Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.01.2004, Qupperneq 59

Læknablaðið - 15.01.2004, Qupperneq 59
S M A S J A I N hefur enn ekki verið hrundið í framkvæmd og óvíst hvort af því verði. „Af gögnum málsins verður ekki séð að formlegum að- gerðum til undirbúnings á gagnagrunninum hafi þokað áfram svo að teljandi sé frá því að rekstrarleyfi var gefið út 22. janúar 2000.“ Kröfur rekstarleyfishafa um aukinn aðgang hafa hingað til komið í veg fyrir samþykkt Persónuverndar og má gera ráð fyrir að sú barátta verði enn erfiðari ef farið yrði eftir dómi hæstaréttar. Heilræði Mannverndar Þar sem engir tilburðir eru sjáanlegir af hálfu rekstrarleyfishafa við að gera grunn- inn bendir Mannvernd heilbrigðisráðuneyt- inu á að afturkalla rekstrarleyfið og fella lögin úr gildi því þau standast ekki stjórnar- skrá að mati hæstaréttar. Eina lausnin er að byggja svo umfangsmikla erfðarannsókn á grundvallarreglunni um upplýst samþykki, eins og aðrar vísindarannsóknir á mönnum. Mannvernd mun halda áfram baráttu sinni fyrir því að ákvæði stjórnarskrár um friðhelgi einkalífs og frelsi til þátttöku og rannsókna séu virt. Öllum breytingum á lögunum sem ekki standast stjórnarskrá og mannréttindasáttmála verður mætt með öllum tiltækum og löglegum ráðum, svo sem frekari málsóknum. Hæstiréttur úrskurðar bæklunarlæknum í vil Fimmtudaginn 11. desember kvað hæsti- réttur upp dóm í máli bæklunarlækna gegn Tryggingastofnun ríkisins. Mál þetta hefur manna í millum verið nefnt „Skúrka- málið" en það snýst um rétt lækna á einkastofum til að veita sjúklingum þjón- ustu án greiðsluþátttöku TR. Niðurstaða réttarins var sú að þeim væri þetta heimilt samkvæmt samningi þeirra við TR. Dóminn kváðu upp þrír af fimm dóm- urum en tveir skiluðu séráliti. í niðurstöðu réttarins segir meðal annars: „í samningi milli T (Tryggingastofnunar ríkisins) og félagsmanna I (Islenska bækl- unarlæknafélagsins) um greiðslu T á hluta almannatrygginga í lækniskostnaði vegna meðferðar sjúklinga hjá félagsmönnum I var meðal annars kveðið á um afslátt sem færi hækkandi eftir því sem læknisverk yrðu fleiri á hverju ári. í nóvember 2002 tjáðu nokkrir félagsmenn í sjúklingum sínum að þeim stæði ekki til boða á því ári að fá þjónustu með greiðsluþátttöku T en jafnframt að þjónustan stæði til boða ef sjúklingarnir greiddu að fullu fyrir hana sjálfir. I málinu krafðist í viðurkenningar á því að félagsmönnum þess væri þetta heimilt og vísaði meðal annars til 2. mgr. 5. gr. fyrrgreinds samnings sem kvað á um að lækni væri heimilt að taka sjúkra- tryggðan einstakling til meðferðar án greiðsluafskipta T ef sjúklingur óskaði þess. Talið var að í ljósi 1. mgr. 75. gr. stjórnarskrárinnar yrði að líta svo á að fé- lagsmenn I hefðu óskert frelsi til að ráða verkum sínum, innan þeirra marka sem því frelsi kynni að vera sett með samning- um þeirra eða lögum. I lögum 117/1993 væri hvergi mælt fyrir um bann við því að leysa af hendi læknisverk fyrir annað end- urgjald en greini í fyrrnefndum samningi við T og ekki sé kveðið á um að lækni sem bundinn sé af samningnum sé skylt að sinna hverjum þeim sjúklingi sem til hans leiti. Engin skilyrði komi fram í 2. mgr. 5. gr. samningsins önnur en þau að sjúkling- ur óski sjálfur eftir þjónustu án greiðslu- þátttöku T og þótti forsaga ákvæðisins ekki gefa tilefni til ályktana um að heim- ildin sem þar komi fram sé bundin frekari skilyrðum en berum orðum greini. Fé- lagsmönnum I sé hvorki eftir nefndum samningi né einstaklingsbundnum samn- ingum sínum við T skylt að leysa af hendi sérhvert læknisverk á sérfræðisviði sínu sem leitað sé til þeirra um, eða slík verk allt að tilteknu magni. Þeir hafi því ekki með samningssambandi sínu við T afsal- að sér rétti til að velja eftir sínum eigin forsendum hvaða verkum þeir sinni, þar á meðal hvort þeir taki að sér verk með tilliti til fjárhagslegra ástæðna. Voru kröfur í því teknar til greina.“ Veikinda- fjarvistir á Norðurlöndum Veikindafjarvistir hafa aukist mikið á Norðurlöndum á síðustu árum. Æ stærra hlutfall allra veikindafjarvista er vegna geðraskana en óþægindi frá stoðkerfi eiga einnig stóran hlut að máli en þau valda oft langvarandi fjarvistum frá vinnu. Þessi orð er að finna í formála nýs bæklings sem Vinnueftirlitið hefur gefið út. Raunar kemur þessi bæk- lingur út í fjórum löndum samtímis, Danmörku, Svíþjóð og Noregi, auk Islands, en hann er gerður í samvinnu fulltrúa rannsóknarstofnana á sviði vinnuverndar og atvinnulífs í löndun- um fjórum. Norræna ráðherranefnd- in stóð straum af kostnaði við útgáf- una. I bæklingnum kemur fram að danskar rannsóknir hafa sýnt að þriðj- ungur veikindafjarvista eigi rót sína að rekja til aðstæðna á vinnustað. Er bæklingnum ætlað að benda á ýmis- legt sem unnt er að gera til að draga úr fjarvistunum. Bæklinginn má fá hjá Vinnueftir- litinu og á heimasíðu þess en slóðin þangað er www.ver.is / bœklingnum um veikindafjarvistir á Norðurlöndum er að finna margar myndir, þeirra á meðal þessa teikningu. Læknablaðið 2004/90 59
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.