Læknablaðið - 15.01.2004, Blaðsíða 85
RAÐSTEFNUR / LAUSAR STÖÐUR
Veikindafjarvistir
lífsstíll - vinna - viðbrögð
Ráðstefna haldin laugardaginn 10. janúar 2004 kl. 9:30-12:00 í Laugum heilsumiðstöð, Laug-
ardal, Reykjavík.
Dagskrá:
09:30-10:00 Morgunhressing
10:00-12:00 Stress-related exhaustion and depression-epidemiology and treatment
strategies
Próf. Marie Ásberg & Próf. Áke Nygren, Karolinska Inst., Svíþjóð
Þróun örorku á íslandi - hvert stefnir?
Dr. med. Sigurður Thorlacius, Tryggingastofnun ríkisins
12:00-13:00 Skoðunarferð um Laugar, nýopnaða heilsumiðstöð í Laugardal
Ráðstefnan er ætluð læknum og öðru heilbrigðisstarfsfólki.
Aðstandendur ráðstefnunnar eru Landlæknisembættið, Vinnueftirlitið, Tryggingastofnun ríkis-
ins og Lýðheilsustofnun.
GlaxoSmithKline
GlaxoSmithKline styrkir ráðstefnuna
Námsstöður lækna
hjá Rannsóknastöð Hjartaverndar
Lausar eru til umsóknar tvær tveggja ára námsstöður
lækna hjá Hjartavernd. Um er að ræða 50%
rannsóknarstöðu og 50% starf við útskriftir þeirra sem
koma í rannsóknir til Hjartaverndar.
Öldrunarrannsókn Hjartaverndar er veigamesta
rannsóknin sem er í gangi núna og er í samvinnu við
Heilbrigðisstofnun Bandaríkjanna. Þar er meðal annars
gerð viðamikil rannsókn á hjarta og blóðrás,
heilastarfsemi, vöðva- og beinheilsu og færni aldraðra
með fullkomnustu tækni sem völ er á, þar á meðal
erfðatækni. Rannsóknarverkefni eru því fjölmörg og
geta tengst mjög mörgum fræðasviðum innan
læknisfræði, eftir áhuga umsækjanda, svo sem öldrun-
arlækningum, hjartalækningum, innkirtlafræði,
erfðafræði, myndgreiningu og fleiri sviðum. Hér er því
um frábært framhaldsmenntunartækifæri að ræða og
er Hjartavernd í tengslum við margar erlendar
rannsóknastofnanir. Stöðurnar eru lausar frá 1. mars
2004, eða eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar veita Vilmundur Guðnason,
forstöðulæknir Hjartavernd og læknarnir Pálmi V.
Jónsson, Gunnar Sigurðsson, og Guðmundur
Þorgeirsson á Landspítala. Umsóknum skal skilað til Vil-
mundar Guðnasonar, Hjartavernd, á netfangið
atvinna@hjarta.is fyrir 1. febrúar næstkomandi.
Læknablaðið 2004/90 85