Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.11.2003, Page 23

Læknablaðið - 15.11.2003, Page 23
Míron Hver tafla inniheldur Mirtazapín, 30 mg O Omega Farma FLJÓTVIRKTL Ábendingar: Alvarlegt þunglyndi. Skammtar og lyfjagjöf: Skammtar eru einstaklingsbundnir. Lyfið skal taka inn með naegilegum vökva. Töflunum má skipta en þær má ekki tyggja. Æskilegast er að taka lyfið inn aö kvöldi fyrir svefn. Meðferð með hæfilegum skammti ætti að gefa jákvæða svörun innan 2-4 vikna. Áhrif mirtazapíns byrja þó venjulega að koma fram eftir 1-2 vikna meöferð. Æskilegt er að halda meöferðinni áfram þar til sjúklingur hefur verið einkennalaus í 4-6 mánuöi. Þá skal hætta meðferðinni smám saman. Skammtar fyrir fulloröna: Algengur upphafsskammtur er 15-30 mg á dag. Oftast þarf að auka þann skammt til að ná hámarksverkun. Algengur viðhaldsskammtur er á bilinu 15-45 mg á dag. Skammtar fyriraldraöa: Auka skal skammtana á lengri tima og undir eftirliti. Utskilun lyfsins getur veriö minnkuð hjá sjúklingum með skerta nýrna- eöa lifrarstarfsemi og verður aö taka tillit til þess ef lyfinu er ávisað þeim sjúklingahópum. Skammtar fyrir börn: Lyfiö er ekki ætlaö börnum. Frábendingar: Ofnæmi fyrir einhverju af innihaldsefnum lyfsins. Varnaöarorö og varúðarreglur: Gæta þarf varúöar við meöferð hjá sjúklingum með eftirfarandi sjúkdóma: Flogaveiki eða vefrænar heilaskemmdir. Skerta lifrar- eða nýrnastarfsemi. Hjartasjúkdóma, s.s. leiðslutruflanir, hjartaöng eöa nýlegt hjartadrep. Lágan blóðþrýsting. Hætta á meöferðinni ef gula kemur fram. Hjá sjúklingum með skerta lifrar- eöa nýrnastarfsemi getur dregiö úr útskilnaði mirtazapíns. Almennt gildir um þunglyndislyf aö séu þau gefin sjúklingum sem þjást af geöklofa eða öörum geötruflunum geta geöræn sjúkdómseinkenni versnaö. Einnig geta sjúklingar meö geðhvörf sveiflast yfir í oflæti þegar þunglyndislyf eru notuö til meðhöndlunar á þunglyndisfasa sjúkdómsins. Sjálfsvígshætta sjúklinga hverfur ekki strax og meöferö með þunglyndislyfjum er hafin og getur jafnvel aukist í upphafi meöferðar. Þvi gæti veriö rétt að takmarka ávísaö magn lyfsins i upphafi meðferðar. Beinmergsbæling hefur komið fram sem aukaverkun meðferðar með flestum þunglyndislyfjum. Komi fram einkenni um 'FGEGN ÞUNGLYNDI sýkingu, s.s. hiti, hálssærindi eða bólga í munni, skal hætta meöferö og gera blóökornatalningu. Líkt og meö önnur þunglyndislyf skal gæta varúðar hjá sjúklingum með sykursýki, truflun á þvaglátum fs.s. viö stækkun blöðruhálskirtils), bráða þrönghornsgláku og aukinn augnþrýsting. Hafa ber i huga aö eldri sjúklingar eru oft næmari fyrir aukaverkunum þunglyndislyfja. Engin reynsla er af notkun lyfsins hjá börnum. Lyfið er ekki ávanabindandi en sé langtima þunglyndislyfjameðferð hætt skyndilega geta sjúklingar fundiö fyrir fráhvarfseinkennum eins og ógleöi og höfuðverk. Akstur og stjórnun vinnuvéla: Athuga skal að hjá sumum sjúklingum getur mirtazapín haft áhrif á einbeitingu og viðbragösflýti og ættu þeir sjúklingar aö hafa þaö i huga við akstur og stjórnun vélknúinna tækja. Meðganga og brjóstagjöf: Engin gögn liggja fyrir varöandi klínisk áhrif mirtazapíns á fóstur manna eða nýbura en rannsóknir á dýrum hafa sýnt aö mirtazapin getur valdið eituráhrifum og hækkun á dánartíöni nýfæddra afkvæma. Barnshafandi konur ættu einungis að nota lyfið ef brýna nauðsyn ber til og mögulegur ávinningur móöur vegur þyngra en hugsanlegur fósturskaði. Dýrarannsóknir benda til þess að mirtazapín skiljist aöeins i litlu magni út i brjóstamjólk. Gögn varðandi útskilnaö i móöurmjólk eru þó ekki nægileg til að hægt sé aö meta hættuna fyrir barniö. Aukaverkanir: Algergar(> 1%): Aukin matarlyst og þyngdaraukning, syfja, bjúgur, svimi og höfuðverkur. Mjög sjaldgœfar (<0,1%): Þreyta, stöðubundinn lágþrýstingur, oflæti, krampar, skjálfti, vöövakippir, martraöir/ljóslifandi draumar, bráö mergbæling, hækkun á transaminösum í sermi, fótaórói, liðverkir/vöövaþrautir, útbrot, breytt húöskyn. Milliverkanir: Mirtazapin á ekki aö nota samtímis MAO-hemlum og ekki fyrr en 2 vikum eftir aö töku slíkra lyfja er hætt. Mirtazapín getur aukið róandi áhrif benzódíazepínlyfja. Rannsóknir á milliverkunum mirtazapins og ensimhamlandi eða ensimhvetjandi lyfja eru ófullnægjandi. In vitro rannsóknir sýna þó aö mirtazapin getur virkað sem hemill á cýtókróm P450 ensim 1A2, 2D6 og 3Á4. Kliniskt mikilvægi þessa er óljóst en þar til nákvæmari gögn liggja fyrir ber að gæta varúöar við samhliöa gjöf með lyfjum sem nota þessar umbrotsleiðir. Þetta á sérstaklega viö um lyf með þröngt lækningabil, s.s. teófyllín, clózapín, perfenasín, lyf við hjartsláttaróreglu, flogaveikilyf, þríhringja geödeyföarlyf, ciclosporin A og terfenadin. Karbamazepin og rifampicin örva umbrot mirtazapíns og minnka því plasmastyrk þess. Viö samhliða gjöf mirtazapíns og cimetidíns eykst plasmastyrkur mirtazapíns. Flúvoxamin er hemill á CYP 1A2. Kódein og mörg lyf i flokki sefandi lyfja (tíorídazin, perfenazín, súklópentixól, halóperidól og risperidón) og mörg geðdeyfðarlyf (flúoxetín, paroxetin, sertralin og venlafaxin) eru hemlar á CYP 2D6 og geta þessi lyf þvi hamlaö umbroti hvors annars. Greint hefur verið frá einu tilfelli serótóninheilkennis eftir samhliöa notkun flúoxitins og mirtazapíns en vegna hamlandi áhrifa flúoxitins á umbrot mirtazapíns eykst plasmastyrkur þess. Vegna hamlandi áhrifa paroxetins á umbrot mirtazapíns eykst plasmastyrkur mirtazapíns. Samhliða gjöf er óráðleg út frá lyfjafræöilegu sjónarmiði. Gæta skal varúðar þegar öflugir CYP 3A4-hemlar, s.s. HlV-próteasahemlar, sveppalyf af azólflokki, erytrómýcin og nefazódón eru gefnirsamhliða mirtazapíni. Séu ensimhamlandi eða ensímhvetjandi lyf gefin samhliða mirtazapíni gæti þurft að aölaga skammtinn og síöan aftur ef samhliða meöferð þessara lyfja er hætt. I in vivo milliverkana- rannsóknum hafði mirtazapin ekki áhrif á lyfjahvörf risperidóns, paroxetíns, carbamazepíns, amitriptýlíns og címetidíns. Engin klínísk áhrif sem skipta máli eða breytingar á lyfjahvörfum hafa komiö fram hjá mönnum við samtímis gjöf mirtazapins og litiums. Varast ber aö neyta áfengis samtimis töku lyfsins þar sem áhrif þess á miðtaugakerfið geta veriö aukin. Pakkningar og hámarksverð í smásölu 1. júlí 2003: Töflur 30 mg: 30 stk. 5.243 kr., 100 stk. 14.608 kr. Afgreiðslutilhögun: R. Greiðsluþátttaka: B. Markaðsleyfishafi: Omega Farma. Mai 2003.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.