Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.2004, Blaðsíða 71

Læknablaðið - 15.01.2004, Blaðsíða 71
UMRÆÐA & FRÉTTIR / FARALDSFRÆÐI 34 Faraldsfræði í dag Íhlutunartímaraðagreining Íhlutunartímaraðagreining (ítg) er mín þýðing á enska heitinu Interrupted Time Series Analysis. Þessi aðferðafræði hefur verið þekkt alllengi, en ekki borið mikið á notkun hennar í heilbrigðisvísindum. Margar aðrar fræðigreinar hafa hagnýtt sér þessa matsaðferð, svo sem hagfræði, kennslufræði og fé- lagsfræði. Nú færist í vöxt að nýta hana í faraldsfræði. Faraldsfræðirannsóknir beinast oft að því að meta áhrif orsakaþátta á útkomur. í rannsóknarsniði því sem ég kynni hér til sögunnar er orsakaþátturinn at- burður sem gerist á afmörkuðum, tiltölulega stuttum tíma, en útkoman er sú breyting sem verður á tíma- röð við þessa íhlutun. Ástæður þess að áhugi hefur vaknað á ítg innan faraldsfræði eru aðallega tvær. í fyrsta lagi er það ekki nógu sterkt að rannsaka með einni mælingu fyrir og svo einni eftir íhlutun vegna þess hve veikt það er fyrir ýmsum bjögum og röskunum, jafnvel þó viðmiðunarhópur sé notaður. Samkvæmt Cook og Campbell opnar þetta einfalda rannsóknarsnið fyrir svo marga bjaga og raskanir að þeir telja það nánast ónýtt (1). Venjulega er ítg notuð við aðstæður sem ekki eru eiginlegar tilraunir, heldur er hér oftast verið að mæla áhrif íhlutunar sem gerð er undir „eðlilegum" kringumstæðum (svokallað quasi-experiment). Hér- lendis voru til dæmis gerðar rannsóknir á áhrifum lyfjalaga sem tóku gildi 15. mars 1996, annars vegar á lyfjakostnað Tryggingastofnunar ríkisins (TR) og hins vegar á notkun kódeinlyfja í lausasölu (2, 3). í fyrri rannsókninni var beitt ítg og prófaðar tilgátur um að lyfjalögin hefðu hæg lækkandi áhrif og að eftirfylgjandi greiðsluþátttökubreytingar hefðu snöggt lækkandi áhrif á lyfjakostnað TR. Þarna var prófað fyrir breytingum í umhverfi lyfjamála á ákveðna breytu, lyfjakostnað TR. í öðru lagi er ítg upplagt rannsóknarsnið þar sem til eru ógrynni gagna sem mæld eru endurtekið á tímaás (til dæmis mánaðarlega eða ársfjórðungs- lega). Flestir þekkja gögn sem safnast upp um pen- ingamál, en einnig safna ýmsar stofnanir gögnum um hendingar, svo sem slys, lyfjanotkun, fæðingar og fleira sem viðkemur heilbrigðisfræðum. í dæminu sem ég nefndi um lyfjalögin lágu fyrir gögn um lyfja- kostnað á mánaðargrundvelli frá TR. Þó ítg sé nokkuð sterkt rannsóknarsnið þykir það styrkja nokkuð að hafa viðmiðunartímaröð sem ekki verður fyrir sömu íhlutun, en er á einhvern hátt skylt því sem verið er að rannsaka. í dæminu um lyfjalögin var notast við fjölda heimsókna til heimilislækna á sama tímabili sem viðmið. Var það gert þar sem lyfja- notkun er nokkuð stýrt af læknisheimsóknum og þannig skyld breyta að nokkru leyti, en hægt var að segja með fullri vissu að ekkert hefði gerst þann 15. mars 1996 sem snert gæti heimilislækna sérstaklega. Tölfræðileg vinnsla íhlutunartímaraðar er nokkuð flókinn ferill og fer ég ekki náið út í það hér. Bendi ég á fyrrnefnda bók eftir Cook og Campbell (1) ásamt upprunalegu heimildunum um aðferðina (4) og hefti eftir Cleary (5). í flestum tilfellum er notast við svo- kallað ARIMA eða ARMA-greiningu til þess að úti- loka áhrif eiginfylgni (autocorrelation). Þar sem gögnin eru í tímaröð kemur eðlilega fram fylgni milli punkta í tímaröðinni sem liggja næstir hvor öðrum. Ef lyfjakostnaður TR hefur til dæmis náð 300 millj- ónum króna á mánuði, er mjög líklegt að kostnaður- inn sé nálægt þeirri tölu í næsta mánuði á eftir (aðeins hærri eða aðeins lægri). Einnig geta punktar í tíma- röð haft eiginfylgni eftir árstíma. Til dæmis er ætíð toppur í notkun kódeinverkjalyfja í lausasölu í des- ember ár hvert (3). Ferill ARIMA-greiningar er þríþættur, en þessir þrír þættir eru ítraðir þangað til fengist hefur nógu gott líkan. Eftir að búið er að skilgreina ARIMA-lík- an er síðan prófað hvort íhlutunin hefur haft tölfræði- lega marktæk áhrif á tímaröðina. Hægt er að gera ráð fyrir að breytingin gerist snöggt eða hægt. Einnig er hægt að prófa hvort íhlutunin hefur langtíma eða að- eins skammvinn áhrif á tímaröðina. Heimildir 1. Cook TD, Campbell DT. Quasi-experimentaion - design and analysis issues for field settings. Boston: Houghton Mifflin, 1979. 2. Almarsdóttir AB. Morgall JM. Grímsson A. Cost containment of pharmaceutical use in Iceland: the impact of liberalisation and user charges. J Health Serv Research Policy 2000; 5:109- 13. 3. Almarsdóttir AB, Grímsson A. Over-the-counter codeine use in Iceland: the impact of increased access. Scand J Public Health 2000; 28: 270-4. 4. Box GEP. Tiao GC. Intervention analysis with applications to economic and environmental problems. J Am Statist Associa- tion 1975:70: 70-92. 5. McDowall D. McCleary R, Meidinger EE, Hay RA. Interrup- ted time series analysis (Quantitative applications in the social sciences 21). Newbury Park: Sage Publications, 1980. Anna Birna Almarsdóttir annaba@hi.is Höfundur er lyfjafræðingur, dósent í stefnumörkun og stjórnun lyfjamála við Lyfja- fræðideild HÍ og fram- kvæmdastjóri ráðgjafafyrir- tækisins AL-BAS ehf. Læknablaðið 2004/90 71
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.