Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.05.2002, Qupperneq 64

Læknablaðið - 15.05.2002, Qupperneq 64
UMRÆÐA & FRÉTTIR / REKSTUR HEILBRIGÐISÞJÓNUSTU Einkarekín heilbrigðisþjónusta virðist dýrari en samfélagsrekin þjónusta í skýrslu eftir tvo hagfræðinga er Sighvatur Björg- vinsson þáverandi ráðherra bauð til Islands 1993 að ósk embættismanna kom fram að „útgjöld Islendinga væru 4,2% neðan við meðaltal heilbrigðisútgjalda OECD-ríkja reiknað í kaupmáttargildum (Pur- chasing Power Parity)“, en þá er miðað við aldurs- dreifingu og tekjur íbúa og greiðsluhlutfall hins opinbera til heilbrigðis- og félagsmála sem OECD reiknar með við samanburð á útgjöldum til heilbrigð- ismála milli þjóða. Tekið var tillit til þessara þátta og þá aðallega rauntekna og aldursdreifingar. Hafa ber þó í huga að íslendingar flokka ýmsa þætti félags- og hjúkrunarþjónustu ásamt greiðslum til atvinnuleysis- trygginga undir heilbrigðismál sem aðrar þjóðir flokka undir félagsmál. ísland er því í raun neðar í röðinni. Öllum að óvörum var þessari skýrslu ekki dreift á Islandi og ekki var hún kynnt. Má vera að ástæðan sé sú að niðurstöður skýrslunnar komu nokkuð flatt upp á suma pólitíkusa. Arið 1998 fékk landlæknisembættið þær upplýsingar frá OECD sem hér eru tilgreindar. Kostnaöur vegna heilbrígöisþjónustu 1996 sem hlutfall OECD-löndum. af vergri landsframleiðslu í greiösla hins Lönd og rekstrarform opinbera heildarkostnaöur Noröurlönd, aðalega almannatryggingar 6,1 7,8 V-Evrópulönd, almannatryggingar og einkatryggingar 6,9 8,3 Sviss/Bandaríkin, aöallega einkatryggingar 6,7 11,0 Kostnaöur mældur í kaupmáttargildum á íbúa (Purchasing Power Parity) í OECD löndum 1996, mælt í dollurum á íbúa. greiösla hins Lönd og rekstrarform opinbera heildarkostnaöur Norðurlönd, almannatryggingar 1400 1650 V-Evrópulönd, almannatryggingar og einkatryggingar 1676 2100 Sviss og Bandaríkin, aðallega einkatryggingar 1670 2900 Heimild: Health Data, Skrifstofa OECD í París, til landlæknis 1998. Algengustu mælikvarðarnir á kostnaði heilbrigð- isþjónustunnar eru hlutfall af vergri landsframleiðslu og kostnaður í kaupmáttargildum á íbúa. A Norðuriöndunum er Island á svipuðum slóðum og Svíþjóð og Finnland. Þessar tölur eru sambærileg- ar við niðurstöður OECD frá árinu 1990. Þessar niðurstöður gefa vel til kynna að kostnaður er mestur þar sem kerfið er rekið með frjálsum trygg- Hötundur er fyrrverandi in8um °8 viðbótarkostnaðurinn leggst á herðar sjúk- landlæknir. linga. Ólafur Ólafsson Skýringa er að leita til þess að hluthafar sem reka frjáls tryggingafélög krefjast eðlilega arðs. Arðurinn skapast af upphæð iðgjalda og gróðavonin ræður ferðinni. Reynslan af rekstri frjálsra tryggingafélaga er að láglaunafólk, öryrkjar og margt aldrað fólk hefur fæst efni á slíkum iðngjöldum, nema trygginga- félagið sé ekki rekið á gróðagrunni (non-profit) eins og til dæmis Kaiserstofnunin í Bandaríkjum. Víða á Vesturlöndum hafa verið gerðir verktaka- samningar við einkaaðila varðandi rekstur á sjúkra- stofnunum, meðal annars hjúkrunardeildum og ýms- um verkefnum sem ekki lúta beint að lækningum, nema þá minniháttar göngudeildaraðgerðum, en kostnaður hefur aukist. Umræðan um einkarekstur hefur eflt mjög kostnaðargreiningu sem er af hinu góða. Brýnt er að hið opinbera búi það vel að al- mannatryggingum að unnt sé að keppa á markaði um bestu starfskraftana. Þaðan koma frumlegheitin og nýsköpunin í fræðunum. Fram kemur í skýrslunni að þjóðir sem semja við lækna og verktaka eftir afköst- um þeirra báru hærri útgjöld en þjóðir sem greiða læknum aðallega föst laun (Island er í þessum hópi). Allar eiga þjóðirnar við biðlistavanda að stríða nema vel tryggðir hópar. I löndum þar sem samfélagstrygg- ingin vegur þyngst er meira jafnræði meðal þeirra er finnast á biðlistum en í einkarekstrarlöndum. Lýðræðið stendur ekki undir nafni nema jafnræði ríki. Einkarekstrarmenn verða að leysa þennan vanda áður en þeir breyta kerfinu. Ég bendi stjórn og ráðamönnum vorum vinsamlega á nýju norsku leið- ina, það er að auka útgjöld til heilbrigðismála, helst til þess að stytta biðlista. Gamla niðurskurðarleiðin dugði þegnum og fyrri stjórn illa og talið að langir biðlistar hafi haft veruleg áhrif á síðustu kosninga- úrslit, samanber leiðara í norskum dagblöðum. 440 Læknablaðið 2002/88
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.