að lifa. Gyltan gaut ellefu grislingum og Pink kom síðastur þeirra í heiminn. Strax var ljóst að hann var ekki eins og systkini hans. Grísir fæðast yfirleitt með opin augu og það tekur þá aðeins nokkrar mínútur að standa á fætur, ganga og finna spenana. Þeir eru yfir- leitt eitt og hálft til tvö kíló. Pink var innan við hálft kíló og augun voru lokuð. Hann var veikburða, hartnær hárlaus og gaf frá sér ámátlegt væl. „Hann lá bara í kassan- um og kjökraði,“ rifjar Johanna upp. „Hann reyndi ekki einu sinni að ganga. Hann var einfaldlega of veikburða.“ Þegar hún lagði hann við spena móður hans vildi hann ekki sjúga. Sterkari systkin hans fóru brátt að ýta honum í burtu og reyna að losna við þennan veikasta keppinaut. Johanna fékk hugmynd. Greifingjahundur fjölskyldunnar, lítil rauð tík sem hét Tink, hafði alltaf verið hænd að fólki og sýnt móð- urlega tilburði í samskiptum við önnur dýr. Hún hafði líka alltaf verið hrifin af gris- lingum. Þegar Tink sá grislinga í fyrsta sinn mörgum árum áður í svínahúsi Kerby- fjölskyldunnar „safnaði hún þeim öllum saman úti í horni og fór að sleikja þá,“ rifjar Johanna upp. „Þeir voru tólf kíló, miklu stærri en hún, en Tink lét það ekki á sig fá. Hún var svo sæl og ánægð og ljómaði af gleði.“ Í annað skipti lá við að hún drukknaði í djúpum skítnum í svínastíunni þegar hún hætti sér þangað inn til þess eins að komast nálægt dýrunum. Tink var nýbúin að gjóta tveimur hvolp- um en annar þeirra fæddist dauður og hún var greinilega miður sín. Johanna ákvað að setja Tink og Pink saman og kanna hvort tíkin tæki grislingnum sem eigin afkvæmi. Það hafði nýlega gerst með hvolpa annarrar tíkur; Tink hafði tekið þeim sem sínum eigin. Tink tók grislingnum af sömu ástúð og hvolpunum. Þegar Pink var settur í hundakassann „varð Tink yfir sig ánægð. Hún sleikti hann vandlega og át meira að segja leifarnar af naflastrengnum,“ segir Johanna. Svo stakk hún honum undir háls- inn til að halda á honum hita og þegar hvolparnir vildu fá að drekka notaði hún trýnið til að beina Pink að spenunum. Kerby-fjölskyldunni til mikillar ánægju fór Pink að sjúga spenann. „Tink fór með hann eins og hann væri konungborinn; ég held að hann hafi verið uppáhaldið henn- ar,“ segir Johanna. Þessi sérstaka aðhlynn- ing varð til þess að Pink var fljótur að ná stærð systkina sinna en hann sýndi aldrei neinn áhuga á að fara aftur til svínanna. Nú var hann hluti af hundafjölskyldu og lék sér og flaugst á við hvolpana eins og ekkert væri. Fíllinn og flækingshundurinn Í fílaathvarfinu í Hohenwald í Tennes-see er algengt að fílar frá mismun-andi heimshlutum finni sér vini. Það kemur ekki á óvart þar sem í hlut eiga félagslynd dýr sem eru vön að vera í hjörð. Flækingshundar eru algengir á lóð athvarfsins en yfirleitt skipta þeir sér ekkert af fílunum heldur halda sig við sína líka. Kvenfíllinn Tarra og tíkin Bella brutust þó út úr þessu mynstri. Þessi tvö greindu spendýr létu sig félagslegar hefðir engu varða, fundu hvor aðra og urðu næsta óaðskiljanleg- ar. Blíðlyndi risavaxni kvenfíllinn og bústna flækingstíkin átu saman, drukku saman og sváfu hlið við hlið. Fótleggir Törru, stórir eins og trjástofnar, gnæfðu yfir höfuð Bellu, en þær voru ánægðar svo lengi sem þær voru saman. Tíkin Bella veiktist og starfsfólkið tók hana inn í athvarfið til að hjúkra henni. Tarra virtist miður sín og hélt sig nálægt húsinu sem Bella var í eins og hún væri að vaka yfir henni. Hún beið dögum saman á meðan Bella náði sér. Loks gátu þær verið saman aftur. Tarra klappaði Bellu með rananum, öskraði og stappaði niður fótunum. Tíkin Bella skalf af æsingi, dillaði rófunni og sveifl- aði tungunni á meðan hún velti sér á jörðinni. Og í eitt stórkostlegt andartak lyfti Tarra einum risastórum fætinum og nuddaði mag- ann á vinkonu sinni mjúklega. Hinn frægi líffræðingur Joyce Poole, sem hefur fylgst með fílum í fleiri klukku- stundir en nokkur annar á jarðríki, minnist þess að hafa séð þær stöllur þegar hún var í heimsókn í athvarfinu. „Ég var svo lánsöm að komast nálægt, ná tengslum og sjá Törru með Bellu og einnig öðrum hundi sem hún vingaðist við. Hún var alltaf að reyna að halda á hundunum með rananum. Þetta var dásamlegt að sjá.“ En svona vinátta kemur Poole ekki á óvart. „Vegna vinnu okkar með fíla og eigin reynslu af hundum vitum við að báðar þessar dýrategundir eru tilfinn- ingaverur sem mynda sterk tengsl,“ segir hún. Í náttúrunni eru fílar trygg dýr í sam- heldnum hjörðum þar sem mæðraveldi ríkir. Þeir taka ekki aðeins að sér afkvæmi kvenfíla sem drepast heldur syrgja þá sem þeir missa. Fíll eins og Tarra, segir Poole, sem ólst upp hjá ólíkum fyrirmyndum og komst í kynni við aðrar dýrategundir, „hefur einfaldlega flutt þessi tengsl yfir á annars konar dýr.“ Líkt og Horton, hinn frægi teiknimynda- fíll dr. Seuss, sem sat á eggjum fyrir hirðulausa móður og klakti þeim út, virðist sem Tarra sé „hundrað prósent trygg!“
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.