Læknablaðið - 15.01.2004, Blaðsíða 73
UMRÆÐA & FRÉTTIR / BROSHORNIÐ 44
Af pirringi og óþægindum
Fréttaskeyti framtíðarinnar
„Læknum hefur tekist að gera níutíu ára gamla konu
ófríska. Vegna hins háa aldurs konunnar er búist við
því að barnið fæðist fullorðið um mitt næsta ár.“
Pirringur
„Það fara allir svo rosalega í taugarnar á mér,“ sagði
kona á miðjum aldri við heimilislækninn sinn og virk-
aði bæði spennt og pirruð. „Eg á bókstaflega erfitt
með að þola sumt fólk.“
Læknirinn skrifaði út spennulosandi töflur handa
konunni og bað hana að koma aftur að viku liðinni til
að hægt væri að meta árangurinn.
Viku seinna kom konan aftur. „Hefur þú tekið eft-
ir einhverjum breytingum á geðslagi þínu?“ spurði
læknirinn?
„Nei, það hafa ekki orðið neinar breytingar þar
á,“ sagði konan, „en hins vegar eru flestir í kringum
mig farnir að hegða sér mun betur en áður.“
Óþægileg rannsókn
Eldri manni sem þótti nokkuð sérstakur í háttum var
vísað til meltingarsérfræðings til rannsóknar vegna
blæðingar frá endaþarmi. Maðurinn hafði fyrri sögu
um gyllinæð og bar sig illa vegna óþæginda að aftan-
verðu. Þegar læknirinn var í miðju kafi að setja stutt
speglunarrör upp í endaþarminn spyr maðurinn:
„Heyrðu, læknir, hvað kosta annars svona græjur eins
og þú ert að nota núna?“
Lækninum þótti spurningin nokkuð sérstök fyrir
stað og stund og spurði: „Af hverju ertu að spyrja að
því?“
„Nei, mér datt svona í hug ef það er eins sárt að
taka tækið út eins og að setja það inn þá er ég nú
alveg til í að kaupa allt draslið af þér og skilja það
eftir inni.“
Áttatíuogfimm
Áttatíuogfimm ára herra kom á stofu til heimilis-
læknisins sem hann hafði þekkt í áratugi. Eftir viðtal
og skoðun sagði læknirinn: „Guðmundur minn, ef þú
hættir að reykja og drekka á ég vona á því að þú getir
lifað þangað til þú verður hundrað ára.“
„Kallar þú það að lifa?“ spurði gamli maðurinn.
Heilræði fyrir meltinguna
Meltingarsérfræðingur hefur fundið óbrigðult ráð
handa þeim sem kvarta stöðugt um meltingartruflan-
ir án sýnilegrar ástæðu. Hann spyr sjúklinginn hvort
hann spili golf. Ef svarið er „já“ ráðleggur hann sjúk-
lingnum að hætta. Ef svarið er „nei“ ráðleggur hann
sjúklingnum að byrja í golfi.
Meiri hreyfing
Tveir menn tóku tal saman í biðstofunni hjá læknin-
um. Þeir ræddu fyrst um daginn og veginn en ekki
leið á löngu þar til talið barst að krankleika þeirra og
meðferðarúrræðum. „Eg var vanur að eyða miklum
tíma í að horfa á golf í sjónvarpinu, en læknirinn sagði
að ég þyrfti meiri hreyfingu, ef ég ætlaði að grenna
mig. Ég hef hins vegar ekki lést um eitt gramm.“
„Hvað hefur þú þá verið að gera í staðinn?“ spurði
hinn maðurinn. „Ég fór að fylgjast með tennis.“
Bjallan
Sjúklingurinn: „Viltu fyrir alla muni lækna mig. Mér
finnst ég vera bjalla."
Læknirinn: „Gleyptu þessar töflur. Ef þær hjálpa þér
ekkert þá HRINGIR þú í mig.“
Matarboð
Kona nokkur í kaupstað á landsbyggðinni hélt mikla
veislu og veitti vel. í boði voru m.a. kræsingar á borð
við hráar ostrur, buff tartar, gufusoðinn krækling og
kjúklingasalat. Daginn eftir hitti hún lækninn á
staðnum niðri í bæ. „Það var leitt að þú gast ekki
komið í veisluna til mín í gærkvöldi,“ sagði konan.
„Þú hefur verið svo önnum kafinn undanfarið að það
hafði bara gert þér gott að koma.“ „Veislan þín hefur
þegar gert mér gott. Ég er búinn að fara í vitjun til
fimm gesta þinna frá í gærkvöldi."
Kröfur nútímans
Heilsugæslulæknir úti á landi var vakinn klukkan
þrjú að nóttu. Karlmaður á línunni krafðist þess að fá
að vita hvað það kostaði að fá lækninn heim í vitjun.
„Tvö þúsund krónur,“ svaraði læknirinn.
„En hvað kostar að koma til þín í viðtal á stof-
una?“
„Fjórtán hundruð krónur,“ svaraði læknirinn og
var ekki skemmt með spurningum mannsins.
„Allt í lagi,“ sagði maðurinn, „eigum við þá að
segja að við hittumst á stofunni þinni eftir fimmtán
mínútur?“
Bjarni Jónasson
bjarni.jonasson@gb.hgst.is
Læknablaðið 2004/90 73