Læknablaðið - 15.01.2004, Blaðsíða 5
UMRÆÐA 0 G FRETTIR
UM FORSIÐU
LÆKNABLAÐSINS
44 Af sjónarhóli stjórnar:
Hagdeild lækna?
Birna Jónsdóttir
45 Góð útkoma þrátt fyrir
ósanngjarnan samanburð
Friðbjörn Sigurðsson og Óskar
Einarsson bregðast við skýrslu
Ríkisendurskoðunar um sameiningu
Landspítala
Þröstur Haraldsson
49 Nefnd um verkaskiptingu
sjúkrahúsa og einkarekstrar
50 Eru stjórnmálamenn hræddir
við heilbrigðismál?
Þröstur Haraldsson
51 Einkarekstur í
heilbrigðiskerfinu
54 Misheppnuð spítalasameining
Tómas Helgason
57 Friðhelgisákvæði stjórnarskrár-
innar tekur til heilsufarsupp-
lýsinga og veitir hverjum manni
(einnig látnum) friðhelgi um
einkalíf sitt
Pétur Hauksson
59 Hæstiréttur úrskurðar
bæklunarlæknum í vil
Veikindafjarvistir á
Norðurlöndum
60 Um bókasafn Jóns Steffensen
Sigurður Örn Guðbjörnsson
60 Höldum uppi metnaðar-
fullu framhaldsnámi
Rætt við Ölmu Eir Svavarsdóttur
kennslustjóra framhaldsnáms í
heimilislækningum
Þröstur Haraldsson
69 íðorðasafn lækna 162.
Tól og tæki
Jóhann Heiðar Jóhannsson
71 Faraldsfræði 34. íhlutunar-
tímaraðagreining
Anna Birna Almarsdóttir
73 Broshorn 44. Af pirringi
og óþægindum
Bjarni Jónasson
75 Lyfjamál 121. Lyfjaverð
og lyfjakostnaður
Eggert Sigfússon
76 Læknadagar 2004
83 Þing/ráðstefnur
85 Lausar stöður
86 Okkar á milli
87 Sérlyfjatextar með
auglýsingum
95 Minnisblaðið
Heimasíða Læknablaðsins
www.laeknabladid.is
LEKtiHBLilillÐ
Hvort sem þú
LEGGUR Á LOF EÐA
LAST, LÁTTU ÞAÐ
VERA í HÓFI
Það er langur vegur frá fyrsta tölu-
blaði Læknablaðsins árið 1915 til
ritstjórnargreinar The Lancet 6. des-
ember 2003. í fyrrnefnda tímaritinu
er hálf forsíðan lögð undir tóbaks-
auglýsingu til lækna. Auglýsingin er
lymskulega orðuð: „Enginn læknir
býr svo heima fyrir, eða fer í ferðalag
að hann ekki hafi eitthvað af neðan-
töldum tóbakstegundum úr Tóbaks-
verzlun R. R Levi“ (1). Með öðrum
orðum; þeir læknar sem búa svo illa
að eiga ekki tóbak eru varla menn
með mönnum. Á þessum tímum
virðist hafa þótt sjáifsagt að læknar
reyktu eða tyggðu munntóbak, enda
var sú skoðun uppi meðal lækna að
nikótín hefði hagstæð áhrif á heilsu
fólks.
Tæpum niutíu árum síðar er
komið annað hljóð í strokkinn. í
Lancet er ritstjórnargrein heiguð
tregðu breskra stjórnvalda til að
banna reykingar með lögum alls
staðar þar sem almenningur hefur
aðgang. Greinin er skrifuð á tilfinn-
ingalegum nótum. Fyrirsögn hennar
er „Hvernig sefurðu á nóttunni herra
Blair?" í henni er hefðbundnu orða-
lagi vísindalegrar varfærni varpað
burt. Óbeinar reykingar „drepa“
fjölda manns í stað þess að minnka
lífslíkur og tóbakið „drepur" 4,2
miljónir reykingamanna og kvenna á
ári; tóbakið er gerandinn, en ekki sá
sem andar því að sér. (greininni er
sagt að ef tóbak yrði gert ólöglegt
efni mætti ætla að reykingafólki
fækkaði verulega og í lok hennar er
forsætisráðherra Bretlands hvattur til
að gera tóbak að bannvöru (2).
Þessi rækilegi viðsnúningur á
viðhorfum til tóbaks hefur gerst
smátt og smátt og svo virðist að
andstaða heilbrigðisstétta gegn
tóbaki sé alltaf að harðna. Reyndar
hefur notkun tóbaks alltaf verið um-
Framhald á bls. 7
Læknablaðið 2004/90 5