Læknablaðið - 15.11.2003, Page 67
UMRÆÐA & FRÉTTIR / FRÁ HEILBRIGÐIS- OG TRYGGINGARÁÐUNEYTINU
Lyfjamál 119
sstílslyf
Á síðustu árum er farið að nefna sum lyf lífsstflslyf.
Skilgreining er nokkuð á reiki, en segja má að hér sé
um að ræða lyf sem eiga að hafa áhrif á sjúkdóma eða
sjúkdómseinkenni sem rekja má til rangra lifnaðar-
hátta. Síðan má eflaust lengi deila um hvort einstök
lyf falli undir skilgreininguna. Það má færa rök fyrir
því að lyf við offitu (A08), blóðfitulækkandi lyf (CIO),
lyf við stinningarvanda (G04BE) og lyf við nikótín-
fíkn (N07B A) megi heimfæra undir þessa flokkun þó
auðvitað finnist tilvik þar sem orsakir sjúkdóms eru
aðrar en rangir lifnaðarhættir.
Árið 1990 voru aðeins á skrá lyf gegn nikótínfíkn
og blóðfitulækkandi lyf í ofangreindum flokkum og
var salan þá tæplega 90 miiljónir króna. Nú hafa bæst
við lyf við stinningarvanda og offitu og eru nú samtals
19 lyf í þessum flokkum, þar af tvö til þrjú sem bæst
hafa við á þessu ári. Á síðasta ári var heildarsalan
samtals 1288 milljónir króna. Miðað við söluna í
þessum lyfjaflokkum það sem af er árinu má reikna
með að heildarkostnaður á þessu ári fari yfir 1400
milljónir króna. Almannatryggingar taka ekki þátt í
kostnaði vegna stinningar- og nikótínlyfja en í hinum
flokkunum var kostnaður trygginga um 500 milljónir
króna á síðasta ári.
Samkeppni lyfjaframleiðenda í lífstflslyfjum er
greinilega hörð um þessar mundir. Á yfirstandandi
ári hafa bæst við tvö ný lyf í flokki blóðfitulækkandi
lyfja, rósúvastatín og ezetimib, og tvö ný stinningarlyf,
tadalffl og vardenaffl.
Það má því búast við áframhaldandi vexti í lyfja-
notkun til að vinna gegn slæmum afleiðingum af
óheppilegum lifnaðarháttum okkar og lítil von til
þess að breyting verði á nema eitthvað nýtt komi til.
Það eru næg verkefni framundan fyrir nýstofnaða
Lýðheilsustofnun og er henni óskað góðs gengis í
starfi.
Eggert Sigfússon
Ráölagöir dagskammtar á 1000 íbúa á dag
150-1
100
50-
| Parasetamól
] Aspirin
□ Ópíóíöar
m Coxíb-lyf
n NSAIDs
X
Danmörk Svíþjóö Island Finnland Noregur
Mynd 1. Notkun verkja- og bólgustillandi lyfja á Norðurlöndum 2001.
Eggert Sigfússon er deildar-
stjóri í heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytinu.
Læknablaðið 2003/89 891