Læknablaðið - 15.03.2000, Side 18
FRÆÐIGREINAR / MAGALÆKNINGAR
Sjúkdómar í efri meltingarvegi
Er Helicobacter pylori orsökin?
Bergþór
Björnsson1,2*
Kjartan Örvar"
Ásgeir Theodórs1'3*
Frá "meltingarsjúkdómadeild
St. Jósefsspítala, Hafnarfirði,
2,læknadeild Háskóla íslands,
"lyflækningadeild Sjúkrahúss
Reykjavíkur. Fyrirspurnir,
bréfskipti: Ásgeir Theodórs,
meltingarsjúkdómadeild St.
Jósefsspítala, Suðurgötu 41,
220 Hafnarfirði. Sími: 555
0000; bréfsími: 565 3255;
netfang: asgeir@stjo.is
Efni greinarinnar var áður
kynnt á 13. þingi Félags
íslenskra lyflækna á Akureyri
dagana 12.-14. júní 1998.
Lykilorð: Helicobacter pylori,
holsjárskoðan, einkenni frá
efri meltingarvegi.
Ágrip
Tilgangur: Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna
algengi virkra H. pylori sýkinga hjá sjúklingum með
einkenni frá efri meltingarvegi, kanna tengsl H.
pylorí við sjúkdóma í vélinda, maga og skeifugörn og
bera saman klínískar greiningar og niðurstöður hol-
sjárskoðana.
Efniviður og aðferðir: Rannsóknin var með fram-
skyggnu sniði og fór fram á árunum 1996 og 1997.
Holsjárskoðanir á efri meltingarvegi voru fram-
kvæmdar hjá 562 sjúklingum á speglunareiningu
meltingarsjúkdómadeildar St. Jósefsspítala í Hafnar-
firði. Skilyrði fyrir þátttöku var að sjúklingur hefði
einkenni frá efri meltingarvegi en frábending var
blæðingarhætta hjá sjúklingum. Sjúklingar sem feng-
ið höfðu H. pylorí upprætingarmeðferð voru útilok-
aðir við úrvinnslu gagna. Tekin voru sýni úr maga-
helli (antrum ventriculi) og magabol (corpus ventri-
culi) til CLO (Camphylobacter Like Organism)
rannsókna og til vefjarannsókna í þeim tilfellum sem
það átti við.
Niðurstöður: Unnt var að meta niðurstöður rann-
sókna hjá 458 sjúklingum (81,5%) en 76 (13,5%)
voru útilokaðir þar sem þeir höfðu gengist undir upp-
rætingarmeðferð vegna /7. pylori sýkingar og 28
(5%) voru útilokaðir vegna þess að fullnægjandi
gögn skorti. Alls reyndust 220 (48%) sjúklingar vera
//. pylori jákvæðir. Þar af voru 122 konur (55,5%) og
98 karlar (44,5%). Samsvörun milli klínískra sjúk-
dómsgreininga og niðurstaðna holsjárskoðana var
ekki góð og virðast ætisár ofgreind klínískt. H. pylori
sýkingar tengjast mest ætisárum (ulcus pepticum) og
þá fremur skeifugarnarsárum (ulcus duodeni) en
magasárum (ulcus ventriculi). Þannig reyndust 82%
sjúklinga með skeifugarnarsár H. pylori jákvæðir en
60% sjúklinga með magasár. Sjúklingar með maga-
bólgur og skeifugamarbólgur voru H. pylori jákvæðir
í 57% tilvika.
Ályktanir: Einungis 48% sjúklinga með einkenni frá
efri meltingarvegi hafa jafnframt virka H. pylori sýk-
ingu í magaslímhúð. Hlutfall H. pylori sýktra meðal
sjúklinga með ætisár (maga- og skeifugarnarsár) er
69% sem er lægra en fyrri rannsóknir hafa gefið til
kynna. Samsvörun milli klínískrar sjúkdómsgreining-
ar og niðurstöðu holsjárskoðunar á efri meltingar-
vegi er ekki góð. Holsjárskoðun er mikilvæg til að
tryggja rétta sjúkdómsgreiningu og gerir meðferð
markvissari.
EIMGLISH SUMMARY
Björnsson B, Örvar KB, Theodórs Á
Diseases in the esophagus, stomach and
duodenum: is Helicobacter pylori to blame?
Læknablaöiö 2000; 86: 168-73
Objective: To evaluate a) how many of symptomatic
patients referred for upper endoscopy have active H. pylori
infection, b) the correlation between the indications for
upper endoscopy and endoscopic diagnosis and c) the
association between H. pylori and organic disease in the
upper gastrointestinal tract.
Material and methods: This is a prospective study on 562
symptomatic patients referred for upper gastrointestinal
endoscopy. The criteria for inclusion were symptoms from
the upper gastrointestinal tract but patients taking anti-
coagulation medication were excluded. All patients who
had received H. pylori eradication therapy were excluded
from the final analysis. Biopsies were obtained from both
the antrum and body of the stomach for CLO testing as
well as for histological evaluation for H. pylori.
Results: For final analysis 458 patients (81.5%) were
evaluable, 76 patients (13.5%) were excluded who came
for evaluation after H. pylori eradication and 28 patients
(5%) were also excluded due to inadequate information.
Of 458 patients, 220 (48%) tested CLO positive, there of
122 women (46%) and 98 men (50.5%). The correlation
between indication for referral for upper endoscopy and
final endoscopic diagnosis was poor, where peptic ulcer
disease was clearly overrated. Active H. pylori infection
was most often diagnosed among patients with peptic
•ulcer disease, particularly duodenal ulcer (82%) and less
often gastric ulcer (60%). Patients with gastritis and
duodenitis had H. pylori diagnosed in 57% of the cases.
Conclusions: H. pylori was diagnosed in 48% of patients
with symptoms from the upper gastrointestinal tract. Of all
patients with peptic ulcer disease H. pylori was diagnosed
in only 69% of the cases, which is lower than previous
studies have indicated. The correlation between indication
for endoscopy and the endoscopic diagnoses is rather
poor. It is important to perform diagnostic endoscopy early
in order to select the best initial treatment for the patient.
Key words: Helicobacter pylori, endoscopy upper
gastrointestinat symptoms.
Correspondence: Ásgeir Theodórs. E-mail: asgeir@stjo.is
Inngangur
Helicobacter pylori (H. pylori) bakterían er gram-
neikvæður stafur sem fyrst var ræktuð og einangruð
árið 1982 af Áströlunum Marshall og Warren (1,2).
Síðan þá hefur bakterían verið tengd við ýmsa sjúk-
168 Læknablaðið 2000/86