Læknablaðið - 15.03.2000, Qupperneq 79
LAUSAR STÖÐUR
anir og fleira. í framtíðarhúsnæði deildarinnar er reiknað með rekstri dagdeildar og göngudeildar. Starfinu fylgir
vaktskylda á barnadeild, þátttaka í kennslu heilbrigðisstétta og þjálfun aðstoðar- og deildarlækna auk þátttöku í
rannsóknavinnu. Starfsskylda er við heilbrigðisstofnanir á Norðurlandi. Staðan veitist frá 1. ágúst næstkomandi
eða eftir samkomulagi. Starfshlutfall er samkomulag.
Nánari upplýsingar veitir Magnús Stefánsson yfirlæknir í síma 463 0888.
Staða sérfræðings í lyflækningum
Staða sérfræðings í lyflækningum við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri er laus til umsóknar. Um er að ræða stöðu
sem veitt er til eins árs með mögulegri framlengingu. Umsækjandi skal hafa fullgild réttindi í almennum lyflækn-
ingum og eftir atvikum í einhverri undirsérgrein lyflækninga. Starfinu fylgir vaktskylda á lyflækningadeild, þátttaka
í kennslu heilbrigðisstétta og þjálfun aðstoðar- og deildarlækna, auk þátttöku í rannsóknavinnu. Starfsskylda er
við heilbrigðisstofnanir á Norðurlandi. Starfshlutfall er samkomulag. Staðan veitist frá 1. júní 2000 eða síðar sam-
kvæmt samkomulagi.
Nánari upplýsingar veitir Björn Guðbjörnsson forstöðulæknir í síma 463 0891.
Staða sérfræðings við svæfinga- og
gjörgæsludeild
Laus er til umsóknar staða svæfingalæknis við svæfinga- og gjörgæsludeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri.
Umsækjandi skal hafa fullgild réttindi í svæfinga- og gjörgæslulækningum. Starfinu fylgir vaktskylda á svæfinga-
og gjörgæsludeild, þátttaka í kennslu heilbrigðisstétta og þjálfun aðstoðar- og deildarlækna, auk þátttöku í rann-
sóknavinnu. Starfsskylda er við heilbrigðisstofnanir á Norðurlandi. Starfshlutfall er samkomulag. Staðan veitist frá
1. júní eða síðar samkvæmt samkomulagi.
Nánari upplýsingar veitir Girish Hirlekar yfirlæknir í síma 463 0100.
Staða sérfræðings í öldrunarlækningum
Laus er til umsóknar staða sérfræðings í öldrunarlækningum á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Umsækjandi
skal hafa fullgild réttindi í öldrunarlækningum. Starfinu fylgir vaktskylda á Kristnesspítala og hjúkrunardeildinni
Seli, þátttaka í kennslu heilbrigðisstétta og þátttaka í rannsóknavinnu. Starfsskylda er við heilbrigðisstofnanir á
Norðurlandi. Starfshlutfall er samkomulag. Staðan veitist frá 1. júní 2000.
Nánari upplýsingar veitir Halldór Halldórsson yfirlæknir í síma 463 1100.
Við ráðningu verður lögð áhersla á faglega þekkingu ásamt hæfileikum á sviði samskipta og samvinnu. Um-
sóknum skal skilað á þar til gerðum eyðublöðum, sem fást hjá landlæknisembættinu, ásamt fylgiskjölum. Um-
sóknir skulu vera í tvíriti og berast til Þorvaldar Ingvarssonar, framkvæmdastjóra lækninga, að Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri, Eyrarlandsvegi, 600 Akureyri, sem einnig veitir nánari upplýsingar í síma 463 0109 eða
með tölvupósti thi@fsa.is
Starfskjör fara eftir kjarasamningi Læknafélags íslands við Fjármálaráðuneytið.
Umsóknarfrestur fyrir allar framangreindar stöður er til 30. mars n.k.
Öllum umsóknum um störfin verður svarað.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri
Læknablaðið 2000/86 221