Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.2001, Síða 65

Læknablaðið - 15.12.2001, Síða 65
UMRÆÐA & FRETTIR / FARALDSFRÆÐ 1 3 Faraldsfræði í dag Lýsandí rannsóknír María Heimisdóttir Netfang: mariah@decode.is Fylgnirannsóknír Lýsandi rannsóknir (descriptive studies) miða að því að lýsa dreifingu sjúkdóma á ýmsan hátt en taka ekki afstöðu til sambands áhættuþátta og sjúkdóma. I lýs- andi rannsóknum er leitast við að gera grein fyrir dreifingu sjúkdóma með tilliti til margvíslegra þátta. Þeir þættir eru mjög mismunandi eftir rannsóknum en oftast er dreifingunni lýst meðal einstaklinga (það er hvers konar einstaklingar eða hópar fá sjúkdóm- inn), stað (hvar sjúkdóms verður vart) og tíma (til dæmis hvenær ársins eða á undan eða eftir tilteknum atburði). A ensku er oft sagt að lýsandi rannsóknir lýsi dreifingu sjúkdóms með tilliti til „person, place, and time“. Lýsandi rannsóknir falla í þrjá megin- flokka: fylgnirannsóknir (correlation studies), lýsing- ar á sjúkdómstilfellum (case reports) og þverskurðar- rannsóknir (cross-sectional studies). Fylgnirannsóknir lýsa dreifingu sjúkdóma (eða einkenna, áhættuþátta og svo framvegis) innan skil- greinds þýðis og miða að því að mæla fylgni milli sjúkdómsins og tiltekinna eiginleika eða atburða. Með fylgni er átt við að tveir eða fleiri atburðir eða eiginleikar fylgist að í tíma eða rúmi en ekki þurfa að vera orsakatengsl á milli þeirra. Gögn sem notuð eru í fylgnirannsóknir byggjast yfirleitt á mælingum á þýðinu (ecological measurement) en ekki á mæling- um eða upplýsingum um einstaklinga (individual measurement). Mælingar á eiginleikum þýðisins eru notaðar til að lýsa til dæmis dreifingu sjúkdóms með tilliti til ýmissa þátta, svo sem aldurs, notkunar á heil- brigðisþjónustu, eða neyslu á ákveðnum vörum. Þannig nota fylgnirannsóknir tii dæmis sölu á síga- rettum sem þýðisbundna nálgun við hina einstak- lingsbundnu áhættu er fylgir reykingum og dánar- tíðni í þýðinu sem nálgun við einstaklingslifun. Niðurstöður slíkra rannsókna eru oftast settar fram sem einhvers konar fylgnistuðull (correlation coefficient, ,,r“). Fylgnistuðull segir til um hvort línu- legt samband er milli atburðanna og hve sterkt það er. Flann getur legið á bilinu -1,0 til 1,0. Neikvætt gildi gefur tii kynna neikvæða fylgni (negative correla- tion) milli þeirra þátta sem bornir eru saman, til dæmis að dánartíðni fari lækkandi með aldri. Jákvæð fylgni (positive correlation) er hins vegar til staðar ef stuðullinn er stærri en 0,0 og fullkomin jákvæð fylgni er sögð vera til staðar ef stuðullinn er 1,0. Fullkomin jákvæð fylgni þýðir að aukning í öðrum atburðinum tengist samsvarandi aukningu í hinum. Ef gildi fylgni- stuðulsins er 0,0 eða þar um bil er ekki fylgni milli atburðanna, þeir eru óháðir hvor öðrum. Fylgnirannsóknir byggjast iðulega á gögnum sem eru fyrirliggjandi, svo sem upplýsingum frá Hagstofu og upplýsingum um innflutning og sölu neysluvarn- ings. Þær eru því yfirleitt tiltölulega ódýrar og fljót- unnar og jafnframt til margra hluta nytsamlegar. Niðurstöður slíkra rannsókna eru gjarnan notaðar til að fylgjast með lýðheilsu og til að skipuleggja og meta lýðheilsuaðgerðir. Einnig eru slíkar rannsóknir oft grundvöllur eða fyrsta skref í flóknari, greinandi (analytical) rannsóknum á tengslum áhættuþáttar og sjúkdóms. Þrátt fyrir alla sína kosti hafa fylgnirannsóknir nokkra mikilvæga galla. Mikilvægastur þeirra er að ekki er unnt að tengja áhættuþáttinn við sjúkdóm í ákveðnum einstaklingi þar sem gögnin byggjast á mælingum í þýði en ekki einstaklingum. Þannig getur fýlgnirannsókn sýnt að auknum fjárveitingum til heil- brigðismála fylgir lægri dánartíðni en ekki er víst að um orsakasamband sé að ræða þar sem ekki liggur fyrir að þeir einstaklingar sem áttu kost á og nýttu sér bætta þjónustu hafi lifað lengur en þeir hefðu annars gert. Annar megingalli fylgnirannsókna er að ekki er unnt að leiðrétta fyrir raskandi þætti (confounders) þar sem ekki er um einstaklingsbundin gögn að ræða. Þriðji meginágalli fylgnirannsókna er að þær byggjast á upplýsingum um meðaláreiti í þýðinu sem heild en ekki raunverulegu áreiti sem einstaklingar innan þýðisins urðu fyrir. Þetta þýðir að þótt fylgnistuðull sem fenginn er með slíkri rannsókn gefi til kynna sterka jákvæða fylgni þá er ekki endilega um svo ein- falt línulegt samband milli áreitisins og sjúkdómsins að ræða í raun. Til dæmis sýndi rannsókn á fylgni áfengisneyslu við dánartíðni vegna kransæðasjúk- dóma í ýmsum löndum að dánartíðni var hæst þar sem neyslan var minnst (1). Greinandi rannsóknir sem byggjast á einstaklingsbundnum gögnum hafa hins vegar sýnt að dánartíðni vegna kransæðasjúk- dóma fylgir j-laga ferli með tilliti til áfengisneyslu. Dánartíðni er lægst meðal hófdrykkjumanna en hærri meðal þeirra sem drekka meira og einnig meðal þeirra sem drekka alls ekki áfengi. Þessir þrír meginannmarkar fylgnirannsókna eru grundvöllur þess að ekki er unnt að yfirfæra niður- stöður þeirra um samband áreitis og sjúkdóms, sem byggjast á eiginleikum þýðis, yfir á einstaklinga. Slík misbeiting niðurstaðna fylgnirannsókna er kölluð „ecologic fallacy" eða „ecologic bias“ (2). Heimildir 1. Laporte RE, Cresanta JL, Kuller LH. The relation of alcohol to coronary heart disease and mortality: implications for public health policy. J Public Health 1980; 1:198-223. 2. Selvin HC. Durkheim's “Suicide” and problems of empirical research. Am J Sociol 1958; 63; 607-19. Læknablaðið 2001/87 1025
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.