Læknablaðið - 15.01.2004, Blaðsíða 17
FRÆÐIGREINAR / ÖNDUNARMÆLINGAR
Öndunarmælingar á heilsugæslustöð:
ábendingar, niðurstöður og gæði
Gunnar
Guðmundsson1,2
SÉRFRÆÐINGUR f LYI -,
LUNGNA- OG GJÖRGÆSLU-
LÆKNINGUM
Sólveig Dóra
Magnúsdóttir3
SÉRFRÆÐINGUR í
HEIMIUSLÆKNINGUM
Jón Steinar
Jónsson3,4
SÉRFRÆÐINGUR í
HEIMIUSLÆKNINGUM
'Lungnadeild Landspítala,
2HL-stöðin, Reykjavík,
’Heilsugæslan í Garðabæ,
4Heimilislæknisfræði,
LæknadeildHáskóla íslands.
Fyrirspurnir og bréfaskipti:
Gunnar Guðmundsson,
Lyflækningadeild E-7
Landspítala Fossvogi,
108 Reykjavík.
Sími 543-6876, fax 543-6568.
ggudmund@landspitali. is
Lykilorð: heilsugœsla,
öndunarmœlingar, greining,
lungnasjúkdómar.
Ágrip
Tilgangur: Öndunarmælingar (e. spirometry) eru
mikilvægt hjálpartæki við greiningu og eftirlit á sjúk-
dómum í lungum þegar saga og skoðun eru ekki
nægjanleg. Rannsóknir á notkun öndunarmælinga í
heilsugæslu eru fáar og engar á íslandi. Tilgangur
þessarar rannsóknar var að kanna notkun öndunar-
mælinga á heilsugæslustöð með tilliti til ábendinga,
niðurstaðna og gæða.
Efniviður «g aðferðir: Peir sjúklingar sem Ieituðu á
Heilsugæsluna í Garðabæ á sex mánaða tímabili og
var boðin öndunarmæling mynduðu rannsóknarhóp-
inn. Allir fengu skriflegar upplýsingar um rannsókn-
ina og gáfu samþykki sitt. Safnað var upplýsingum
um öndunarmælinguna, ástæður fyrir henni og veitta
meðferð. Mælingarnar voru ýmist gerðar af læknum
eða hjúkrunarfræðingum. Allar öndunarmælingar
voru skoðaðar og gæði metin af sérfræðingi í lungna-
sjúkdómum.
Niðurstöður: Á rannsóknartímanum voru gerðar 63
öndunarmælingar, þar af voru flestar frá sama lækn-
inum. Um var að ræða 19 karla og 44 konur á aldrin-
um frá 17 ára til 69 ára. Af þeim reyktu 17/63 einstak-
lingar, 24 einstaklingar höfðu reykt en voru hættir, 20
einstaklingar höfðu aldrei reykt. Algengasta ábend-
ingin fyrir öndunarmælingu var hósti hjá 37/63 og
mæði hjá 20/63 en engin öndunarmæling var gerð
vegna reykinga eingöngu. Tuttugu og átta voru með
óeðlilega lungnahlustun. Við úrlestur voru 54/63
mælinganna fullnægjandi að gæðum. Eðlilegar voru
24 mælingar en 30 voru með teppu, þrír með herpu
en sex með blöndu af teppu og herpu.
Ályktun: Notkun öndunarmælinga var ekki almenn
meðal lækna heilsugæslustöðvarinnar. Niðurstöðurn-
ar benda til þess að möguleikar heilsugæslulækna til
greiningar á lungnasjúkdómum séu vannýttir.
Inngangur
Öndunarmælingar (e. spirometry) eru mikilvægt
hjálpartæki til að greina og meðhöndla lungnasjúk-
dóma. Með slíkum mælingum er hægt að greina frá-
vik í lungnastarfsemi sem ekki greinist við klíníska
skoðun. Læknar geta yfirleitt ekki greint teppu- og
herpusjúkdóma í lungum með sögutöku og skoðun
eingöngu (1, 2). Teppusjúkdómar í lungum, eins og
asmi og langvinn lungnateppa, eru algengir sjúkdóm-
ar sem eru greindir og meðhöndlaðir á heilsugæslu-
stöðvum (3-5). Tíðni þessara sjúkdóma hefur farið
vaxandi undanfarin ár og spáð er enn frekari aukn-
ENGLISH SÖMMflRY
Guðmundsson G, Magnúsdóttir SD, Jónsson JS
Spirometry in a health care center: indications,
results and quality.
Læknablaðið 2004; 90: 17-9
Objective: Spirometry is important for the diagnosis and
treatment of lung diseases. Studies on the use of spiro-
metry in health care centers are few and none in lceland.
The objective of this study was to evaluate the use of
spirometry in a single health care center in lceland in
regard to indications, quality and results.
Materials and methods: Patients evaluated at the Primary
Care Clinic in Garðabær during a 6 month period were
included in the study. Information was collected about the
spirometry, indications and treatment given. Spirometry
was done by a physican or nurse. All spirometries were
evaluated by a pulmonary specialist. The study was
approved by the National bioethics committee and Data
protection agency.
Results: During the study period 63 spirometries were
done and majority of them were on the request of one
physican. There were 19 males and 44 females and the age
distribution was from 17 to 69 years of age. Smokers were
17/63, former smokers were 24 and 20 were non smokers.
The most common indication for spirometry was cough in
37/63 and dyspnea in 20/63. No spirometry was done for
history of smoking only. Twenty eight patients had
abnormal lung auscultation. The quality of the spirometry
was sufficient in 54/63. In 24/63 patients the spirometry
was normal. Of those with abnormal spirometry 30 had
obstruction, 3 had restriction and in 6/63 of cases the
results were mixed.
Conclusion: The study indicates that primary care physi-
cians are underutilizing spirometry for diagnosis of lung
diseases.
Key words: primary care, spirometry, diagnosis, lung
diseases.
Correspondence: Gunnar Guðmundsson,
ggudmund@landspitali.is
ingu á næstu áratugum (6). Það tekur stuttan tíma að
framkvæma öndunarmælingu og úrlestur hennar er
einfaldur (7,8). Mælingin getur verið eðlileg eða fram
geta komið merki teppu með skerðingu á fráblæstri á
fyrstu sekúndu (FEVl) eða herpa með skerðingu á
heildarfrámáli (FVC). Þá getur í sumum tilfellum ver-
ið um blandaða mynd teppu og herpu að ræða. Þrátt
fyrir að einkenni frá lungum séu algeng orsök komu á
heilsugæslustöðvar voru til skamms tíma ekki til önd-
unarmælar á stórum hluta heilsugæslustöðva á íslandi
Læknablaðið 2004/90 17