Læknablaðið - 15.01.2001, Page 25
FRÆÐIGREINAR / SYKU RSTERAR
voru þrfr með aðra sérgrein Number of patients
en heimilislækningar; einn
hafði lyf- og lungnalækn- 160 \
ingar sem sérgrein, annar
var sérfræðingur í húð- og 140 \
kynsjúkdómum og sá þriðji 120 \
var sérfræðingur í barna-
lækningum. Nærri öll 100
þjónusta sérfræðilækna á
Norðulandi eystra er veitt á 80
Fjórðungssjúkrahúsinu á 60
Akureyri (FSA). Samtals
starfa 48 læknar á Norður- 40
landi eystra, auk 10-12 að-
stoðarlækna sem eru í starfs-
þjálfun á FSA. 0
Sjúklingar, sem voru að
minnsta kosti í þrjá mánuði
samfellt á meðferð með sykursterum á tímabilinu,
voru teknir til rannsóknar og einnig þeir sem fengu
endurteknar meðferðarhrinur, sem samanlagt náðu
þremur mánuðum á ári. Einstaklingar er ekki höfðu
lögheimili á Norð-Austurlandi voru útilokaðir frá
rannsókninni, svo og þeir er neituðu þátttöku.
Spurningablaðið sem fylgdi kynningarbréfinu til
sjúklinganna samanstóð af fimm aðalspurningum
varðandi neyslu mjólkurafurða, kalks, vítamína, lýsis,
auk annarrar lyfjanotkunar en prednisólons, svo sem
hormónalyfja, kalsítóníns eða bísfosfónata.
Upplýsingum var safnað á kerfisbundinn hátt úr
sjúkraskrám varðandi eftirfarandi þætti: ábendingar
fyrir meðferð, upphafs- og viðhaldsskammta predni-
sólóns, meðferðarlengd og skráða fylgikvilla. Enn-
fremur var staðfest úr sjúkraskrám önnur lyfja-
notkun á rannsóknartímabilinu. Að lokum voru
skoðaðar meðferðarákvarðanir er beindust gegn
beinþynningu. Upplýsingum var safnað í töflureikni-
forritið Excel-Pc á dulkóðuðu formi.
Rannsóknaráætlunin var samþykkt af siðanefnd
læknaráðs Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri
(21.04.97) og Tölvunefnd Dómsmálaráðuneytisins
(16.04.97). Siðanefnd landlæknisembættisins fjallaði
einnig um rannsóknaráætlunina (26.06.97).
Niðurstöður
Notkun sykurstera: A rannsóknartímabilinu voru
gefnir út 1.977 lyfseðlar á prednisólón til 748 einstak-
linga. Þrjú hundruð fjörutíu og níu sjúklingar fengu
ávísað prednisólóni oftar en einu sinni og af þeim
uppfyllti 191 sjúklingur skilmerki rannsóknarinnar,
það er að segja 0,72% af 26.664 íbúum Norð-Austur-
lands voru á langtímasykursterameðferð á rann-
sóknartímabilinu.
Meðalaldur sjúklinganna var 66 ár (17-93 ár): 64
ár fyrir konur og 68 ár fyrir karla. Konur voru heldur
fleiri en karlar eða 106 (55%) á móti 85 körlum
(45%). Kynjahlutfall eftir aldri kemur fram á mynd 1.
Heildarmeðferðartímann var hægt að reikna út
hjá 163 einstaklingum, þeir voru á sykursterameð-
ferð að meðaltali fjögur ár og sjö mánuði (3-300
mánuðir) (mynd 2). Meðferðartími var reiknaður frá
meðferðarbyrjun og fram að rannsóknardegi. Hjá
þessum 163 sjúklingum var upphafsskammtur
prednisólóns að meðaltali 24 mg á dag (5-80 mg/dag),
en viðhaldsskammtur var að meðaltali 6 mg á dag (2-
15 mg/dag). Enginn munur var á kynjum með tilliti til
lyfjaskammta eða meðferðarlengdar.
Meðferðarábendingan Gigtarsjúkdómar (44%)
og lungnasjúkdómar (33%) voru algengustu orsakir
langtímasykursterameðferðar, sjá nánar meðferðar-
ábendingar í töflu I.
Skráðar aukaverkanin Eingöngu 33% sjúkling-
anna (n=63) höfðu samkvæmt sjúkraskrám engar
skráðar aukaverkanir er tengja mætti sykurstera-
meðferðinni. Hins vegar voru Cushingsútlit (26%),
beingisnun eða beinþynning (26%) og beinbrot
(20%) oft nefnd í sjúkraskrám sem fylgikvilli með-
ferðarinnar (tafla II).
Ekki var unnt að fá fram niðurstöður úr bein-
þéttnimælingum er framkvæmdar voru með fram-
16 17 18 19 20
Duration of treatment in years
Figure 2. Duration in
years of continuos oral
corticosteroid treatment in
163 patients. The time
length is calculated from
the start ofthe treatment to
the end ofthe treatment or
to the data of the study.
Table 1. Medical disorders for which oral corticosteroids patients on long term treatment with corticosteroids. were prescribed in 191
Disorder No of patients (%)
Chronic pulmonary disease 59 (30.9)
Polymyalgia rheumatica 54 (28.3)
Rheumatoid arthritis 20 (10.5)
Inflammatory bowel disease 15 (7.9)
Poststatus organ transplantation 8 (4.2)
Temporalis arteritis (biopsy proven) 6 (3.1)
Neoplasma 6 (3.1)
Dermatological disorders 5 (2.6)
Pulmonary fibrosis 4 (2.1)
Connective tissue diseases 4 (2.1)
Other disorders 10 (5.2)
Total 191 (100)
Læknablaðið 2001/87 25