Fréttablaðið - 30.11.2013, Blaðsíða 124
30. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 84
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda
samúð og kveðjur við fráfall elsku
konunnar minnar, mömmu okkar og
fósturmömmu, dóttur, systur og mágkonu,
NÍNU BJARKAR SIGURÐARDÓTTUR
sem lést 30. október.
Flosi Eiríksson
Eyrún, Kári, Eiríkur og Júlíus Flosabörn
Sigurður Ó. Kjartansson Eyrún Gunnarsdóttir
Kjartan Ó. Sigurðsson María Dröfn Steingrímsdóttir
Inga Sigurðardóttir Ingólfur E. Kjartansson
Við þökkum innilega auðsýnda samúð
og kærleika við fráfall ástkærs eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
JÓNS GUNNARS HANNESSONAR
Laugarnesvegi 65, Reykjavík.
Sérstakar þakkir sendum við öllum þeim
sem hjúkruðu honum og studdu í veikindum
hans.
Rósa Óskarsdóttir
Elsa Jónsdóttir Fjalar Jóhannsson
Andrea Fanney Jónsdóttir Kjartan Friðrik Ólafsson
Eva Rós og Brynja Fjalarsdætur
Ástkær eiginkona mín,
móðir, tengdamóðir og amma,
SIGRÍÐUR BRAGADÓTTIR
Ólafsgeisla 4, Reykjavík,
lést á Landspítalanum, Hringbraut,
miðvikudaginn 27. nóvember. Jarðarförin
fer fram frá Grafarvogskirkju 9. desember
klukkan 13.
Reynir Sigurðsson
Sigurður Reynisson
Bragi Reynisson Kristín Smáradóttir
Ástþór Bragason
Bjarki Bragason
Ástkær bróðir minn og mágur,
EYVINDUR GARÐAR FRIÐGEIRSSON
Grandavegi 39b, Reykjavík,
lést þann 25. nóvember síðastliðinn.
Útför hans fer fram frá Neskirkju föstudaginn
6. desember kl. 13.00.
Guðrún Friðgeirsdóttir
Stefán Briem
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
SÓLVEIG SÆMUNDSDÓTTIR
lést þann 15. nóvember á Hrafnistu í
Reykjavík. Útförin hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hinnar látnu.
Erna Magnea Ólafsdóttir Sigurður Kristjánsson
Magnús Ólafsson
Stella Guðmundsdóttir Jónas Birgir Birgisson
og fjölskyldur.
Elskuleg eiginkona mín, móðir,
amma og dóttir,
LILJA INGA JÓNATANSDÓTTIR
Ásabergi, Eyrarbakka,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
þriðjudaginn 26. nóvember. Jarðsungið verður frá
Eyrarbakkakirkju laugardaginn
7. desember kl. 14.00.
Guðmundur Helgi Guðnason
Guðni Guðmundsson
Sigurður Tómas Guðmundsson
Emilía Hlín Guðnadóttir
Sigrún Ingjaldsdóttir
Móðir mín, tengdamóðir og amma,
FRÍÐA BJÖRG ÓLAFSDÓTTIR
Laugavegi 149,
lést þann 15. nóvember sl. Jarðarförin hefur
farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu
Björn Björnsson Álfheiður Einarsdóttir
og fjölskylda.
Elskulegur sonur minn,
bróðir, mágur og frændi,
DANÍEL HAFSTEINSSON
er látinn.
Margrét Jóna Hafsteinsdóttir
Unnur Inga Karlsdóttir Davíð Bjarnason
María Jórunn Hafsteinsdóttir Smári Geirsson
Aðalsteinn Hafsteinsson Guðrún Sigvaldadóttir
Sigrún Hafsteinsdóttir Hans Pétur Blomsterberg
Jón Grétar Hafsteinsson Hildigunnur Jónína Sigurðardóttir
Haraldur Hafsteinsson
Sólveig Hafsteinsdóttir Walter Unnarsson
Þórdís Hafsteinsdóttir
og systkinabörn.
„Ég hef fengist við listmálun í all-
nokkur ár eða aðeins lengur en það,“
segir Aðalsteinn Eyþórsson, þegar
heilsað er upp á hann í Anarkíu lista-
sal, norðanvert í Hamraborginni.
Hann er að hengja upp verk sín á sam-
sýningu ellefu listamanna sem verður
opnuð í dag. Það eru olíumálverk frá
þriggja ára tímabili, ýmist máluð á
striga eða krossvið. Listastefna Aðal-
steins er samt frekar óljós að hans
eigin sögn. „Algengt er að list núna
sé svo mikið hugsuð, jafnvel djúphugs-
uð. Mín er frekar vanhugsuð. Flýtur
bara fram,“ segir hann frekar kæru-
leysislega.
Að listasalnum Anarkíu standa þeir
ellefu myndlistarmenn sem nú sýna
þar og hafa kosið að fara eigin leiðir
í kynningu á list sinni. Þeir eru auk
Aðalsteins þau Anna Hansson, Ásta
R. Ólafsdóttir, Bjarni Sigurbjörnsson,
Finnbogi Helgason, Guðlaug Friðriks-
dóttir, Hanna Pálsdóttir, Helga Ást-
valdsdóttir, Kristín Tryggvadóttir,
Ragnheiður Guðmundsdóttir og Þor-
geir Helgason.
Aðalsteinn er semsagt meðal sjö
kvenna og fjögurra karla með sýn-
inguna í Anarkíu. Hvert og eitt þeirra
fékk sinn vegg, ólíka að stærð – en
veglega samt. Aðalsteinn segir þar
um reynt fólk að ræða á myndlistar-
sviðinu og þótt bakgrunnurinn sé mis-
munandi þá tengist hópurinn Mynd-
listarskóla Kópavogs þar sem allir
hafa verið eitthvað, einhvern tíma.
Húsnæðið í Hamraborginni kom
upp í hendur hópsins í vor og þar hafa
sýningar verið frá því snemmsum-
ars sem staðið hafa í mánuð hver þar
sem ýmist einn eða tveir listamenn úr
hópnum hafa sýnt í senn. Nú taka þeir
allir höndum saman og bjóða til opn-
unar milli klukkan 14 og 18 í dag en
annars verður sýningin opin þriðju-
daga til föstudaga milli kl. 15 og 18
og um helgar frá 14 til 18 til 29. des-
ember.
Í lokin kemur leiðarlýsing: Þegar
ekið er inn í Hamraborgina um brúna
er beygt strax niður til vinstri og svo
aðeins til hægri. Þar er gengið inn í
Anarkíu listasal.
Nánar má fræðast um hópinn og
stefnu hans á vefsíðunni anarkia.is.
- gun
Listin bara fl ýtur fram
Ellefu myndlistarmenn opna samsýningu í dag í Anarkíu, listasal í Hamraborg 3 í Kópa-
vogi. Aðalsteinn Eyþórsson er einn þeirra. Hann sýnir olíumálverk á striga og krossvið.
LISTMÁLARINN „Ég hef fengist við listmálun í allnokkur ár, eða aðeins lengur en það,“ segir Aðalsteinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Íslenskir bankar keyptu Skarðsbók postulasagna á uppboði í London þennan dag
árið 1965. Þar hafði hún verið í einkaeigu, eitt fornra handrita Íslendinga. Hún var
síðan afhent Stofnun Árna Magnússonar til varðveislu.
Lengi vel var Skarðsbók postulasagna í eigu kirkjunnar á Skarði á Skarðsströnd.
Þaðan hvarf handritið um 1820 en kom síðar í leitirnar á Englandi.
Skarðsbók er reyndar nafn á tveimur fornum íslenskum skinnhandritum, Skarðs-
bók postulasagna annars vegar og Skarðsbók Jónsbókar hins vegar. Sú síðarnefnda
er lögbókarhandrit sem hefur að geyma Jónsbók og nokkrar réttarbætur. Handritið
var skrifað árið 1363 fyrir tilstuðlan Orms Snorrasonar, lögmanns á Skarði á Skarðs-
strönd. Handritið er einnig geymt í Árnasafni.
ÞETTA GERÐIST: 30. NÓVEMBER 1965
Skarðsbók komst
á ný í eigu Íslendinga
SKARÐS-
BÓK
POST-
ULA-
SAGNA
Hún er
geymd á
Árna-
stofnun.
Algengt er að list
núna sé svo mikið hugsuð,
jafnvel djúphugsuð.
Mín er frekar vanhugsuð.
Flýtur bara fram.